Fréttablaðið - 02.05.2020, Page 2
Veður
Léttir víða til á V-verðu landinu,
en áfram dálítil él NA- og A-
lands. Hiti 0 til 9 stig að deginum,
mildast sunnan heiða. Í nótt má
búast við frosti um mest allt land.
SJÁ SÍÐU 34
Þar sem fagurrauðu jarðarberin spretta
AUSTURLAND „Hér er ýmislegt gert
fyrir barnafólk, meðal annars er
hér rekinn gjaldfrjáls leikskóli, auk
þess sem skólamáltíðir í grunnskól-
anum eru fríar. Fyrir nú utan þau
forréttindi sem felast í að alast upp
í víðfeðminu hér á staðnum,“ segir
Ragna Óskarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Íslensks dúns sem staðsett er
á Borgarfirði eystri.
Íslenskur dúnn, ásamt Ólaf i
Aðalsteinssyni og Jóhönnu Óla-
dóttur, æðarbændum í Loðmundar-
firði, hefur tekið upp á því að gefa
nýfæddum Borgfirðingum æðar-
dúnssæng að gjöf. Ragna segir hug-
myndina upphaflega hafa komið frá
þeim Ólafi og Jóhönnu. „Þau búa á
Borgarfirði eystri, en láta sigla með
sig og vistir til tveggja mánaða yfir
í eyðifjörðinn Loðmundarfjörð vor
hvert til að sinna æðarfuglinum á
varptíma. Þar hafa þau komið upp
einu stærsta æðarvarpi landsins,“
segir Ragna.
Íbúafjöldi á Borgarfirði eystri er
um 100 manns og segir Ragna byggð
á svæðinu hafa átt undir högg að
sækja síðastliðin ár. „Þetta er fram-
lag þeirra hjóna til að bjóða nýja
Borgfirðinga velkomna í heiminn.“
Æðarrækt og vinnsla æðardúns
er byggð á aldagömlum hefðum og
á hverju ári falla til um 3.000 kíló
af æðardúni hér á landi. Stór hluti
dúnsins er f luttur úr landi þar sem
hann er svo unninn að fullu en fyrir
um ári var fyrirtækið Íslenskur
dúnn stofnað í Borgarfirðinum í
samvinnu við Ólaf og Jóhönnu.
Fyrirtækið hefur það að markmiði
að fullvinna æðardún á Íslandi.
„Staðreyndin er nefnilega sú að
þó að á Íslandi falli til um 75 pró-
sent alls æðardúns í heiminum, þá
Nýir Borgfirðingar fá
dúnsæng við fæðingu
Öll nýfædd börn á Borgarfirði eystri fá nú æðardúnsæng að gjöf. Æðar
dúnninn í sængurnar kemur frá æðarbændum í Loðmundarfirði og þær
eru framleiddar af fyrirtækinu Íslenskum dúni sem staðsett er á Borgarfirði.
Árni og Lindsay fengu fyrstu æðardúnsængina, en þau eiga von á barni eftir
nokkrar vikur. Með þeim á myndinni eru Ólafur og Jóhanna. MYND/AÐSEND
er hann að megninu til f luttur úr
landinu sem hrávara. Það eru þó
einhverjir bændur sem framleiða
nú þegar sængur úr þeim dúni sem
fellur til hjá þeim, en við viljum
auka enn frekar við þá framleiðslu,“
segir Ragna.
Nú þegar hefur fyrsta ungbarna-
sængin verið afhent að gjöf og segir
Ragna einstaklega ánægjulegt að fá
að taka þátt í verkefninu með því
að framleiða sængur úr dúninum
handa litlum krílum sem fæðast á
Borgarfirði. „Það vildi svo skemmti-
lega til að fyrsta sængin var afhent
í fyrradag til hjónanna Árna M.
