Bændablaðið - 23.06.2016, Síða 18

Bændablaðið - 23.06.2016, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2016 Hæst dæmdu kynbótahross vor- sýninga verða saman komin á Hólum í Hjaltadal í næstu viku. Verður þar um auðugan garð að gresja fyrir ræktendur og unnendur íslenskra hrossa, enda kemur það besta í íslenskri hrossarækt fram. Hér verð- ur stiklað um sýningarskrá Landsmóts hestamanna. Kynbótasýningum fyrir Landsmót lauk þann 10. júní síð- astliðinn og hafa 166 hross áunnið sér rétt til að koma fram á kynbóta- sýningum á Landsmóti hestamanna sem haldið verður að Hólum í Hjaltadal dagana 27. júní til 3. júlí. Árið 2014 hlutu 280 lágmarks- einkunnir til þátttöku á Landsmóti hestamanna og komu þá 231 hross til dóms. Í ár er kerfið breytt, þar sem fjöldi hrossa í hverjum flokki er takmarkaður. Meðfylgjandi tafla sýnir breidd einkunna í hverjum flokki fyrir Landsmót í ár í sam- anburði við einkunnarlágmörk og hæstu einkunnir sem gefnar voru í hverjum flokki á Landsmóti hesta- manna árið 2014. Lægsta einkunn hrossa í hverjum flokki hefur hækkað í öllum flokkum nema einum, í flokki 5 vetra hryssna. Fjölbreyttur hópur kynbóta- hrossa kemur fram í ár. Ættir þeirra liggja í fjölmargar áttir sem sýnir sig ekki síst í því að hrossin eru undan 93 stóðhestum. Álfur frá Selfossi á flest afkvæmi í hópn- um, ellefu talsins. Átta hross eru afkvæmi Orra frá Þúfu, en enn fleiri eru undan Orrabörnum svo áhrifa hans gætir víða. Stáli frá Kjarri og Álffinnur frá Selfossi eiga 6 afkvæmi hvor, en Ómur frá Kvistum og Spuni frá Vesturkoti eiga 5 afkvæmi hvor í hóp kyn- bótahrossa í ár. Einnig er áhugavert að skoða hryssurnar sem standa baki kyn- bótahrossunum. Ellefu hryssur eiga fleiri en eitt afkvæmi í hópnum. Ber þar helst að nefna heiðursverð- launahryssurnar Álfadís frá Selfossi, sem á fjögur afkvæmi, og Þoku frá Hólum, sem á þrjú afkvæmi. Fjölhæfir einstaklingar Aðeins tíu stóðhestar koma fram í elsta flokki. Hæstu einkunn allra kynbótahrossa í vor hlaut Hrafn frá Efri-Rauðalæk. Hrafn er undan Markúsi frá Langholtsparti og Hind frá Vatnsleysu. Hrafn hlaut 9,03 fyrir kosti á kynbótasýningu í Spretti á dögunum, 8,55 fyrir sköpulag og 8,84 í aðaleinkunn. Þetta er þriðja Landsmót sem Hrafn verður sýndur, en hann varð í 2. sæti 4 vetra stóð- hesta í Reykjavík árið 2012 og í 3. sæti 6 vetra stóðhesta á Hellu 2014. Þjálfari hans og sýnandi er Daníel Jónsson. Miklar hæfileikasprengjur voru sýndar í flokki 6 vetra stóðhesta í vor en tuttugu stóðhestar hlutu þátttöku- rétt á Landsmóti. Konsert frá Hofi er þar efstur á blaði. Hann var af mörg- um talinn hestur Landsmóts hesta- manna árið 2014. Kom hann þá fram 4 vetra, hlaut 8,72 í aðaleinkunn, þar á meðal einkunnina 10 fyrir tölt. Hann hlaut 8,78 í aðaleinkunn á kynbóta- sýningu í Spretti, 8,56 fyrir sköpulag og 8,78 fyrir kosti. Konsert er undan Ómi frá Kvistum og Kantötu frá Hofi en Jakob Svavar Sigurðsson er nú sýnandi hans. Efstur 5 vetra stóðhesta inn á mót er Draupnir frá Stuðlum undan Kiljan frá Steinnesi og heiðursverðlauna- hryssunni Þernu frá Arnarhóli. Hann hlaut 8,68 þegar hann var sýndur á Sörlastöðum í Hafnarfirði í vor, 8,55 fyrir sköpulag og 8,77 fyrir kosti. Trausti frá Þóroddsstöðum var hæst dæmdi 4 vetra stóðhestur síðasta árs og er nú næstefsti 5 vetra hestur inn á Landsmót. Trausti er undan Þresti frá Hvammi og Snót frá Þóroddsstöðum Hann var sýndur í Spretti í Kópavogi í vor og hlaut þá 8,52 í aðaleinkunn, 8,30 fyrir sköpulag og 8,67 fyrir kosti. Fimmtán 4 vetra stóðhestar koma fram á Hólum. Hæstu einkunn þeirra í vor hlaut Valgarð frá Kirkjubæ undan Freistingu frá Kirkjubæ og Sjóði frá Kirkjubæ, sem einmitt er skráður til leiks í A-flokki gæðinga á mótinu. Valgarð var sýndur á Mið-Fossum í Borgarfirði af Guðmundi Friðriki Björgvinssyni og hlaut þá 8,44 í aðaleinkunn. Hann hlaut 8,31 fyrir sköpulag og 8,52 fyrir kosti. Næstur á lista er Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk, undan Fáfni frá Hvolsvelli og Sveiflu frá Lambanesi. Sirkus hlaut 8,35 í aðaleinkunn þegar hann var sýndur á Hlíðarholtsvelli á Akureyri, 8,17 fyrir sköpulag og 8,47 fyrir kosti. Sextán hryssur koma fram í flokki 7 vetra og eldri. Efst inn á mót er Þota frá Prestsbæ undan heiðursverðlauna- hrossunum Orra frá Þúfu og Þoku frá Hólum. Þota hlaut 8,73 þegar hún var sýnd á Mið-Fossum í Borgarfirði í vor, 8,61 fyrir sköpulag og 8,81 fyrir kosti. Þórarinn Eymundsson sýnir Þotu. Nípa frá Meðalfelli er önnur inn á mót í flokknum en hún er jafnframt með hæstu einkunn allra hrossa fyrir kosti fyrir mót. Nípa, sem er undan Orra frá Þúfu og Esju frá Meðalfelli, hlaut 9,05 fyrir kosti þegar hún var sýnd í Spretti í Kópavogi í vor. Hún hlaut 8,70 í aðaleinkunn og 8,16 fyrir sköpulag. Þrjátíu sex vetra hryssur verða sýndar á Landsmótinu á Hólum. Hæst inn á mót er efsta 4 vetra hryssa Landsmótsins á Hellu, Hamingja frá Hellubæ. Hamingja er undan Aðli frá Nýjabæ og Þulu frá Hellubæ. Hún var sýnd á Gaddstaðaflötum í vor og hlaut þá 8,59 í aðaleinkunn, 8,61 fyrir sköpulag og 8,58 fyrir kosti. Bergur Jónsson er sýnandi hennar. Alls verða 35 hryssur sýndar í 5 vetra flokki og fjölbreytnin er mikil. Hæst inn á mót er Viðja frá Hvolsvelli, undan Frakki frá Langholti og Vordísi frá Hvolsvelli. Viðja er með 8,50 í aðaleinkunn, 8,29 fyrir sköpulag og 8,63 fyrir kosti. Elvar Þormarsson sýnir hana. Tuttugu 4 vetra hryssur koma fram á Hólum. Hæst er Stefna frá Torfunesi, undan Vita frá Kagaðarhóli og Bylgju frá Torfunesi. Stefna hlaut 8,46 þegar hún var sýnd á Hólum í vor. Hún hlaut þá 8,33 fyrir sköpulag og 8,55 fyrir kosti. Gísli Gíslason sýndi hryssuna. Úrvalssýning kynbótahrossa Auk kynbótasýningar og verðlauna- veitingu afkvæmastóðhesta mun á Landsmóti vera boðið upp á úrvals- sýningu kynbótahrossa á laugardeg- inum kl. 16. Þar er hugmyndin að virða fyrir sér bestu hross landsins fyrir ákveðna eiginleika og kynna fjölhæfni og fegurð hestsins um leið. Á þessa sýningu koma fram hross sem hlutu einkunnina 9,5–10 fyrir tölt, brokk, skeið, stökk og fegurð í reið í vor, óháð því hvort þau unnu sér þátttökurétt á Landsmóti sem einstak- lingar eða ekki. Til gamans má geta að sextán hross hlutu einkunnina 9,5 fyrir tölt á Íslandi í vor, en engin hefur enn hlotið einkunnina 10. Átta hross hlutu einkunnina 9,5 fyrir brokk og fimm hross 9,5 fyrir stökk. Þrjú hross hlutu einkunnina 10 fyrir skeið, Örvar frá Gljúfri, Stáss frá Ytra-Dalsgerði og Eðall frá Torfunesi, en 21 hross hefur hlotið 9,5. Níu hross hlutu 9,5 fyrir fegurð í reið. Landsmót hestamanna 2016 á Hólum í Hjaltadal: Skrautsýning hrossaræktar fram undan HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com Utanborðsmótorarnir frá Yamaha eru þekktir fyrir einstök gæði og endingu. Þeir koma í mörgum útfærslum, tvígengis og fjórgengis, allt frá 2,5 upp í 350 hestöfl. Allir eru þeir hlaðnir bestu fáanlegu Yamaha tækni. Yamaha á örugglega rétta mótorinn fyrir þig. Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900 www.yamaha.is EXPLORE WITHOUT LIMITS ® EXPLORE WITHOUT LIMITS ® Grizzly 700 EPS Vinnujálkurinn frá Yamaha! Þeir sem prófa, vilja ekkert annað. Ný uppfærsla með dráttarspili, LED ljósum, 26“ dekkjum. Aukin burðargeta og lækkaður þyngdarpunktur gerir gott hjól enn betra. Verð frá kr. 2.320.000,- BJÓÐUM ALLA ALMENNA VERKSTÆÐISÞJÓNUSTU! Tímapantanir í síma 540 4900 Hrafn frá Efri-Rauðalæk er með hæstu aðaleinkunn kynbóta- hrossa inn á Landsmót í ár, 8,84. Knapi er Daníel Jónsson. Nípa hlaut 9,05 fyrir kosti þegar hún var sýnd í vor, sem er hæsta í vor. Hún hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Knapi er Daníel Jónsson. Stefna frá Torfunesi hlaut hæstu einkunn 4 vetra hryssna á vor- sýningum í ár, 8,46. Knapi er Gísli Gíslason. Valgarð frá Kirkjubæ er einn þriggja hrossa frá ræktunarbú- inu Kirkjubæ sem koma fram á kynbótasýningu Landsmóts á Hólum í ár. Valgarð er enn fremur hæst dæmdi 4 vetra stóðhestur vorsýninga, hlaut 8,44 í aðal- einkunn. Knapi er Guðmundur Friðrik Björgvinsson. Sirkus frá Garðshorni á Þela- mörk er næsthæsti 4 vetra stóð- hestur inn á mót í ár. Hlaut 8,35 þegar hann var sýndur í vor. Knapi hans hér er Birna Tryggva- dóttir Thorlacius.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.