Fréttablaðið - 02.05.2020, Page 66
Ásdís María Viðars-dóttir er er alin upp í Breiðholtinu en vinnur núna í Berlín þar sem hún kláraði BA í tónsmíðum á
seinasta ári. Ásdís gerir það núna
gott með hljómsveitinni Banglist,
ásamt því semja tónlist fyrir aðra
tónlistarmenn og útgefendur.
„Já, ég hef alltaf verið syngjandi
en það var ekki jafn krúttlegt og
það hljómar. Ég var alltaf, alltaf,
alltaf að syngja samt, mínar elstu
minningar af leikskóla eru af mér að
syngja Pretty Fly For a White Guy í
rólunum á leikskólanum og ég hélt
þessu áfram í grunnskóla. Ég trufl-
aði bekkinn minn alveg rosalega
með því að vera alltaf að syngja og
kennarinn minn í fyrsta bekk hafði
orð á því við móður mína að þetta
gengi ekki lengur, það yrði hrein-
lega að koma mér einhvers staðar
að í söng. Fella- og Hólakirkja er
með barnakór og þrátt fyrir ungan
aldur var gerð undanþága og ég fékk
að vera með,“ segir Ásdís um upphaf
tónlistarferilsins.
Öðruvísi tjáning
Hún segir það vera sér nokkuð nátt-
úrulegt að koma fram, og þannig
hafi það verið alveg frá því í barn-
æsku.
„Pabbi minn var alltaf mjög
montinn af litlu söngkonunni og ég
var oft látin syngja fyrir alls konar
ókunnugt fólk. Ég veit ekki hvort
ég myndi kalla það „ófeimni“, mér
líður oft mjög óþægilega í kringum
margt fólk. En þegar maður er á
sviði þá er maður að tjá sig allt öðru-
vísi og það er miklu auðveldara að
skilja mig í gegnum tónlist, fólk
hefur mikið verið að kalla þetta
athyglissýki en það eru bara „bad
vibes“,“ segir hún.
Í síðustu viku kom út lagið Turn
the lights down með hljómsveit
Ásdísar, Banglist.
„Lagið fjallar um einmanaleika
og höfnun, hvernig manni líður
þegar einhver hefur brotið í manni
hjartað. Þegar maður er einmana
þá vill bara maður bara láta trufla
sig, að einhver fái þig til að hugsa
um eitthvað annað. Það kannast
f lestir við það, sérstaklega á landi
sem er jafn lítið og Ísland. Að vilja
ekki láta finna á sér veikan punkt og
bara halda áfram eins og ekkert hafi
í skorist. Það er það sem lagið snýst
um; að hunsa eigin tilfinningar bara
svo að maður þurfi ekki að finna
fyrir þeim. Mjög dramatískt, þess
vegna var okkur svo mikilvægt að
þetta lag hljómaði ekki eins og það
væri sorglegt.“
Knappur tími
Júlía Tómasdóttir gerði myndband-
ið, og segir Ásdísi engan annan hafa
treyst sér í að gera flott myndband á
svona skömmum tíma.
„Við höfðum mjög stuttan tíma
til að taka upp myndbandið áður en
lagið kæmi út. Enginn þorði í þetta
nema Júlía. Við höfðum tvo daga
til að taka þetta upp og ákváðum
að það væri best að gera það heima
Tjáir sig best í
gegnum tónlistina
Ásdís María býr í Berlín þar sem hún kemur reglulega fram með
hljómsveitinni Banglist. Hún reynir að komast yfir löngunina til
að flýja ástandið og fara heim til mömmu, en nýtir tímann vel í að
semja lög og horfa á Survivor með kærastanum og köttunum.
Ásdís í Amster-
dam við tökur á
myndbandinu við
Turn the lights down
með hljómsveitinni
Banglist.
MYND/YLVA
Ásdís María
og hljómsveitin
Banglist að spila í
beinni hjá Fritz Radio
í Þýskalandi.
MYND/YLVA
2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