Fréttablaðið - 02.05.2020, Page 6
I samvinnu við:
STÆRSTI
DANSVIÐBURÐUR
NORÐURSINS
dansbandsveckan.se
SAMFELLDUR
DANS Í 7 KVÖLD
6 DANSGÓLF
UNDIR ÞAKI
SVÍÞJÓÐ, MALUNG, 12.-18. JÚLÍ 2020
82 HLJÓMSVEITIR
Pakkaverð í boði frá 75.700 kr.
Nánari upplýsingar gefur
Gunnar í síma: 863 5100
HVERAGERÐI Hjón ein í Hveragerði,
fá ekki fasteignagjöld af eign sinni
á efri hæð Austurmarkar 2 þar í bæ
felld niður.
Hjónin sendu bænum bréf í upp-
hafi mánaðar þar sem þau fara fram
á niðurfellingu fasteignagjaldanna
en bærinn telur sér ekki fært að fella
gjöldin niður.
Í bréfinu kemur fram að hjónin
hafi varla verið búin að draga síð-
asta pensilfarið við endurbætur
þegar félagsmaður Sjálfstæðis-
félagsins Ingólfs kvartaði yfir fyrir-
hugaðri starfsemi til byggingar-
fulltrúa. Hjónin ætluðu að leigja
fyrirtækinu Kjöt og kúnst salinn.
Í ljós kom að lögboðna flóttaleið
vantaði og eldvarnarhurð í sameign.
Austurmörk 2 stendur á góðum stað
í bænum og ákváðu hjónin að kosta
meiru til í samráði við arkitekt
hússins til að uppfylla lögboðnar
skyldur.
Segja hjónin að Sjálfstæðisfélagið,
sem eigi 15,73 prósent í eign sunnan
megin við eignina og verði aldrei
vart við flóttaleiðir sem séu norðan
megin, neiti þó að skrifa undir leyfi
fyrir framkvæmdinni. Því sé ekki
hægt að nýta atvinnuhúsnæðið.
Byggingafulltrúi neiti að taka
málið fyrir enda ekki samþykki
fyrir flóttaleiðinni og hnífurinn því
kyrfilega fastur í kúnni.
„Við vitum ekki alveg hvað á að
halda eða hvers konar þvingun
er hér á ferðinni,“ segir í bréfi
hjónanna. Eign þeirra standi algjör-
lega ónotuð og skilning vanti og
velvilja til að leysa málið.
„Það er þó ljóst að ekkert verður
úr starfsemi á hæðinni. Bærinn
er búinn að skora á okkur að nýta
ekki húsnæðið f lóttaleiðalaust og
þeir aðilar sem áttu pantað húsnæði
fyrir fermingar, brúðkaup og fleira
sem fært hefur verið vegna COVID-
19 fram á haustið geta ekki nýtt sér
þjónustu okkar.
Vegna þessa erum við að óska
eftir niðurfellingu á fasteignagjöld-
um,“ skrifa hjónin.
Í fundargerð bæjarstjórnar segir
að því miður sjái bæjarstjórn sér
ekki fært að fella niður fasteigna-
gjöld en hvetur eigendur í húsinu
til að ná niðurstöðu í málinu. – bb
Fá fasteignagjöld ekki felld niður þrátt
fyrir að geta ekki nýtt húsnæði sitt
Hjónin segja í bréfinu að málið hafi tekið marga mánuði og ekkert gengið
né rekið þann tíma. Engin lausn á málinu sé sjáanleg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Eign hjónanna stendur
algerlega ónotuð og skilning
vanti og velvilja til að leysa
málið.
SAMGÖNGUR Sannkölluð spreng-
ing hefur orðið í sölu rafskúta, eða
rafmagnshlaupahjóla, hér á landi
annað árið í röð. Ljóst er að Íslend-
ingar eru óðir í hjólin og seljast
þau eins og heitar lummur. Í apríl
var tíföld sala á rafskútum miðað
við upphaf legar áætlanir og hafa
rafskútuleigur stækkað þjónustu-
svæðin sín til að mæta eftirspurn.
Rafskútuleigan Hopp stækkaði
sitt þjónustusvæði síðastliðinn
laugardag þegar góða veðrið mætti
í bæinn. Svæðið nær nú frá Sel-
tjarnarnesi í Skeifuna sem er tvöfalt
stærra svæði en áður. Þessa dagana
má sjá ótalmarga Íslendinga þeytast
um götur borgarinnar á grænum,
svörtum og hvítum rafskútum.
„Við fjölgum og fækkum hjólum
eftir eftirspurn. Við byrjuðum með
100 hjól en þau eru ekki lengur á
götunni. Nú eru ný hjól á götunni
með útskiptanlegum raf hlöðum.
Það auðveldar reksturinn. Í sumar
verðum við með starfsmenn á
hlaupahjólum að skipta út raf-
hlöðum og þá þurfum við ekki að
taka þau inn af götunni. Svolítið
skemmtileg sumarvinna hjá okkur,“
segir Ægir Þorsteinsson, einn eig-
enda Hopps.
Ægri segir langf lesta notendur
hérlendis vera Íslendinga. Það átti
einnig við fyrir tíma sam komu-
banns en í fyrra voru rúmlega 85
prósent notenda með íslensk númer.
Ægir segir Hopp alltaf leggja áherslu
á íslenska neytendur. „Okkar helsta
markmið er að berjast við mengun
einkabílsins. Við viljum bjóða
Íslendingum upp á annan valmögu-
leika sem er fljótlegur, þægilegur og
umhverfisvænn.“
Eru dæmi um að sveitarfélög á
landsbyggðinni hafi skoðað mögu-
leika á rafskútuleigum.
Vinsælustu hjólin til sölu á Íslandi
eru Xiaomi-hjólin. Xiaomi er kín-
verskt risafyrirtæki sem framleiðir
einnig farsíma og önnur raftæki.
Swagtron er annað tiltölulega nýtt
merki sem er í boði á Íslandi en það
kemur frá bandarísku fyrirtæki sem
bauð fyrst vottuð rafmagnssvif-
bretti til sölu þarlendis.
Óttar Örn Sigurbergsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Elko, segir raf-
skútur vera þann vöruflokk sem er
með mestu aukninguna í dag.
„Við höfum selt margfalt magn
frá því í fyrra og það var tíföld sala
núna í apríl miðað við upphaflegar
áætlanir fyrir sumarið. Ég myndi
áætla að heildarmarkaðurinn á
Íslandi væri sirka tíu til fimmtán
þúsund hjól á þessu ári.“
Óttar Örn segir mismunandi
gerðir fyrir fullorðna og börn. Best
sé fyrir fullorðna að nota hjól með
öflugum mótor og meiri rafhlöðu-
endingu og passa þarf að hjólin þoli
meiri þyngd. Fyrir yngri hópa eru
bæði til hjól með handvirkri inn-
gjöf sem og sjálfvirkri inngjöf þar
sem nóg er að ýta sér áfram til að
mótorinn hjálpi.
Hlaupahjólin eru seld með loft-
fylltum dekkjum en hægt er að
kaupa gegnheil dekk sem eru betri
fyrir gróft yfirborð. Loftfyllt dekk
eru töluvert betri ef hjólað er á mal-
biki og gangstéttum með tiltölulega
sléttu yfirborði.
Búist er við skorti í sumum verð-
flokkum til skamms tíma þar sem
það reynist erfitt að fá hjól í Evrópu.
Verið er að leita allra leiða til að eiga
nóg til í sumar.
ingunnlara@frettabladid.is
Sala rafskúta hefur stóraukist
Rafskútuæðið er ekkert að dvína en sprenging hefur orðið í sölu og leigu rafskúta annað árið í röð. Raf-
skútuleigan Hopp stækkar þjónustusvæði sitt og Elko selur tíu sinnum fleiri hjól en gert var ráð fyrir.
Dæmi eru um að sveitarfélög á landsbyggðinni hafi skoðað möguleika á að starfrækja rafskútuleigur. MYND/HARI
Ég myndi áætla að
heildarmarkaður-
inn á Íslandi væri sirka tíu
til fimmtán þúsund hjól á
þessu ári.
Óttar Örn Sigurbergsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Elko
Mygla í Fossvogsskóla veldur enn
deilum milli borgar og foreldra.
REYKJAVÍK Reykjavíkurborg hefur
svarað fulltrúum skólaráðs og for-
eldrafélagi Fossvogsskóla um upp-
lýsingagjöf varðandi húsnæðismál
skólans og er beðist afsökunar á
töfum. Leitað hafði verið til lög-
manns vegna skorts á svörum um
húsnæðið, sem var lokað að hluta
vegna myglu í mars í fyrra eftir að
börn veiktust. Kostnaður vegna
framkvæmda nemur um 500 millj-
ónum króna.
Í svarinu kemur fram að engar
sýnatökur verði gerðar við verklok-
in en að Heilbrigðiseftirlitið muni
taka húsnæðið út. Framkvæmdum
sé nú lokið nema á gluggavegg í
hluta skólans, framkvæmd á þak-
glugga, við frágang á lóð og yfir-
borði og í matsal. Þessu ljúki í júní.
Karl Óskar Þráinsson, formaður
foreldrafélagsins, segir málinu
engan veginn lokið og bréfið svari
ekki þeim grunnspurningum sem
legið hefði á að fá svör við. „Það eru
vonbrigði að stærsti vinnuveitandi
landsins skuli svara svona seint og
með svona ókláruðu plaggi,“ segir
hann. „Fram kemur að engar sýna-
tökur verði gerðar þegar það er
klárlega eitthvað að í húsnæðinu,
viðbrögð nemenda og starfsfólks
benda sterklega til þess,“ segir Karl.
– khg
Foreldrar ekki
sáttir við svör
Það eru vonbrigði
að stærsti vinnu-
veitandi landsins skuli svara
svona seint.
Karl Óskar Þráinsson, formaður
foreldrafélags Fossvogsskóla
2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð