Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016 Umhverfis- og dýraverndarsinn- inn Jane Goodall var í heimsókn á Ísland fyrr í þessum mánuði. Goodall er heimþekkt fyrir rann- sóknir sínar á simpönsum og hefur með rannsóknum sínum sýnt fram á að dýr upplifa sterkar til- finningar eins og söknuð, sorg og afbrýðisemi. Jane Goodall var 22 ára gömul og án háskólagráðu þegar hún fór til Kenía til að rannsaka simpansa, síðar rannsakaði hún einnig hegðun hýena og kolkrabba. Rannsóknirnar áttu síðar eftir að gerbreyta hugmyndum manna um dýr og tilfinningar þeirra. Goodall varð heimsfræg 28 ára gömul þegar National Geographic birti myndir af henni og fjallaði um rannsóknir hennar á simpösunum árið 1962. „Ég var átta ára þegar ég sagði móður minni að ég ætlaði að flytja til Afríku og vinna með dýrum þegar ég yrði stór. Sem barn átti ég mér tvær fyrirmyndir í lífinu og þær eru án efa ástæðan fyrir því að ég flutti til Kenía og fór að rannsaka og lifa með simpönsum. Önnur var Tarsan og hin Dagfinnur dýralæknir, eins kjánalega og það kann að hljóma í dag.“ Baráttukona og rithöfundur Á seinni árum hefur Goodall sinnt umhverfismálum í auknum mæli og er í dag, meðal annars, friðarfulltrúi Sameinuðu þjóðanna. Þrátt fyrir að vera 82 ára ferðast Goodall heims- horna á milli til að kynna boðskap sinn um náttúruvernd auk þess sem hún er höfundur fjölda bóka fyrir börn og fullorðna. Má þar nefna Inn the Shadow of Man, My Life with the Chimpanzees, Reason For Hope, Harvest of Hope og Seeds of Hope, sem fjallar um plöntuheiminn. Hún segir að vegna aldurs eigi hún líklega ekki mörg ár eftir til að halda fyrirlestra. „Ég er því á stans- lausum þeytingi um heiminn að bera út boðskap umhverfisverndar og reyna að veita fólki von um að það sé ekki orðið of seint. Ég er bjartsýn- ismanneskja og reyni að nota tím- ann vel. Satt best að segja er líf mitt stórfurðulegt og ég hef ekki stoppað heima hjá mér í meira en þrjár vikur í mörg ár,“ segir Goodall. Verðum að hætta að eitra matinn Í samtali við Bændablaðið sagðist Goodall ekki hafa sérfræðiþekkingu á landbúnaði en að hún hefði mik- inn áhuga á honum og hvert hann stefndi. „Við verðum öll að borða og að sjálfsögðu viljum við borða hollan og góðan mat og besta leiðin til að gera það er að borða meira af græn- meti og mat sem er ræktaður heima fyrir. Þannig vitum við best hvað við erum að borða og drögum úr meng- uninni sem felst í að flytja matvæli langar leiðir. Notkun á sýklalyfjum í landbún- aði til að auka vaxtarhraða dýra er líka skelfileg þróun og vegna hennar eru að verða til ofurbakteríur sem geta smitast í fólk úr matvælum og engin sýklalyf ráða við. Ég var að lesa grein fyrir stuttu þar sem því er haldið fram að tími sýklalyfja sé liðinn og að í kjölfar þess geti sýk- ingar sem auðvelt hefur verið að ráða við orðið ólæknandi og banvænar. Í mínum huga er þetta ógnvekjandi staðreynd sem á eftir að valda gríðar- legum sársauka og hörmungum. Annað sem er verulegt áhyggju- efni í landbúnaði er gríðarleg notk- un á skordýra- og illgresiseitri til að auka uppskeruna og aukin notkun á erfðabreyttum fræjum. Við verðum að hætta að eitra jarðveginn og matinn og nota rækt- unaraðferðir og beita varnarráðum sem forfeður okkar þekktu og notuðu áður en við eyðileggjum Jörðina enn meira. Reynslan sýnir að þar sem mikið er notað af illgresiseitri mynda margar plöntur sem á að drepa þol við eitrinu og því þarf sífellt að auka styrkleika eiturefnanna eða nota blöndu margra