Fréttablaðið - 02.05.2020, Qupperneq 18
Flottir íþróttamenn á fimmtugsaldri
Guðjón Valur Sigurðsson er hættur í handbolta 41 árs gamall. Guðjón Valur er þó ekki eini heimsklassa íþróttamaðurinn sem hefur
spilað svo lengi eins og Fréttablaðið komst að. Nokkrir hafa afrekað að vera í hópi þeirra allra bestu, komnir á fimmtugsaldurinn.
Öryggisíbúðir Eirar til langtíma leigu
Grafarvogi Reykjavík
Eir öryggisíbúðir ehf.
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. 522 5700
milli 8:00 og 16:00 virka daga.
Nánari upplýsingar í síma 522 5700 virka daga milli kl. 8 og 16 eða
sendið fyrirspurn á netfangið sveinn@eir.is
Nokkrar tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir
Eirar til leigu í Grafarvogi, Reykjavík.
Eirborgir, Fróðengi 1—11, 112 Reykjavík.
Eirarhús, Hlíðarhúsum 3—5, 112 Reykjavík.
• Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri
aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn
geti búið lengur heima.
• Öryggisvöktun allan sólarhringinn.
• Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð.
• Góðar gönguleiðir í nágrenninu.
Guðjón Valur Sigurðsson
Stór hluti landsmanna veit ekki hvað handbolti er án Guðjóns Vals
Sigurðssonar. Guðjón Valur spilaði lengst af í Þýskalandi en náði ekki
að vinna landstitilinn þar fyrr en árið 2013 þegar hann spilaði með Kiel.
Eftir að Guðjón Valur komst á bragðið vann hann landstitla næstu árin
bæði í Þýskalandi og á Spáni með Barcelona, einu besta liði heims. 39
ára gamall samdi hann við stórlið PSG og vann sinn síðasta stóra titil nú
þegar tímabilið í Frakklandi var blásið af, 41 árs gamall.
Tom Brady
Leikstjórnandinn er óumdeilan-
lega besti NFL-leikmaður sög-
unnar og hefur verið á toppnum
í 20 ár, farið níu sinnum í leikinn
um Ofurskálina og unnið hana sex
sinnum. Síðasta Super Bowl-titil-
inn vann Brady í fyrra, þá 41 árs.
Martina Navratilova
Tékkneski Bandaríkjamaðurinn
hafði yfirburði yfir keppinauta
sína á bestu árum sínum. Hún lagði
spaðann á hilluna árið 1995 en
sneri aftur árið 2000, þá 44 ára, og
átti eftir að vinna tólf risamót. Það
síðasta tæplega fimmtug 2006.
Vince Carter
Carter er eini maðurinn sem spilað
hefur á fjórum áratugum í NBA-
deildinni. Hann kom inn í deildina
árið 1998 og varð fertugur í janúar
2017. Carter skorar enn mikið.
Phil Mickelson
Kylfingurinn magnaði var orðinn 43 ára þegar að hann vann Opna breska
meistaramótið í fyrsta sinn árið 2013. Sama ár vann hann Opna banda-
ríska mótið með þriggja högga mun í baráttu við Henrik Stenson.
Dara Torres
Torres synti sig inn í hjörtu
heimsins á Ólympíuleikunum árið
2008 þegar hún vann þrjú silfur, 41
árs gömul. Merkilegt var að hún
keppti á sínum fyrstu leikum árið
1984 og hætti að keppa í sjö ár,
2000-2007, vegna barneigna.
Jaromír Jágr
Tékkinn er einn besti íshokkíleikmaður sögunnar og er enn að í heima-
landinu, 48 ára gamall. Árið 2013 spilaði hann 41 árs í úrslitum um Stan-
ley-bikarinn, úrslitaeinvígi NHL-deildarinnar. Algjör goðsögn á ísnum.
Randy Couture
Fyrrverandi ólympíski glímumað-
urinn sló í gegn í UFC en hætti árið
2005. Hann sneri aftur tveimur
árum síðar, þá 43 ára gamall, og
barðist um heimsmeistaratitilinn.
2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT