Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 38
ÞAÐ VEITIR EKKERT
AF AÐ HRÆRA UPP Í
OKKAR ÞJÓÐ Í SAMBANDI VIÐ
ÍSLENSKT MÁL OG ÞANN
MENNINGARARF SEM BRAG-
FORMIÐ ER.
Ný tvöföld virkni sem
veitir hraða og langvarandi
vörn gegn tannkuli.
ALLT
fyrir listamanninn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Mar er þriðja ljóða-bók Stefáns Þórs Sæmundssonar, íslenskukenn-ara í Mennta-s k ó l a n u m á
Akureyri. Fyrsta ljóðabókin kom út
fyrir þrjátíu árum og önnur ljóða-
bók hans, Upprisa, kom út fyrir
tæpu ári.
Um Mar segir hann: „Heitið getur
bæði tengst sjónum og marblettum
á sál og líkama. Umfjöllunarefnin
eru fjölbreytt. Það má segja að ég sé
með alla lífsgátuna undir, enda er
lífið margar gátur.
Þa r na er u ber nsk u my nd ir,
þarna er f jallað um þá stórsjói
sem einstaklingar lenda í og þarna
er líka ort um efri árin. Þarna er
hyldjúpur sársauki enda kostar
það erfiðleika að vera maður. Lífið
býður upp á kvöl og pínu en einnig
mikla gleði.
Á kamelljónanótum
Stefán segir að fólk eigi að hafa fullt
frelsi til að túlka ljóðin sínum eigin
skilningi. „Ég vil vara fólk við að
tengja ljóðmælandann beint við
mig, höfundinn. Ljóðmælandinn
í þessum ljóðum er ekki einhver
einn, hann er ungur, hann er eldri,
hann er karl, hann er kona. Mér
finnst alveg út í hött að mata fólk
á skoðunum því reynsla og bak-
grunnur einstaklinga er með ýmsu
móti.“
Um form ljóðanna segir hann: „Ég
er á kamelljónanótum þar, er með
limrur, sonnettu og ferskeyttan hátt
en líka og kannski meira óbundin
ljóð og tilraunakennd form, lúmskt
rím en samt óbundið. Þetta er eigin-
lega hugarleikfimi fyrir lesandann.
Það veitir ekkert af að hræra upp í
okkar þjóð í sambandi við íslenskt
mál og þann menningararf sem
bragformið er og binda fróðleik og
sannindi í ljóðform.“
Rafbækur á Facebook
Stefán setti nýlega þrjár raf bækur
á Facebook. „Á þessum fordæma-
lausu tímum ákvað ég að hafa ofan
af fyrir vinum og vandamönnum
og setti á Fésbókina ljóð sem hafa
orðið út undan í þessu brölti mínu.
Síðan hef ég verið býsna duglegur
við að taka myndir og fengið ágætis
hrós fyrir þær þannig að ég efndi í
tvær ljósmyndabækur, annars vegar
um liti náttúrunnar og hins vegar
um húsakynni.
Núna eru margir að syngja og
spila en ég er ekki góður í því,
þannig að þetta er mitt framlag til
þessara tíma.“
Hugarleikfimi fyrir lesandann
Stefán Þór Sæmundsson sendir frá sér þriðju ljóðabók sína,
Mar. Setti þrjár rafbækur á Facebook, ljóð og ljósmyndabækur.
Það má segja að ég sé með alla lífsgátuna undir, segir Stefán.FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Útgáfurétturinn að Vigdísi- B ó k i n n i u m f y r s t a konuforsetann eftir Rán
Flygenring hefur verið seldur til
Suður-Kóreu. Þýðing á kóreska
titl in um er Nágranna kona mín
er forsetinn: Saga Vigdísar, fyrsta
kven forseta heims. Bókin kemur út
þar í landi í þessum mánuði, en hún
kom út hér á landi í fyrra.
Spurð út í forsöguna segir María
Rán Guðjónsdóttir útgáfustjóri
Angústúru: „Hye Joung Park og
Karl Ómarsson reka fyrirtækið
Kíki (kikir.net), sem veitir ráðgjöf
og aðstoð í alls kyns samskiptum
milli Íslands og Suður-Kóreu í
tengsl um við viðskipti, menningu
og ferðamennsku. Þau hrifust af
bókinni um Vigdísi eftir Rán Flygen-
ring og kynntu hana fyrir útgáf unni
Yellow Brick Books sem féll líka fyrir
henni. Huy þýddi bókina.
Í Suður-Kóreu er mikill áhugi á
stjórnskipan á Norðurlöndunum,
velferð og jafnrétti og fannst út -
g áf unni það endurspeglast vel í
bókinni.“
Vigdís til Suður-Kóreu
Kápa hinnar kóresku útgáfu.
Opna úr bókinni um Vigdísi forseta sem kemur út nú í maímánuði .
Óp e r u s ö n g v a r a r e i g a sínar uppáhaldsóperur. Tónlistartímarit BBC hafði
fyrir ekki margt löngu samband við
172 þekkta óperusöngvara og bað
þá að velja uppáhaldsóperu sína,
þar á meðal voru Placido Domingo,
Kiri Te Kanawa, Renée Fleming
og Bryn Terfel. Ópera Mozarts,
Brúðkaup Fígarós, fékk helmingi
fleiri atkvæði en óperan í öðru sæti.
1 Brúðkaup Fígarós
Mozart
2 La boheme
Puccini
3 Der Rosenkavalier
Richard Strauss
4 Wozzeck
Alban Berg
5 Peter Grimes
Benjamin Britten
6 Tosca
Puccini
7 Krýning Poppeu
Monteverdi
8 Don Giovanni
Mozart
9 Óþello
Verdi
10 Tristan og Ísold
Wagner
Bestu óperurnar að mati óperusöngvara
Wolfgang
Amadeus
Mozart
Brúðkaup Fígarós í Íslensku óper-
unni. MYND/GUÐMUNDUR INGÓLFSSON.
1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R30 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð