Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 64

Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016 Í nóvember 2006 fluttum við hjón- in hingað að Kálfafelli ásamt þremur börnum, en þá höfðum við verið búsett á Sauðárkróki um nokkurra ára skeið. Heiða er fædd og uppalin í Skagafirðinum, frá Ketu í Hegranesi, en Bjössi er frá Kálfafelli og uppalinn þar. Við tókum alfarið við búrekstrin- um af foreldrum Bjössa um ára- mótin 2006–7, en þá voru hér eingöngu kýr og nautgripir. Síðan við tókum við höfum við breytt fjárhúsi, sem byggt var árið 1993, í uppeldishús með áburðar- kjallara fyrir kálfa og geldneyti. Höfum auk þess tekið íbúðarhúsið í gegn að hluta til og endurnýjað vélar og tækjakost talsvert. Býli: Kálfafell 1b. Staðsett í sveit: Fljótshverfi í Vestur-Skaftafellssýslu. Ábúendur: Björn Helgi Snorrason og Ragnheiður Hlín Símonardóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við hjónin búum hér á Kálfafelli ásamt fjórum af börnunum okkar, þeim Hafdísi Gígju (18 ára), Írisi Hönnu (16 ára), Símoni Snorra (10 ára) og Daníel Smára (8 ára). Hafdís Gígja og Íris Hanna eru dætur Heiðu af fyrra sambandi en Bjössi á fyrir dæturnar Ágústu Margréti (16 ára), Amalíu Rut (15 ára) og Ragnheiði Ingu (14 ára), sem koma hér öðru hvoru í heim- sóknir. Strákarnir eru sameign okkar hjónanna. Við eigum border collie tíkina Freyju og köttinn Pétur sem hefur fylgt okkur frá upphafi okkar búskapar. Kettlingurinn Páll er svo nýfluttur hingað til okkar til að veita Pétri selskap í ellinni og létta honum lífið á músavaktinni. Stærð jarðar? Heildarstærð jarðar u.þ.b. 5.000 ha. Á Kálfafelli er þríbýlt og kirkjustaður. Gerð bús? Blandað bú, aðallega mjólkur- og nautakjötsframleiðsla. Fjöldi búfjár og tegundir? Við erum aðallega með kúabú, eigum um 40 mjólkandi kýr í básafjósi með rennibrautarkerfi. Erum einnig í nautaeldi, setjum alla kálfa á og ölum kvígurnar upp til mjólkurframleiðslu en nautin til kjötframleiðslu. Höfum einnig keypt kálfa til uppeldis af og til. Núna erum við með um 105 naut og kvígur í uppeldi, allt frá mjólk- urkálfum til tveggja ára aldurs. Við eigum um 20 kindur til heimilisins og 15 hross auk 5 folalda. Hænurnar eru 5 auk nokkurra hænuunga sem eru nýklaktir úr eggjunum. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Allir dagar byrja með morgun- mjöltum, gjöfum og gegningum. Útiverkin eru mörg sem þarf að sinna og það er alltaf í næg horn að líta, allan ársins hring. Jarðrækt á vorin og heyskapur á sumrin, smala- mennskur á haustin og eitt og annað eins og t.d. almennt viðhald sem reynt er að sinna yfir vetrarmánuðina eins og kostur er. Dagarnir enda flestir á kvöldmjöltum, þó oft sé líka gripið í einhver verk eftir mjaltir á kvöldin, sérstaklega yfir sumartím ann. Við heyjum töluvert út í frá, á nágranna- bæjum í Fljótshverfi og austast á Síðu. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Flest bústörfin eru skemmtileg, hvert á sinn hátt. Bjössa finnast þó alltaf gripaflutningar frekar hvimleiðir og Heiðu leiðist pappírs- vinnan í kringum búskapinn. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Það veltur á þróun afurðaverðs. Draumurinn er að byggja upp, stækka fjósið og bæta vinnuaðstöðuna til muna. Eins og er metum við hlutina þó þannig að ekki séu forsendur fyrir því að fara í miklar breytingar. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Sumt er í góðu lagi og erum við þakklát fyrir það sem vel er gert. Nauðsynlegt væri að málsvarar okkar bænda væru öfl- ugri í að leiðrétta það þegar farið er með rangt mál í fjölmiðlum og beittu sér enn frekar fyrir aukinni fræðslu til hins almenna neytanda. Okkur finnst skortur á að það sem ranglega er sett fram sé leiðrétt og útskýrt á réttan og vel framsettan hátt. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Vonandi sem best, hann er jú ein af aðal undirstöðum þess að við séum sjálfbær þjóð sem ekki er upp á aðra komin með þá nauðsynjavöru sem matvæli eru. Við framleiðum úrvals vörur á Íslandinu góða. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Okkur hefur sýnst útflutningur vera býsna fallvaltur og erfitt að stóla á hann, a.m.k. núna þegar offramleiðsla á mjólk er allt of víða vandamál erlendis. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólkin beint úr kúnum og eggin úr hænunum, smjör, ostur, jógúrt og skinka. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Sitt sýnist hverjum. Lamba-, nauta- og folaldasteikur klikka auðvitað aldrei með góðu meðlæti og sveppaostasósu. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Ætli það hljóti ekki að vera þegar við vöknuðum að morgni 22. maí 2011 og sáum ekki handa okkar skil vegna öskufalls úr Grímsvötnum. Þegar við héldum til fjósverka þann morgun tókum við á okkur stefnuna enda fjós- ið hvergi sjáanlegt í kolsvörtum öskubylnum. Þurftum svo að þreifa okkur eftir veggjunum til að finna fjóshurðina. Þögnin var svo mikil í fjósinu að við hefðum getað heyrt saum- nál detta, það er ekki oft sem kýr setur svona algjörlega hljóðar. Við vorum nýlega búin að setja út kvíg- ur og allt lambfé var nýkomið út í hagana þegar þetta var. Þetta var ótrúlegur tími og erfitt meðan á því stóð en betur fór en á horfðist til lengri tíma litið. Líf og lyst Bærinn okkar Frönsk eggjakaka, Egg Benedict og piparsteik Að þessu sinni erum við með franskt þema; nokkra sígilda rétti sem allir kunna að meta. Frönsk eggjakaka › 2 stór egg › 2 matskeiðar mjólk › Klípa af salti og ferskur malaður svartur pipar › 1 matskeið ósaltað smjör Hægt er að fylla eggjakökur með margs konar fyllingu. Aðferð Setjið saman egg, mjólk, salt og pipar í skál og blandið mjög vel með gaffli eða handþeytara. Setjið viðloðunarfría pönnu á elda- vélina. Hitið yfir miðlungsháum hita. Þegar pannan er orðin heit, bætið þá smjöri við. Hreyfið pönnuna til svo smjörið dreifist jafnt, þar til það hefur alveg bráðnað. Bætið þá eggj- unum við og látið þau hitna örlítið. Hrærið þá kröftuglega til að eggið eldist jafnt. Þegar eggin eru að verða stíf, hristið pönnuna svo eggin losni frá pönnunni. Notið spaða til þess ef þess þarf. Þá er pönnunni hallað í 45 gráður og eggjakakan vandlega brotin saman í umslag. Dragið úr hitanum til að koma í veg fyrir að eggjakak- an brúnist of mikið. Sígild frönsk eggjakaka á að vera ljós og falleg á að líta. Flytjið kökuna yfir á disk og reiðið fram. Þegar eggin eru að eldast bætið við hráefni að eigin vali áður en kakan er brotin saman. Tillögur að fyllingu fyrir eggjakökur: › Matskeið fínt saxaðar ferskar krydd- jurtir. Til dæmis steinselja, basilika, dill, fáfnisgras, graslaukur eða jafnvel blóðberg. › Tvær til þrjár matskeiðar eldað græn- meti eins og saxaður aspas, spínat eða annað grænmeti; til dæmis kúrbítur eða sveppir. › Tvær matskeiðar saxaður ferskur tómatur eða avókadó. › Tvær matskeiðar rifinn ostur; eins og brauðostur, geitaostur eða fetaostur. › Tvær matskeiðar hráskinka eða brauðskinka. Egg Benedickt: › 3 matskeiðar hvítvínsedik › 4 stór egg › 2 sneiðar útskorin hamborgarabrauð eða annað mjúkt brauð › 200 ml heit hollandais-sósa › 4 sneiðar Parmaskinka (eða önnur góð skinka) Aðferð Setjið yfir pott með vatni til suðu, að minnsta kosti tvo lítra, og bætið ediki í. Brjótið egg í fjóra litla bolla eða smáskálar. Takið til brauðið og ristið. Snúið vatninu hratt með písk þannig að það myndar hringrás og hellið egginu ofan í. Eldið í 2–3 mínútur og veiðið það svo upp úr með skeið sem er með götum á, þannig að ekk- ert af vatninu komi með. Endurtakið þetta með hin eggin, eitt í einu. Setjið sósu á hverja sneið og dreif- ið úr henni yfir brauðið. Næst er skinku sneið sett ofan á og loks eggið. Bætið svo hollandaise-sósu við, ofan á topp eggsins, og fram- reiðið strax. Hollandaise-sósa › 4 eggjarauður › 1 matskeið nýkreistur sítrónusafi › 1/2 bolli ósaltað brætt smjör › Klípa cayenne-piparduft › Klípa salt › Salt og pipar, eftir smekk Pipar-nautasteik › Ein matskeið olía › 25 g smjör › Tvær 400 g steikur (helst nautakjöt sem búið er að meyrna við bestu aðstæður í allt að 3–5 vikur) › Smá smjör › Tveir stórir skalottlaukar, fínt saxaður › 6 miðlungs sveppir sneiddir › 2 teskeiðar græn og bleik piparkorn mulin í mortéli eða merjið með bakinu á skeið › 3 matskeiðar koníak › 100 ml rauðvín › 200 ml góður nautakraftur (vatn og kraftur) › 3 matskeiðar rjómi Aðferð Hitið pönnu yfir miðlungsháum hita. Hellið olíu á pönnuna og hluta af smjörinu. Kryddið steikurnar með salti og nóg af ferskum muldum pipar og eldið að ykkar smekk (2 mínútur hvor hlið fyrir medi- um rare, 3 mín. á hvorri hlið fyrir miðlungseldun – fer eftir þykkt á steikunum). Gættu að því að brúna líka hliðarnar. Færið yfir á disk. Bætið þá við restinni af smjörinu á pönnuna, steikið skalottlaukinn og sveppina og bætið í piparkornum yfir miðlungs hita í fimm mínútur þar til skalottlaukur hefur létteldast og sveppirnir brúnast. Setjið steikurnar aftur á pönnuna. Hellið þá víninu á pönnuna, ef það er notað. Það má kveikja í víninu stutta stund á heitri pönnunni. Fjarlægið kjötið og setjið upp á disk. Hrærið rjóma og soði í, látið sjóða og leyfa því að þykkna örlítið. Smakkið til sósuna. Berið kjötið fram með frönskum kart öflum og piparsósunni. Matarkrókurinn – Bjarni Gunnar kristinsson MatreiðsluMeistari Kálfafell 1b Hafdís Gígja, Ragnheiður Inga, Amalía Rut, Ágústa Margrét og Íris Hanna. Fyrir framan; Daníel Smári og Símon Snorri. Ragnheiður Hlín og Björn Helgi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.