Magnússonar og Lindsay Suzanne
Lee, en þau eiga von á sínu fyrsta
barni á næstu vikum. Árni hefur
alltaf verið viðloðandi Borgarfjörð,
en þau voru að f lytja búferlum
hingað nú í vor,“ segir Ragna.
birnadrofn@frettabladid.is
Þetta er framlag
þeirra hjóna til að
bjóða nýja Borgfirðinga
velkomna í heiminn.
Ragna
Óskarsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Íslensks
dúns
Sæktu Fréttablaðsappið frítt!
BYRJAÐU DAGINN MEÐ
FRÉTTABLAÐINU
Lestu Fréttablað dagsins í snjalltækinu þínu, hvar og hvenær sem er!
VIÐSKIPTI Innlend kortavelta fyrstu
25 dagana í aprílmánuði var 4,1
prósenti minni en meðaldagsvelta
í apríl á síðasta ári. Þá dróst erlend
netverslun Íslendinga einnig saman
um átján prósent á milli ára í mars-
mánuði en samkvæmt Rannsóknar-
setri verslunarinnar má áætla að
kórónuveirufaraldurinn hafi þar
áhrif.
Erlend netverslun Íslendinga nam
195,3 milljónum að tollvirði í mars
en mestur samdráttur var í net-
verslun frá Kína sem minnkaði um
helming sé miðað við sama mánuð
í fyrra. Þá nam hún 38,9 milljónum
króna en í ár 19,2 milljónum.
Netverslun frá Bandaríkjunum
dróst saman um 35 prósent á milli
ára en í mars á þessu ári nam hún
29,4 milljónum króna. Minnsta
breytingin var á netverslun frá
Bretlandi en tollverð jókst um eitt
prósent sé miðað við marsmánuð í
fyrra. – bdj
Samdráttur
í kortaveltu
Börn hafa verið vistuð í fangelsi.
FANGELSISMÁL Frá árinu 2015 hafa
fimm einstaklingar undir átján ára
aldri verið úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald. Þeir sem um ræðir voru allir
sautján ára. Þetta kemur fram í svari
Fangelsismálastofnunar við fyrir-
spurn Fréttablaðsins.
Tveir voru vistaðir í nokkra daga
í fangelsi áður en vistun á vegum
Barnaverndarstofu tók við. Annar
þeirra er drengurinn sem úrskurð-
aður var í fjögurra vikna gæslu-
varðhald fyrr í vikunni, en hann er
nú vistaður á viðeigandi stofnun á
vegum Barnaverndarstofu.
Ísland hafði um árabil sætt tölu-
verðri gagnrýni af hálfu alþjóðlegra
eftirlitsaðila fyrir að tryggja ekki
með lögum að börn undir lögaldri
væru ekki vistuð með fullorðnum
sakamönnum í fangelsum. Brugðist
var við gagnrýninni í nýjum lögum
um fullnustu refsinga sem tóku
gildi árið 2016 og kveðið á um að
börn undir lögaldri sem náð hafa
sakhæfisaldri skuli vista á vegum
barnaverndaryfirvalda. Þegar lögin
tóku gildi hafði þegar verið sett
reglugerð um afplánun sakhæfra
barna á vegum Barnaverndarstofu
og Fangelsismálastofnunar. – aá
Fimm börn sett
í gæslu frá 2015
Brugðist var við gagn-
rýninni í nýjum lögum um
fullnustu refsinga sem tóku
gildi árið 2016.
Það var margt sem minnti á betri tíð í gróðurhúsinu Grænumörk í Hveragerði í gær þegar Gunnar Viðar Gunnarsson sinnti blessuðum jarðarberj-
unum. En þó vor sé í lofti er lofthiti fremur lágur undir berum himni. Hitastigið úti kemur þó ekki í veg fyrir sprettuna þar sem ræktunin fer fram
undir glerþaki og ylurinn, sem gerir ræktunina mögulega, kemur úr fjölda heitra hvera og uppspretta í bænum og nágrenni hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð