Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016
Elísa Ösp Valgeirsdóttir er fædd og
uppalin í Árnesi II í Trékyllisvík og
var nemandi í Finnbogastaðaskóla
fyrstu níu ár grunnskóla.
Hún hefur verið skólastjóri í
Finnbogastaðaskóla frá 2009 auk
þess sem hún og maðurinn hennar,
Ingvar Bjarnason, tóku við búskap
í Árnesi II af foreldrum hennar.
Elísa hefur sagt stöðu sinni lausri
frá og með 1. nóvember næstkom-
andi og hjónin ætla einnig að bregða
búi.
„Elsti sonur okkar fer í tíunda
bekk næsta haust og þar sem fáir
nemendur eru í skólanum er ekki
mikill félagsskapur á hans reki hér.
Síðasta árið í grunnskóla hefur ekki
verið kennt við Finnbogastaðaskóla
þar sem félagsþörfin er orðin svo
sterk hjá unglingunum og því teljum
við rétt að flytja með honum. Við
eigum þrjú börn og tvö þeirra voru
í skólanum í vetur. Auk okkar barna
voru þrjú börn í skólanum síðast-
liðinn vetur. Tvö barnanna eru frá
Bæ og þar sem sú fjölskylda er að
flytja burt er staðan í dag þannig að
eitt barn er skráð í skólann næsta
vetur. Það er ólíklegt að það verði
kennsla í skólanum næsta vetur
nema að hingað flytji fólk með börn
á grunnskólaaldri. Við erum bjartsýn
á að svo verði og að hingað ráðist
gott og dugandi fólk.“
Í fámennu sveitarfélagi eins
og í Árneshreppi er skólinn ein af
þungamiðjum samfélagsins og mikið
áfall leggist skólahald niður. Auglýst
hefur verið eftir nýjum skólastjóra og
er lögð áhersla á að ráða fólk með
börn á grunnskólaaldri.
Samkennsla
„Finnbogastaðaskóli er fámenn-
asti skóli landsins og eins og gefur
að skilja er kennsla í fámennum
skóla allt öðruvísi en í skólum með
mörgum nemendum í bekk. Börnin
fimm í skólanum voru í fyrsta og
upp í níunda bekk og því um mikla
breidd í námsefni að ræða. Auk mín
var Vigdís Grímsdóttir kennari við
skólann.
Kosturinn við fámenna skóla er
að kennararnir hafa góðan tíma til að
sinna hverjum og einum nemanda en
á sama tíma þurfa þeir að hafa góða
yfirsýn yfir námsefni margra árganga
og getu nemendanna í hverju fagi.
Sami kennari þarf kannski að kenna
þrjár námsgreinar í sömu kennslu-
stundinni þannig að allir fái sitt og
þannig kennsla getur verið mjög
krefjandi.
Eldri börnin þurfa iðulega meiri
frið við námið en kennsla yngri barna
er mikið munnleg og því oft kúnst að
púsla kennslunni saman. Börn eru
reyndar ótrúlega fljót að aðlagast
og sem betur fer hefur kennslan og
félagslífið í skólanum gengið vel.
Undanfarin ár höfum við fengið
til okkar gestanemendur og að heim-
sókninni lokinni hafa þau helst ekki
viljað fara, þannig að hér er gott að
vera,“ segir Elísa.
Árneshreppur hefur upp á
margt að bjóða
Elísa segir að þrátt fyrir að
Árneshreppur hafi upp á margt að
bjóða verði þeir sem þangað flytja
virkilega að langa til þess og þrá
að lifa öðruvísi lífi en borgarlífi og
stökkva á tækifærið þegar það býðst.
„Hér er flest sem samfélag þarf upp
á á bjóða, mannlífið er gott, hér er
búð og banki, skóli, sundlaug, félags-
heimili og fleira.“
Ekki alveg farin
Elísa og Ingvar tóku við búskap í
Árnesi II af foreldrum Elísu áramótin
2011 og 2012. Megninu af bústofn-
inum verður slátrað í haust en for-
eldrar Elísu, Valgeir Benediktsson
og Hrefna Þorvaldsdóttir, ætla að
fóðra nokkrar kindur fyrir Elísu og
Ingvar næsta vetur. „Við erum því
ekki alveg farin.“
Með sterkar rætur í sveitinni
Elísa segir að þrátt fyrir fámenni í
Árneshreppi sé alltaf eitthvað um
að vera í sveitinni sem togar hana
aftur þangað. „Náttúran er falleg og
fjölskyldan er hér. Svo er ég bara
með sterkar rætur í sveitinni og þrátt
fyrir að við séum að flytja verðum
við örugglega með annan fótinn hér
áfram.“
Elísa og fjölskylda hennar eru
að flytja til Hafnarfjarðar þar sem
þau bjuggu áður en þau fluttu í
Árneshrepp. /VH
Elísa Ösp Valgeirsdóttir, skólastjóri Finnbogastaðaskóla og bóndi í Árnesi II. Mynd / VH
Finnbogastaðaskóli. Mynd / HKr.
Kirkjan í Árnesi. Mynd / HKr.
Garðyrkjubændur!
Verslun og markaður á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir samstarfi við garðyrkjubændur
Kartöfl ur − blóm − grænmeti
Nánari upplýsingar veittar í síma 899-5128
Gott mannlíf í Árneshreppi:
Skólastjóri bregður búi