Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017 Í þorpinu Forstern, nærri München í Bæjaralandi í Þýskalandi, var fyrsta Eicher dráttarvélin smíðuð árið 1930. Það var Eicher Diesel 22PSI – 1939. Dró hún nafn sitt af þúsundþjalasmiðnum Albert Eicher. Var þetta upphafið að umfangs- miklum rekstri Eicher Forstern og Dingolfing verksmiðjanna. Áður en hafist var handa við framleiðsluna voru gerðar margvíslegar tilraunir og sótt um einkaleyfi á fjölmörgum hlutum. Var smíðin á fyrstu Eicher vél- inni í raun þróuð upp úr gamalli þriggja hjóla dráttarvél og sjálf- virkri sláttuvél. Það voru bræðurnir Joseph og Albert Eicher sem lögðu grunninn að þessari framleiðslu, Þeir voru fæddust og ólust upp í landbúnaði í Þýskalandi. Áhugi þeirra á landbúnaði kallaði fram hugmyndir að margvíslegum búnaði til að létta mönnum vinnuna í landbúnaði. Árið 1949 komu þeir fram með dráttarvél sem var með loft- kældum mótor sem skoraði hátt í þessum geira. Stofnaði fyrirtæki á Indlandi Árið 1959 var stofnað fyrirtæk- ið Eicher Tractor Corporation of India Private Ltd. Var það í sam- vinnu við Goodearth Company í Nýju-Delí á Indlandi sem stofnað var sem dreifingar- og þjónustu- fyrirtæki árið 1948. Kom þá fram 1959 módelið af Eicher ED3 dráttarvélinni. Selt til TAFE Hóf fyrirtækið framleiðslu á ind- verskri útgáfu af Eicher dráttar- vélum árið 1960. Var þessi drátt- arvélaframleiðsla síðar seld til fyrirtækisins Tractors And Farm Equipment Ltd (TAFE) í Chennai á Indlandi sem enn framleiðir Eicher dráttarvélar. Frá 1965 hefur Eicher Tractor Corporation eingöngu verið í eigu indverskra hluthafa. Massey Ferguson keypti 30% hlut í þýska fyrirtækinu Eicher árið 1970. Voru þýsku eigendurnir svo keyptir út úr fyrirtækinu árið 1973. Í framhaldinu framleiddi fyrirtækið síðan undir nafninu Eicher Gootearth og síðan ein- göngu Eicher. Í framhaldinu var nafninu breytt í Eicher Valtra og síðan Euro Power. Árið 2005 seldi Eicher Motors Ltd. dráttarvélahlutann, Tractors & Engines, til TAFE og úr varð dótturfélagið TAFE Tractors And Farm Equipment Ltd. Í eigu Valtra Dráttarvélar af gerðinni Eicher Valtra og Ero Power eru sömu vélarnar og hafa verið seld- ar sem Eicher 6100 sem allar eru smíðaðar samkvæmt fram- leiðsluleyfi frá hinum finnska dráttarvélaframleiðanda. Í eigu AGCO Valtra, sem er hluti af AGCO samsteypunni (Agricultural quipment manufacturer), sem er með höfuðstöðvar í Duluth í Georgíu í Bandaríkjunum sem er nú orðinn aðaleig- andi að dráttarvélarfyrir- tæki sem upprunnið er í Bæjaralandi. Afsprengi úr Deutz AGCO var stofnað 1990 þegar yfirmaður hjá Deutz- Allis keypti samnefnt fyrir- tæki í Bandaríkjunum af móð- urfélaginu Klöckner-Humboldt- Deutz í Þýskalandi sem átti Deutz-Fahr dráttarvélamerkið. /HKr. Þýskur Eicher – varð indversk- finnsk-amerískur Vissir þú að um 90 prósent af öllu sem þú kaupir kemur til lands- ins með skipaflutningum? Vegna stærðar skipanna og gríðarlegs magns eldsneytis sem þau brenna eru skip sá iðnaður í heiminum sem mengar einna mest. Þannig losa sautján stærstu gámaflutn- ingaskip heimsins meiri brenni- stein út í andrúmsloftið árlega en allir bílar í heiminum. Eitt skemmtiferðaskip mengar jafn- miklu sóti út í andrúmsloftið dag- lega eins og ein milljón bíla. Þetta eru sláandi staðreyndir og má sjá og heyra af þeim í nýlegri heimildarmynd Bernice Notenboom og Söruh Robertson, Sea Blind. Skipaflutningar færa okkur mat- væli, fatnað, bíla og önnur raftæki ásamt mörgu fleiru. Það má því segja að þeir séu risastórt tannhjól alþjóða- verslunar því án skipaflutninga væri engin hnattvæðing. Vegna stærðar skipanna og þeirrar staðreyndar að skipaiðnaðurinn hefur leyfi til að brenna skítugasta eldsneyti í heim- inum þá er þetta sá iðnaður í heim- inum í dag sem mengar einna mest. Þessum staðreyndum um skipaflutn- inga heimsins eru gerð góð skil í heimildarmyndinni Sea Blind, sem var frumsýnd í Rotterdam í janúar árið 2016. „Sem neytendur erum við orðin vön ódýrum vörum sem eru fljótar að komast á áfangastað alls staðar að úr heiminum. Við erum blinduð á sjóinn (Sea Blind) og fyrir þeim alvarlegu afleiðingum sem þess- ir skipaflutningar hafa á heiminn okkar. Þetta var ein af ástæðum þess að við réðumst í að gera þessa heim- ildarmynd,“ segir Sarah Robertson, annar leikstjóri myndarinnar. Verða að breyta áherslum Kvikmyndin hefur verið sýnd um allan heim, á loftslagsráðstefnum, hjá Evrópuþinginu, UNESCO, Alþjóðasiglingamálastofnuninni og í nokkrum höfnum, svo fátt eitt sé nefnt, eins og í Rotterdam og Amsterdam. „Við vorum um sjö mánuði að gera myndina og það krafðist mik- illar rannsóknarvinnu. Þetta við- fangsefni var nýtt fyrir okkur svo við gengum inn í þetta verkefni sem nýliðar en það er oft og tíðum gott þegar þarf að segja flóknar sögur því þá hefur maður hreina grund- vallarnálgun fyrir viðfangsefninu. Það hafa margir komið til okkar og sent okkur skilaboð eftir myndina og er fólk gáttað á því að það hafi aldrei heyrt um þessa þætti sem koma fram í myndinni, þannig að áhorfendur hafa verið verulega hissa og tekið þessum nýju upplýsingum fagnandi,“ útskýrir Sarah og segir jafnframt: „Flest viðtölin sem við áttum við forsvarsmenn stóru skipa félag- anna voru gerð í góðri sam- vinnu. Sumir voru harðari í horn að taka en aðrir en við fengum mjög frambærilega einstaklinga í viðtöl á endan- um. Skipa iðn- aður inn í Evrópu er meðvitaður um að þeir þurfa að vera gagnsærri og menga minna, það er að segja, þeir verða að breyta áherslum og flest stórfyrirtækin samþykkja það. Þegar við höfum sýnt myndina í stórum höfnum, eins og í Rotterdam, þá er það í góðri samvinnu við aðila þar og oft og tíðum skapast mál- efnalegar umræður um hvernig sé hægt að breyta þessu ástandi sem ríkir í dag. Hið sama er ekki hægt að segja um Norður-Ameríku þar sem hagsmunaðilar eru ekki eins áhugasamir um að vinna að þessu málefni í sameiningu.“ Enn hraðara bráðnunarferli Svört kolefni sem einnig er kallað sót er kastað út í andrúmsloftið í miklu magni vegna þess að skipa- flutningar heimsins ganga á þungri, skítugri olíu. Þetta er ódýrasta og skítugasta olían sem hægt er að fá. „Sótið svífur um loftið í um það bil þrjár vikur en vegna þess að það fer einnig niður á jökla og snjó- breiður Norður- og Suðurpólsins þá endurspeglast sólarljósið ekki lengur og verður þess valdandi að bráðnunarferlið verður enn hrað- ar. Skipaiðnaðurinn er sá iðnaður í heiminum sem hefur mesta óstjórn, er leynilegastur og sá sem mengar mest. Stóra vandamálið í þessu öllu er að alþjóðahafsvæðin tilheyra öllum heiminum og löggjöfin er hæg og erfið því samstöðu þarf að ná um alla þætti hjá öllum 170 löndunum sem hlut eiga að máli,“ segir Sarah og bætir við: „Markmið okkar er að hætt verði að nota óhreinasta eldsneyti í heim- inum, svokallað HFO-eldsneyti. Í dag eru nokkrar herferðir í gangi gegn því og er myndin okkar bara eitt tæki í þeirri baráttu. Við teljum að Sea Blind hafi áhrif á iðnaðinn og þá er öðru markmiði náð og okkar mat eftir vinnslu myndarinn- ar er að iðnaðurinn sé mjög með- vitaður um að það verði að gera virðiskeðjuna gagnsærri og hreinni. Hægt og sígandi eru neytendur líka að verða meðvitaðri um það hlut- verk sem þeir spila í þessu stóra tannhjóli. Það sem þarf einnig að ná fram er að stóru birgjarnir verð- ir pressaðir til að höndla einungis með vörur sem ferðast á hreinu eldsneyti. Sea Blind er sérstæð mynd en það er full þörf á því líka að taka skemmtiferðaskipin fyrir og það er aldrei að vita nema það verði næsta verkefni.“ Opnun Norðurslóða Í baráttunni gegn hnattrænni hlýn- un, á ráðstefnu sem haldin var í París árið 2015, féll löggjöf við flug- og skipaiðnaði niður á síð- ustu stundu og segja aðstandend- ur Sea Blind það hafa verið mikil vonbrigði. „Alþjóðaskiparáðið fullyrti að þeir væru vel færir um að taka ábyrgð á því vandamáli sem að þeirra iðnaði sneri. Eftir gerð myndarinnar erum við þess fullviss- ar að það er ekki hægt að hafa þenn- an iðnað án eftirlits og ætlast til að þeir geti leyst loftslagsmálefni sín upp á eigin spýtur. Það er sláandi að sautján stærstu gámaflutningaskip heimsins menga meiri brennistein út í andrúmsloftið en allir bílar heims- ins og valda alvarlegum heilsufars- vandamálum hjá fólki. Sótið sem kemur frá skipaiðnaðinum hraðar bráðnun íss á Grænlandi og áætla má þegar norðurslóðir opnast fyrir skipaflutninga að um 80 prósent af flutningum fari þar í gegn og þá veltir maður fyrir sér hvaða áhrif þetta muni hafa á heilsu fólks og Norðurslóðir,“ útskýrir Sarah og segir einnig: „Sérfræðingar í dag telja að hægt sé að hægja á um 40 prósent af bráðnun á Norðurslóðum með því að banna skítugt eldsneyti en helmingur þess kemur frá skipa- iðnaði. Þeir eru einnig sammála um að þetta sé besta tækifærið fyrir okkur til að hægja á bráðnun íss á Grænlandi og það gefur okkur tíma til að undirbúa okkur fyrir hinn nýja hlýja heim. Við vonum að myndin hafi einhver áhrif í þessari umræðu og að fólk almennt verði meðvitaðra sem neytendur og betri þátttakendur í sífellt breytilegum heimi.“ /ehg Um 90% innflutnings til Íslands kemur með skipum: Einn mest mengandi iðnaður heims – 17 stærstu gámaskipin menga meira en allir bílar heimsins UTAN ÚR HEIMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.