efna til að drepa þær. Síðan safnast eiturefnin upp í jarð- vegi og grunnvatni. Ég er sannfærð um að erfðabreytt eða glyfósatþolin fræ eigi ekki eftir að bjarga heiminum. Glyfósat var aðalinnihaldsefnið í Agent Oranges sem Bandaríkjaher notaði til að eyða skógum í Víetnam á sínum tíma og hafði hræðilegar hörmungar í för með sér. Auk þess er búið, að minnsta kosti í mínum huga, að sanna að gly- fósat sé krabbameinsvaldandi. Það er líka ófært að risafyrirtæki eigi einkarétt á fræi og geti bann- að bændum að safna því úr eigin framleiðslu og nýta. Svo er ótrúlegt til þess að hugsa að ef erfðaefni úr einkaleyfisbundnum erfðabreyttum plöntum berst í gamlar ræktunar- tegundir þá geti einkaleyfishafinn kært bændur fyrir að nota fræ af plöntum sem þeir hafa sjálfir ræktað og safnað fræinu af. Ég er algerlega á móti því sem fyrirtæki eins og Monsanto eru að gera og satt best að segja er hissa á að það fyrirtæki sé ekki fyrir löngu búið að lögsækja mig. Ég er líka sannfærð um að orsakir margra þeirra sjúkdóma sem mann- kynið berst við í dag sé að finna í þeim eiturefnum sem notuð eru við matvælaframleiðslu. Sjálf tel ég að skynsamlegasta leiðin í landbúnaði sé að fjölga smábýlum og auka hlut þeirra í matvælaframleiðslu í heiminum. Rannsóknir sýna að til langs tíma eru erfðabreyttar plöntur og einrækt- un ekki að skila meiri uppskeru en gamlar ræktunarsortir og samplöntun margra tegunda,“ segir Goodall. Plöntur ekki síður áhugaverðar en dýr Goodall segir að þrátt fyrir að henn- ar rannsóknir hafi snúist um dýr sé plöntuheimurinn ekki síður fjöl- breytilegur og áhugaverður og hræði- legt hvernig er verið að eyða skógum og búsvæðum sjaldgæfra plantna. „Í Indónesíu og víðar um heim er verið að fella og brenna niður frumskóga á hundruð þúsundum hektara svæði til að ryðja land undir einræktun á pálmaolíu. Tegundafjölbreytni plantna er á sama tíma að minnka vegna ágangs á búsvæði þeirra og tegund sem er útrýmt hverfur að eilífu. Sem betur fer er til fólk í heiminum sem vinnur ötullega að því að bjarga sjaldgæf- um plöntum, alveg eins og fólk sem vinnur að verndun dýra.“ Eigum bar eina Jörð Goodall sagði meðal annars á blaða- mannafundi vegna heimsóknar sinnar hingað til lands að staðan í umhverfismálum í heiminum væri grafalvarleg og alvarlegri en flestir gerðu sér grein fyrir. Hún segir eitt mikilvægasta nátt- úruverndarmálið í dag vera að draga úr fjölgun mannkynsins. Máli sínu til stuðnings sagði hún að ef allir í heim- inum tækju upp sama lífsmáta og Vesturlandabúar dygði ein Jörð engan veginn til að standa undir honum og við þyrftum að minnsta kosti fimm eða sex Jarðir til að fullnægja kröfum okkar. „Við sem byggjum þennan heim í dag verðum því að draga úr kröfum okkar og minnka neysluna.“ Goodall sagði merkilegt að sú dýrategund sem teldi sig þá gáfuð- ustu á Jörðinni væri sú tegund sem væri að skemma hana mest og myndi tortíma sjálfri sér með sama áfram- haldi. Þrátt fyrir þetta segist Goodall vera bjartsýn og eygja von um að hægt sé að snúa þessari þróun við en til þess verðum við öll að taka höndum saman og breyta um lífsstíl og setja náttúruna og Jörðina í heild í forgang. /VH Original varahlutir Ert þú ekki örugglega með AGCO Parts í þinni vél? Original varahlutir fyrir Massey Ferguson og Valtra Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Jane Goodall á Íslandi: Auka þarf hlut smábýla í framleiðslu matvæla í heiminum Mynd / VH Mynd / VH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.