Fréttablaðið - 02.05.2020, Qupperneq 20
MITT RÁÐ Á ÞESSUM
TÍMAMÓTUM ÞAR SEM
SAMFÉLAGIÐ LIFNAR VIÐ
Á NÝ ER AÐ ÞÚ STALDRIR
VIÐ OG TAKIR STÖÐUNA
FYRIR ÞIG.
Þr íeyk ið hef u r leit t okkur á ábyrgan en umhyggjusaman hátt í gegnum þennan furðu-lega tíma og eftir því sem nær líður degi
aukins frelsis léttist lundin og fólk
virðist almennt tilbúið og jafn-
vel byrjað að taka fagnandi á móti
sumri og sól.
En ef við horfum til baka þá hefur
þessi tími verið alls konar.
Það er nefnilega merkilegt hvað
hann hefur þýtt mismunandi hluti
fyrir fólk. Á meðan hluti fólks hefur
þurft að sinna vinnu sinni heima
hafa aðrir misst vinnuna. Enn aðrir
hafa starfað áfram, en undir enn
meira álagi en nokkru sinni fyrr á
meðan enn annar hópur hefur verið
frá vinnu að einhverju eða öllu leyti.
Það væri hægt að telja lengi upp
þær mismunandi aðstæður sem
þetta ástand hefur skapað með
ólíkum afleiðingum fyrir fólk, líðan
þess og möguleika. Fyrir utan það
auðvitað að margir hafa glímt við
alvarleg veikindi og í alvarlegustu
tilfellunum hafa því miður sumir
þurft að kveðja ástvini vegna
COVID-19.
Fyrir f lesta bar þetta ástand með
sér meiri tíma heima. Það sem við
erum að sjá þessa dagana er að það
hefur skapast nokkuð þung undir-
alda í samfélaginu undanfarnar
vikur. Áhrif einangrunar, innilok-
unar, félagslegrar fjarlægðar, óvissu
og kvíða varðandi bæði heilsu og
afkomu hafa verið mikil og kannski
meiri en fólk gerir sér sjálft grein
fyrir.
Óvissan um hvað tekur svo við
er líka óþægileg þó fólk reyni að
bægja henni frá sér. Þessi áhrif geta
svo auðveldlega grafið sér leið inn í
líf fólks og haft áhrif á daglega líðan,
skap og samskipti án þess að það
átti sig á því hvað er að gerast.
Áhrifin birtast næstu mánuði
Mér finnst líklegt að áhrifin af þessu
haldi áfram að sýna sig í einhverja
mánuði til viðbótar, jafnvel lengur.
Sérstaklega hjá þeim sem hafa þurft
að takast á við meira álag eða meiri
einangrun og áföll. Þeir sem stíga
ölduna á meðan þarf, gefa nefnilega
stundum eftir þegar álaginu sleppir.
Þegar á að fara að njóta og sólin og
gleðin að taka við, þá slaknar á fólki
og þreytan og hugsanirnar fá pláss.
Það alvarlegasta í þessum málum
er að við erum að sjá fjölgun barna-
verndarmála og mikla aukningu í
tíðni og alvarleika heimilisofbeldis.
Þetta er þó ekki alslæmt. Síður en
svo. Það fegursta sem komið hefur
út úr þessum tíma er dýrmæt og
aukin samvera margra fjölskyldna.
Það er aukin ró og vandaðri for-
gangsröðun. Ótal margir sem döns-
uðu á línu örmögnunar fengu kær-
komna hvíld og andlega næringu í
faðmi sinna nánustu.
Við erum að sjá fólk skapa sem
aldrei fyrr, gefa af sér á ótrúlega fal-
legan máta, endurmeta gildi sín og
fjölskyldunnar og skilgreina lífs-
gæðin upp á nýtt.
Ég er ekki frá því að f lestir
haf i jafnvel líka lært aðeins
betur að nýta sér tækni til að
bæta og auka samskipti í lífi og
starfi. Vinnustaðir sem skiptu
upp st ar fsmannahópnu m og
virtu tveggja metra regluna eru
jafnvel að sjá vinnufriðinn skila
f leiri gæðaverkum en yfirvinna
Tækifærin í breytingum
Slakað verður á samkomubanni á mánudaginn en Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur mælir
með því að við nýtum tækifærin í breytingum og aukum lífsgæði okkar til frambúðar.
Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur hjá Sálfræðingum Höfðabakka segir líklegt að áhrif samkomubannsins haldi áfram
að sýna sig í einhverja mánuði til viðbótar, jafnvel lengur, og vill að við nýtum þau til góðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
tímabilsins á undan. Þá hefur verið
gott að sjá fólk einnig forgangsraða
heilsu, sinna útiveru og því að leika
með börnunum sínum og vonandi
halda sem flestir í þessar breytingar.
