Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016 Ungt fólk í Skeiða- og Gnúpverjahreppi: Stofnar „Félag um atvinnu- uppbyggingu við Þjórsá“ Félag um atvinnuuppbyggingu við Þjórsá var stofnað í mars og fyrsti aðalfundur þess var á sum- ardaginn fyrsta. „Sá fundur var vel sóttur og sköpuðust skemmtilegar umræður um framtíð sveitarinnar. Félagið er í raun umræðuvettvangur fyrir fólk sem hefur áhuga á að auðga okkar fallegu sveitir með atvinnutækifær- um tengdum Þjórsá,“ segir Pálína Axelsdóttir Njarðvík. Hún, ásamt Önnu Björk Hjaltadóttur, Jakobi Eiríkssyni, Eddu Pálsdóttur og Iðunni Pálsdóttur, fóru á síðasta fund sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps og sögðu frá félaginu, hlutverki og framtíðarsýn þess. Leiða saman frumkvöðla „Markmið okkar er að leiða saman frumkvöðla um atvinnusköpun, ferðaþjónustuaðila og heimamenn. Við höfum að leiðarljósi að atvinnu- sköpunin verði sveitunum til góðs og leggjum áherslu á hugmyndir og framtak heimamanna. Einnig er skýr stefna um að viðhafa vönduð vinnu- brögð við skipulagningu atvinnu- tækifæra og að umgengni við nátt- úruna sé þar í forgrunni. Með góðri skipulagningu má forðast átroðning og tryggja að allir geti notið þess sem byggt er upp,“ segir Pálína, aðspurð um markmið og tilgang félagsins. Ferðamenn streyma í Þjórsárdal Pálína segir mikla möguleika í sveitinni varðandi ferðaþjónustu í Þjórsárdal. „Já, eins og staðan er í dag streyma ferðamenn þar í gegn en skilja sára- lítið eftir þar sem það er lítil þjón- usta eða afþreying til að bjóða þeim. Hægt væri að tvinna ferðaþjónustuna saman við landbúnaðinn á svæðinu með beint frá býli-sveitamarkaði. Til að laða að fólk sem sinnir fjöl- breyttum skrifstofustörfum erum við með hugmynd um að sveitarfélagið eða einhver einkaaðili leigi skrif- stofuaðstöðu fyrir fólk til að vinna í fjarvinnu.“ Hún leggur áherslu á að það sé ekki hlutverk félagsins að standa í framkvæmdum, heldur að styðja við þá sem koma með góðar hugmyndir og hjálpa þeim að láta þær verða að veruleika, þ.e.a.s., virkja fólkið á svæðinu. „Síðustu helgina í ágúst stefnum við á að halda vinnustofu þar sem allir geta komið með hugmyndir varðandi framtíð sveitarinnar og þá atvinnumöguleika sem við höfum hér. Við vonumst eftir því að sjá sem flesta þar,“ segir Pálína að lokum. /MHH Pálína með fallegt lamb en hún býr í Eystra-Geldingaholti og var að útskrifast með BS-gráðu í sálfræði. Mynd /MHH Sigurður Ingi og Guðlaug ýttu á takkana og opnuðu þar með formlega nýju Yleiningarverksmiðjuna á Flúðum. Myndir / MHH Ný og glæsileg Yleininga- verksmiðja á Flúðum Sigurður Ingi Jóhannsson og Guðlaug Kristinsdóttir, stjórn- arformaður Límtré Vírnet, gangsettu nýja og glæsilega Yleiningarverksmiðju á Flúðum 9. júní að viðstöddu fjölmenni. „Í nýju verksmiðjunni vorum við að taka í notkun nýja framleiðslu- línu til framleiðslu á steinullarein- ingum, samkvæmt nýjustu og bestu tækni. Framleiðslubúnaðurinn er hannaður og smíðaður í Suður- Kóreu af fyrirtæki sem heitir IL Kwang Metal Forming. Nafnið á fyrirtækinu, IL Kwang, þýðir á íslensku „Eilíf sól“ og bindum við vonir við að þessi ein- ingalína frá þeim eigi eftir að flytja okkur mikið af sólargeislum inn í starfsemi okkar í Límtré Vírnet á Flúðum um komandi framtíð,“ segir Stefán Logi Haraldsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Nýja húsnæðið er um 2.700 m2 að stærð. /MHH Guðmundur Magnússon, húsa- og þúsundþjalasmiður á Flúðum, mætti að sjálfsögðu við opnunina en hann er guðfaðir Límtrésverksmiðjunnar á Flúðum. Heimir og Sindri Blær Jónsson, 14 ára frændi hans, sem fékk að sitja í vélinni þegar hún var keyrð heim frá Reykja- vík í Birtingaholt. Aftan í er Fliegl-heyvagn sem var líka keyptur samhliða vélinni. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson. Stærsta dráttarvél landsins í Birtingaholti − „Frábær græja“ segir Heimir Sigurðsson sem vinnur á vélinni Nýlega fékk verktakafyrirtækið Fögrusteinar ehf. í Birtingaholti í Hrunamannahreppi, sem er í eigu Sigurðar Ágústssonar og Fjólu Kjartansdóttur, afhenta stærstu dráttarvél landsins. Um er að ræða 16 tonna CLAAS Xerion 4000 vél með 419 hestafla mótor sem flutt er inn af Vélfangi. „Þetta er frábær græja sem hefur staðist allar okkar væntingar og miklu meira en það. Nú er ég að læra á vélina, lesa mig til og sjá hvernig er best að vinna á henni og hvað hún getur gert fyrir mig. Ég og við öll í Birtingaholti erum í skýjunum með þennan nýja fjölskyldumeðlim,“ sagði Heimir Sigurðsson hlæjandi en hann mun vinna á vélinni og er sonur Sigurðar og Fjólu. Vélin er sú langstærsta sem hefur verið flutt til landsins til að nota á sveitabæ í verktöku. /MHH Egilsholti 1 310 Borgarnesi Verslun opin 8-18 virka daga 10-16 laugardaga, sími: 430-5500 www.kb.is -Annar 30 kálfum eða 50 lömbum -Mjólkin geymist köld -Mjólkin hitnar um leið og sogið er -Einföld og áreiðanleg -Vinnusparnaður -Ungviðið hefur frjálsan aðgang að mjólk -139.900kr með vsk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.