Fréttablaðið - 01.05.2020, Page 44

Fréttablaðið - 01.05.2020, Page 44
ÞAÐ HEFUR AUÐVITAÐ REYNST ÞEIM VIN- KONUM MJÖG ERFITT AÐ GETA EKKI KNÚSAÐ LITLA VINI. Þær vinkonur hafa ásamt Bóbó bangsa reynt að stytta litlu vinunum og vinkonunum stundir í samkomubanninu með því að fara í bangsa- göngur,“ segir Hrefna Hallgríms- dóttir, sem ásamt Lindu Ásgeirs- dóttur, myndar tvíeykið sívinsæla. „Það hefur auðvitað reynst þeim vinkonum mjög erf itt að geta ekki knúsað litlu vinina núna í ástandinu en í staðinn reyna þær að senda þeim öllum kærleik og gleði í gegnum gluggann,“ segir Hrefna en gönguferðunum verða gerð skil í sérstökum þætti sem verður sýndur á Stöð 2 á kröfugöngulausum frídegi verkalýðsins. Fyrst klukkan 12 og síðan í opinni dagskrá á Stöð 2 fjölskylda klukkan 17.50. „Það var við hæfi að Skoppa og Skrítla viðruðu leikhúsbangsann sinn, hann Bóbó, þegar þær lögðu af stað í fyrstu bangsagönguna og auðvitað vildi hann svo koma með í allar göngurnar,“ segir Hrefna um Bóbó sem Katla María Ómarsdóttir, sjö ára leikur. toti@frettabladid.is Bangsakröfuganga Skoppu og Skrítlu Vinkonurnar litríku Skoppa og Skrítla, ásamt leikhúsbangsanum Bóbó, notuðu samkomubannið til þess að rölta í rólegheitum um hverfi og götur borgarinnar í leit að böngsum í gluggum og fundu marga vini í stuði í leiðinni. Það gekk aldeilis vel að finna bangsa, gæludýr og glöð börn í gluggum og svo voru Skoppa og Skrítla svo heppnar að hitta fullt af skemmtilegum vinum sem voru að dunda við ýmislegt í görðunum sínum. „Sjálfur íþróttaálfurinn, ásamt Sollu og Höllu, tók æfingar úti á bílaplan- inu,“ segir Hrefna um ævintýrin sem leynast nefnilega alls staðar. Álfrún leikkona skellti í jógastund þegar þríeykið bar að garði. Birgitta Haukdal bauð uppá kósý sögustund með börnum sínum. „Samkomubannið hefur nefnilega laðað fram ótrúlegustu töfra,“ segir Hrefna og nefnir sem dæmi trampolínpartí sem Jón Jónsson hélt úti í garði. 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.