Bændablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016
Hæst dæmdu kynbótahross vor-
sýninga verða saman komin
á Hólum í Hjaltadal í næstu
viku. Verður þar um auðugan
garð að gresja fyrir ræktendur
og unnendur íslenskra hrossa,
enda kemur það besta í íslenskri
hrossarækt fram. Hér verð-
ur stiklað um sýningarskrá
Landsmóts hestamanna.
Kynbótasýningum fyrir
Landsmót lauk þann 10. júní síð-
astliðinn og hafa 166 hross áunnið
sér rétt til að koma fram á kynbóta-
sýningum á Landsmóti hestamanna
sem haldið verður að Hólum í
Hjaltadal dagana 27. júní til 3. júlí.
Árið 2014 hlutu 280 lágmarks-
einkunnir til þátttöku á Landsmóti
hestamanna og komu þá 231 hross
til dóms. Í ár er kerfið breytt, þar
sem fjöldi hrossa í hverjum flokki
er takmarkaður. Meðfylgjandi tafla
sýnir breidd einkunna í hverjum
flokki fyrir Landsmót í ár í sam-
anburði við einkunnarlágmörk og
hæstu einkunnir sem gefnar voru í
hverjum flokki á Landsmóti hesta-
manna árið 2014. Lægsta einkunn
hrossa í hverjum flokki hefur
hækkað í öllum flokkum nema
einum, í flokki 5 vetra hryssna.
Fjölbreyttur hópur kynbóta-
hrossa kemur fram í ár. Ættir þeirra
liggja í fjölmargar áttir sem sýnir
sig ekki síst í því að hrossin eru
undan 93 stóðhestum. Álfur frá
Selfossi á flest afkvæmi í hópn-
um, ellefu talsins. Átta hross eru
afkvæmi Orra frá Þúfu, en enn
fleiri eru undan Orrabörnum svo
áhrifa hans gætir víða. Stáli frá
Kjarri og Álffinnur frá Selfossi
eiga 6 afkvæmi hvor, en Ómur frá
Kvistum og Spuni frá Vesturkoti
eiga 5 afkvæmi hvor í hóp kyn-
bótahrossa í ár.
Einnig er áhugavert að skoða
hryssurnar sem standa baki kyn-
bótahrossunum. Ellefu hryssur eiga
fleiri en eitt afkvæmi í hópnum.
Ber þar helst að nefna heiðursverð-
launahryssurnar Álfadís frá
Selfossi, sem á fjögur afkvæmi,
og Þoku frá Hólum, sem á þrjú
afkvæmi.
Fjölhæfir einstaklingar
Aðeins tíu stóðhestar koma fram
í elsta flokki. Hæstu einkunn allra
kynbótahrossa í vor hlaut Hrafn
frá Efri-Rauðalæk. Hrafn er undan
Markúsi frá Langholtsparti og Hind
frá Vatnsleysu. Hrafn hlaut 9,03 fyrir
kosti á kynbótasýningu í Spretti á
dögunum, 8,55 fyrir sköpulag og
8,84 í aðaleinkunn. Þetta er þriðja
Landsmót sem Hrafn verður sýndur,
en hann varð í 2. sæti 4 vetra stóð-
hesta í Reykjavík árið 2012 og í 3.
sæti 6 vetra stóðhesta á Hellu 2014.
Þjálfari hans og sýnandi er Daníel
Jónsson.
Miklar hæfileikasprengjur voru
sýndar í flokki 6 vetra stóðhesta í vor
en tuttugu stóðhestar hlutu þátttöku-
rétt á Landsmóti. Konsert frá Hofi er
þar efstur á blaði. Hann var af mörg-
um talinn hestur Landsmóts hesta-
manna árið 2014. Kom hann þá fram
4 vetra, hlaut 8,72 í aðaleinkunn, þar á
meðal einkunnina 10 fyrir tölt. Hann
hlaut 8,78 í aðaleinkunn á kynbóta-
sýningu í Spretti, 8,56 fyrir sköpulag
og 8,78 fyrir kosti. Konsert er undan
Ómi frá Kvistum og Kantötu frá Hofi
en Jakob Svavar Sigurðsson er nú
sýnandi hans.
Efstur 5 vetra stóðhesta inn á mót
er Draupnir frá Stuðlum undan Kiljan
frá Steinnesi og heiðursverðlauna-
hryssunni Þernu frá Arnarhóli. Hann
hlaut 8,68 þegar hann var sýndur á
Sörlastöðum í Hafnarfirði í vor, 8,55
fyrir sköpulag og 8,77 fyrir kosti.
Trausti frá Þóroddsstöðum var hæst
dæmdi 4 vetra stóðhestur síðasta árs
og er nú næstefsti 5 vetra hestur inn á
Landsmót. Trausti er undan Þresti frá
Hvammi og Snót frá Þóroddsstöðum
Hann var sýndur í Spretti í Kópavogi
í vor og hlaut þá 8,52 í aðaleinkunn,
8,30 fyrir sköpulag og 8,67 fyrir kosti.
Fimmtán 4 vetra stóðhestar koma
fram á Hólum. Hæstu einkunn þeirra í
vor hlaut Valgarð frá Kirkjubæ undan
Freistingu frá Kirkjubæ og Sjóði frá
Kirkjubæ, sem einmitt er skráður til
leiks í A-flokki gæðinga á mótinu.
Valgarð var sýndur á Mið-Fossum
í Borgarfirði af Guðmundi Friðriki
Björgvinssyni og hlaut þá 8,44 í
aðaleinkunn. Hann hlaut 8,31 fyrir
sköpulag og 8,52 fyrir kosti. Næstur
á lista er Sirkus frá Garðshorni á
Þelamörk, undan Fáfni frá Hvolsvelli
og Sveiflu frá Lambanesi. Sirkus
hlaut 8,35 í aðaleinkunn þegar
hann var sýndur á Hlíðarholtsvelli
á Akureyri, 8,17 fyrir sköpulag og
8,47 fyrir kosti.
Sextán hryssur koma fram í flokki
7 vetra og eldri. Efst inn á mót er Þota
frá Prestsbæ undan heiðursverðlauna-
hrossunum Orra frá Þúfu og Þoku frá
Hólum. Þota hlaut 8,73 þegar hún var
sýnd á Mið-Fossum í Borgarfirði í
vor, 8,61 fyrir sköpulag og 8,81 fyrir
kosti. Þórarinn Eymundsson sýnir
Þotu. Nípa frá Meðalfelli er önnur inn
á mót í flokknum en hún er jafnframt
með hæstu einkunn allra hrossa fyrir
kosti fyrir mót. Nípa, sem er undan
Orra frá Þúfu og Esju frá Meðalfelli,
hlaut 9,05 fyrir kosti þegar hún var
sýnd í Spretti í Kópavogi í vor. Hún
hlaut 8,70 í aðaleinkunn og 8,16 fyrir
sköpulag.
Þrjátíu sex vetra hryssur verða
sýndar á Landsmótinu á Hólum.
Hæst inn á mót er efsta 4 vetra hryssa
Landsmótsins á Hellu, Hamingja frá
Hellubæ. Hamingja er undan Aðli frá
Nýjabæ og Þulu frá Hellubæ. Hún
var sýnd á Gaddstaðaflötum í vor og
hlaut þá 8,59 í aðaleinkunn, 8,61 fyrir
sköpulag og 8,58 fyrir kosti. Bergur
Jónsson er sýnandi hennar.
Alls verða 35 hryssur sýndar í 5
vetra flokki og fjölbreytnin er mikil.
Hæst inn á mót er Viðja frá Hvolsvelli,
undan Frakki frá Langholti og Vordísi
frá Hvolsvelli. Viðja er með 8,50 í
aðaleinkunn, 8,29 fyrir sköpulag og
8,63 fyrir kosti. Elvar Þormarsson
sýnir hana.
Tuttugu 4 vetra hryssur koma
fram á Hólum. Hæst er Stefna frá
Torfunesi, undan Vita frá Kagaðarhóli
og Bylgju frá Torfunesi. Stefna hlaut
8,46 þegar hún var sýnd á Hólum í
vor. Hún hlaut þá 8,33 fyrir sköpulag
og 8,55 fyrir kosti. Gísli Gíslason
sýndi hryssuna.
Úrvalssýning kynbótahrossa
Auk kynbótasýningar og verðlauna-
veitingu afkvæmastóðhesta mun á
Landsmóti vera boðið upp á úrvals-
sýningu kynbótahrossa á laugardeg-
inum kl. 16. Þar er hugmyndin að
virða fyrir sér bestu hross landsins
fyrir ákveðna eiginleika og kynna
fjölhæfni og fegurð hestsins um leið.
Á þessa sýningu koma fram hross
sem hlutu einkunnina 9,5–10 fyrir
tölt, brokk, skeið, stökk og fegurð í
reið í vor, óháð því hvort þau unnu sér
þátttökurétt á Landsmóti sem einstak-
lingar eða ekki.
Til gamans má geta að sextán
hross hlutu einkunnina 9,5 fyrir tölt
á Íslandi í vor, en engin hefur enn
hlotið einkunnina 10. Átta hross hlutu
einkunnina 9,5 fyrir brokk og fimm
hross 9,5 fyrir stökk. Þrjú hross hlutu
einkunnina 10 fyrir skeið, Örvar frá
Gljúfri, Stáss frá Ytra-Dalsgerði og
Eðall frá Torfunesi, en 21 hross hefur
hlotið 9,5. Níu hross hlutu 9,5 fyrir
fegurð í reið.
Landsmót hestamanna 2016 á Hólum í Hjaltadal:
Skrautsýning hrossaræktar fram undan
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Utanborðsmótorarnir frá Yamaha eru þekktir fyrir einstök
gæði og endingu. Þeir koma í mörgum útfærslum,
tvígengis og fjórgengis, allt frá 2,5 upp í 350 hestöfl.
Allir eru þeir hlaðnir bestu fáanlegu Yamaha tækni.
Yamaha á örugglega rétta mótorinn fyrir þig.
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
Grizzly 700 EPS
Vinnujálkurinn frá Yamaha!
Þeir sem prófa, vilja ekkert annað.
Ný uppfærsla með dráttarspili, LED
ljósum, 26“ dekkjum. Aukin burðargeta
og lækkaður þyngdarpunktur gerir gott
hjól enn betra.
Verð frá kr. 2.320.000,-
BJÓÐUM ALLA ALMENNA
VERKSTÆÐISÞJÓNUSTU!
Tímapantanir í síma 540 4900
Hrafn frá Efri-Rauðalæk er með
hæstu aðaleinkunn kynbóta-
hrossa inn á Landsmót í ár, 8,84.
Knapi er Daníel Jónsson.
Nípa hlaut 9,05 fyrir kosti þegar
hún var sýnd í vor, sem er hæsta
í vor. Hún hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt,
vilja og geðslag og fegurð í reið.
Knapi er Daníel Jónsson.
Stefna frá Torfunesi hlaut hæstu
einkunn 4 vetra hryssna á vor-
sýningum í ár, 8,46. Knapi er
Gísli Gíslason.
Valgarð frá Kirkjubæ er einn
þriggja hrossa frá ræktunarbú-
inu Kirkjubæ sem koma fram á
kynbótasýningu Landsmóts á
Hólum í ár. Valgarð er enn fremur
hæst dæmdi 4 vetra stóðhestur
vorsýninga, hlaut 8,44 í aðal-
einkunn. Knapi er Guðmundur
Friðrik Björgvinsson.
Sirkus frá Garðshorni á Þela-
mörk er næsthæsti 4 vetra stóð-
hestur inn á mót í ár. Hlaut 8,35
þegar hann var sýndur í vor.
Knapi hans hér er Birna Tryggva-
dóttir Thorlacius.