Fréttablaðið - 02.05.2020, Síða 28
Það spýttu allir í
lófana, við eigum
alveg sjúklega góða
nágranna og vini sem
ákváðu að taka smá
áhættu með okkur og
við reyndum að halda
okkur í tveggja metra
fjarlægð og svona.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Þegar Sigríður, eða Sigga eins og margir þekkja hana, hafði nýlokið fæðingarorlofi með
yngri dóttur sína, fór fjölskyldan í
það verkefni að flytja og koma sér
fyrir á nýju heimili. „Við byrjuðum
mars á því að fá afhenta íbúð og
fórum í framkvæmdir. Við rifum
niður veggi og bjuggum í bíl
skúr um miðjan mars og fram að
páskum á meðan það var verið að
framkvæma og við krosslögðum
fingur að enginn myndi smitast í
þeim aðstæðum. Það tókst.“
Þetta verður allt í lagi
Þá var í nógu að snúast, að flutn
ing unum undanskildum. „Á
meðan var ég að kenna áfanga sem
heitir Rödd og texti á leiklistar
braut í FG á netinu með Zoom og
er í námi sjálf í Lista háskólanum á
Zoom og Teams. Þann ig að fram að
páskum var ást and ið ansi skraut
legt. Mantran mín þá daga var því:
Við erum öll, allur heimurinn, í
þessu saman, þetta verður allt í
lagi og það eru allir bara ljótir á
fundum á netinu,“ segir Sigga og
hlær. „Það sem bjargaði mér líka
dálítið var að ég mætti í þjálfun
Ætlar ekki að halda afmæli í Zoom
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, leiklistarkennari, háskólanemi, söng- og leikkona, hefur undanfarnar
vikur verið önnum kafin við að koma sér fyrir á nýju heimili ásamt fjölda annarra verkefna.
Sigríður Eyrún
segir fjölskyld-
una himinlif-
andi með nýja
heimilið. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
á netinu með leikfimihópnum
mínum í Hreyfingu sem Dísa
Dungal leið ir, þá hélt ég í einhverja
rútínu, ann ars hefði ég örugglega
farið yfir um.“
Það getur varla verið einfalt
að flytja í miðjum heimsfaraldri
en með dyggri aðstoð vina og
vanda manna og fjárfestingu í
iðn aðarmönnum hafðist þetta.
„Það spýttu allir í lófana, við eigum
alveg sjúklega góða nágranna
og vini sem ákváðu að taka smá
áhættu með okkur og við reyndum
að halda okkur í tveggja metra
fjar lægð og svona. En eins og að
brjóta niður veggi og þannig tók
rosalega stuttan tíma,“ segir Sigga.
„Svo vorum við með iðnaðar
menn í vinnu, við ákváð um að
eyða öllum peningunum sem við
áttum í það og borga, þannig að
þetta myndi gerast hratt. Það er
auðvitað margt lokað þannig að
það er enn þá pínu allt úti um allt,
innréttingin er ekki öll komin og
þannig en vá, við erum í geggjað
fínni íbúð með æðislegum gólfum,
hún er nýmáluð og okkur líður
vel. Við erum líka komin með
flyg il í stofuna og getum spilað og
sung ið,“ segir Sigga létt í bragði en
eiginmaður hennar Karl Olgeirs
son hefur starfað við tónlist um
árabil.
Komin af stað í súrdeiginu
Það hefur gengið vel hjá þeim
hjónum að púsla öllu sam an. „Kalli
er tónlistarstjóri í Kardimommu
bænum í Þjóðleikhúsinu og það
frystist allt. Við fengum enga
pössun eins og ég hafði gert ráð
fyrir á lokasprettinum í náminu en
á móti kom að Kalli er heima. Hann
hefur getað nýtt tímann þegar hún
sefur og skotist frá að taka upp
eitt og eitt lag og semja á fullu. Við
kvörtum ekki, maður sakn ar nátt
úrulega vina og fjölskyldu en okkur
líður rosavel.“
Þegar Sigga er spurð að því hvort
hún hafi getað nýtt tímann í eitt
hvað annað en flutninga, segir hún
að það hafi verið eitthvað lítið um
það. „Það eru allir að tala um að þau
hafi svo mikinn tíma og hafa jafn
vel klárað allt á Netflix en ég kann
ast ekki við það, ég hef aldrei verið
svona upptekin. Ég er líka nýkomin
úr fæðingarorlofi svo það er ekki
mikil breyting þar á, ég var farin að
baka súrdeigsbrauð í orlofinu áður
en þetta ástand kom til sögunnar.
Núna er ég aðeins að færa mig yfir
í súrdeigspitsur, það er svona eina
þróunin.“
Núna hefur f lestum viðburðum
verið af lýst næstu mánuðina.
Hvers saknarðu mest?
„Ég sakna þess rosalega að fara í
leikhús. Ég er búin að vera að horfa
mikið á leikhúsið á netinu vegna
námsins og til að senda á nemendur
og þá áttar maður sig á hvað það er
mikilvægt að vera á staðnum hvað
leikhús snertir, það er bara ekki
það sama að horfa á þetta á skjá. Ég
sakna líka mikið að geta rölt niður
á Kex og farið á djasstónleika og séð
livetónlist. HönnunarMars hefur
líka alltaf verið skemmtilegur og
nóg af tónleikum sem maður hefði
viljað sjá. Vonandi fer maður að
geta kíkt meira út.“
Þá styttist í afmæli Siggu og
óráðið er hvernig því verði fagnað.
„Ég er að gæla við að fá nokkrar vel
valdar vinkonur í garðinn ef veður
leyfir. Ég get ekki fleiri Zoomfundi
og ætla ekki að halda upp á afmælið
í Zoom. Ég verð allavega með Kalla
og stelpunum, nema veðrið bjóði
upp á annað,“ segir Sigga og bætir
við að Kalli leggi alltaf mikið upp
úr afmælinu hennar. „Kalli dekrar
alltaf rosalega við mig á afmælinu.
Hann vaknar fyrir allar aldir og
gerir svakalegan dögurð, sama
hvaða dagur er. Ég er heppinn að
eiga afmæli á laugardegi núna svo
ég þarf ekki að vera með allt of
mikið samviskubit yfir því að hann
fari á fætur of snemma.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R