Eins og í samkomubanni þá
verður veruleikinn eftir það líklega
einnig mismunandi fyrir fólk enda
hægði lífið verulega á sér hjá sumum
á meðan það gaf í hjá öðrum. Það er
því mikilvægt að vera vakandi fyrir
því að við munum koma í mismun-
andi ástandi undan þessum tíma.
Tími til að hlusta og taka eftir
Kannski verður hægt að nota
orðið fordæmalaust, ekki bara um
ástandið heldur einnig um afleið-
ingar þess. Sumir munu koma
ljómandi glaðir og endurnærðir
til baka í sinn kunnuglega takt á
meðan aðrir taka á móti sumri með
tankinn tóman og þanið taugakerfi.
En hvað þýðir þetta fyrir okkur
sem þjóð? Getum við staðið saman
þegar við höfum gengið svo ólíka
slóða þessa leið? Kannski það sé
einmitt mergur málsins og lausnin
um leið. Þannig er það nefnilega
eiginlega alltaf. Fólk er svo ólíkt en
við gleymum því stundum hvað það
þýðir.
Nú er tíminn til að hlusta og taka
eftir. Gefum okkur ekki að forsenda
mín sé þín. Verum til staðar og
gefum öðrum leyfi (kannski loks-
ins) til að vera til staðar fyrir okkur.
Hættum að gera ráð fyrir, giska og
telja okkur vita hvað þessi meinar
eða hinn vill. Kannski þetta sé tæki-
færi til að taka eftir að allir upplifa
allt á sinn einstaka máta. Það að
ganga saman í gegnum erfiðleika
þýðir nefnilega ekki að við höfum
upplifað þá eins eða lært af þeim
sömu lexíurnar.
Ef þessi tími kenndi okkur
eitthvað þá er það kannski hversu
tengd við erum. Hvernig við þurfum
öll á hvert öðru að halda. Hversu
sterk náttúran er og mannskepnan
brothætt, en mögnuð um leið.
Mitt ráð á þessum tímamótum
þar sem samfélagið lifnar við á ný er
að þú staldrir við og takir stöðuna
fyrir þig.
Hvaða reynslu ert þú með í far-
teskinu eftir þennan tíma? Lærðir
þú nýjar venjur sem þú vilt halda
í eða saknar þú þess sem þú áður
gerðir? Hlakkar þú til að hitta fólk
og takast á við hversdagsleg störf
eða kvíðir þú því og óttast að streit-
an taki yfir aftur?
Skoðaðu hug þinn og gerðu þær
breytingar sem þarf til að geta lifað
í samræmi við það sem passar fyrir
þig. Endilega gerðu það sama með
fjölskyldunni, þar er einnig hægt að
nýta sér fullt af góðum verkefnum
á vefsíðunni sterkariutilifid.is og
vinna með börnunum sem einnig
geta þurft hjálp.
Fram undan er nefnilega aftur
tími breytinga, nýtum tækifærið
og högum breytingunum þannig að
þær auki lífsgæði okkar og fólksins
okkar.
Helgi Björns og Reiðmenn Vindanna skemmta þjóð-inni í síðasta sinn heima í
stofu í kvöld, laugardagskvöld. Um
er að ræða sjöunda skiptið sem þeir
félagar ásamt góðum gestum halda
úti kvölddagskrá í samkomubanni
því sem sett var á í mars.
Mikil leynd ríkir yfir því hverjir
eru gestir kvöldsins í hvert sinn
og að sögn Stefán Más gítarleik-
ara sveitarinnar heldur Helgi því
leyndu jafnvel fyrir sveitinni þar til
á æfingu daginn áður.
Síðasta Heima
með Helga
Björgvin Halldórsson var annar
þeirra sem mættu heim til Helga
síðustu helgi. MYND/BJARNI GRÍMSSON
Hrafn Thoroddsen leikur bæði á
gítar og píanó með Helga en hann
hefur gert garðinn frægan með
sveitunum Jet Black Joe og Ensími.
Þorvaldur Þór Þorvaldsson tromm-
ari er sérstakur lánsmaður í þessu
verkefni og heldur um ýmsan áslátt.
Ingólfur Sigurðsson, trommari
Reiðmannanna, sló fyrst í gegn í
sveitinni Rauðir fletir og hefur um
árabil verið eftirsóttur í sínu fagi.
Um er að ræða eitthvert vinsæl-
asta sjónvarpsefni sem birst hefur
á skjánum hér á landi. Þjóðin hefur
dillað sér heima í stofu síðustu
laugardagskvöld og má ætla að
engin undantekning verði á því í
kvöld þegar síðasta skiptið rennur
upp.
Viðbrögðin á Twitter hafa verið
frábær og þau bestu valin til að birt-
ast á sjónvarpsskjám landsmanna
en hægt er að skoða öll viðbrögðin
undir myllumerkinu #heimamed-
helga.
2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN