Bændablaðið - 06.07.2017, Qupperneq 28

Bændablaðið - 06.07.2017, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017 Fámennt en góðmennt á Fjórðungsmóti Vesturlands: Gæðingaveisla í Borgarnesi − Skapti Steinbjörnsson var valinn knapi mótsins og Arna frá Skipaskaga hestur mótsins Rúmlega 1.000 manns komu saman á Fjórðungsmóti Vesturlands í Borgarnesi dagana 28. júní til 2. júlí sl. Þar öttu kappi gæðingar og hestamenn af Vesturlandi, Húnavatnssýslum og Skagafirði. Skapti Steinbjörnsson var valinn knapi mótsins og Arna frá Skipaskaga hlaut titilinn Hestur mótsins. Ingi Tryggvason, formaður framkvæmdarnefndar Fjórðungs- mótsins, segist sáttur með útkomuna, þótt mótsókn hafi ekki staðist vænt- ingar. „Mótið gekk allt mjög vel og dagskrá var á áætlun. Vell irnir stóð- ust álagið vel, knap- arnir lýstu yfir ánægju bæði með aðal völl og nýja kynbóta- völlinn. Við bjuggumst þó við aðeins fleiri gestum.“ Þátttaka á mótið var með besta móti og segir Ingi það benda til þess að Fjórðungsmót eigi enn tilverurétt. „Hugsanlega þarf þó að endurskoða fyrirkomulag Fjórðungsmóta með tilliti til fjölda móta á þessum tíma árs, en í júní og júlí eru mót nánast allar helgar. Það þyrfti að lágmarka kostnaðinn enn frekar, til að mynda liggur mikill kostnaður í tæknimálum á svona móti. Þá mætti líka skoða að stytta mótið um einn dag. Aftur á móti hafa margir lýst yfir ánægju með að dagskráin sé ekki mjög þétt. Þannig hefur gefist tími til að gera eitthvað annað en að horfa á hestana,“ segir Ingi. Frábær hestakostur Lárus Ástmar Hannesson, formaður Landssambands hestamannafélaga, segir það hafa sýnt sig í ár að þátttaka Húnvetninga og Skagfirðinga sé framfaraskref fyrir Fjórðungsmótið. „Hestakosturinn var frábær og reiðmennskan mjög góð. Svæðið, vellir og skipulag var til fyrirmyndar, þótt tjaldsvæðið hafi verið svolítið langt í burtu. Skipuleggjendur mótsins og Borgnesingar eiga heiður skilið fyrir gott mót. Hins vegar vantaði fleira fólk og meiri stemningu,“ segir hann. Lárus var enn fremur keppandi á mótinu en hann sat stóðhestinn Atlas frá Lýsuhóli í A-úrslitum í A-flokki gæðinga og hlutu þeir brons fyrir frammistöðu sína. „Það er alltaf gaman að vera á góðum hesti. Þetta er svona hestur sem gerir allt, maður þarf bara að passa að trufla hann ekki,“ segir Lárus. Sterk gæðingakeppni Mótið fór fram á tveimur völlum. Á aðalvelli fór fram gæðingakeppni í öllum flokkum ásamt opinni töltkeppni og skeiðkappreiðum. Stóðhesturinn Trymbill frá Stóra- Ási sigraði A-flokk gæðinga með vandaðri sýningu en eigandi hans, Mette Mannseth, sat gæðinginn. Merargullið Arna frá Skipaskaga sigraði B-flokk gæðinga örugglega, undir stjórn Sigurðar Sigurðarsonar. Arna var þar að auki valin hestur mótsins. Knapi mótsins að mati dóm- ara var Skapti Steinbjörnsson á Hafsteinsstöðum. Hann fór mik- inn á mótinu og var m.a. í 4 sæti í A-flokki gæðinga á 5 vetra hrys- su, Hrafnistu frá Hafsteinsstöðum, ásamt því að hljóta silfur í B-flokki gæðinga með gæðinginn Odda frá Hafsteinsstöðum. Yngri knapar sýndu ekki síður glæsilega reiðmennsku. Sonja S. Sigurgeirsdóttir og Jónas frá Litla- Dal fóru með sigur af hólmi í ung- mennaflokki eftir að hafa unnið sig upp úr B-úrslitum. Guðný Rúna Vésteinsdóttir og Þruma frá Hofsstaðaseli sigraði í unglinga- flokki nokkuð örugglega. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal sigraði barna- flokk á Daníel frá Vatnsleysu en þeir höfðu einnig farið fjallabaksleið að sigrinum líkt og Sonja. Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey sigruðu opna töltkeppni mótsins og Guðmar Freyr Magnússon og Fönix frá Hlíðartúni sigraði töltkeppni 17 ára og yngri. Helga Una Björnsdóttir hlaut reið- mennskuverðlaun Félags tamninga- manna á mótinu. Hún kom fram með hross bæði í keppni og kynbótasýn- ingum og þótti sýna vandaða, fram- úrskarandi reiðmennsku á áverka- lausum hestum og prúða framkomu á mótinu. Hestagull á kynbótabrautinni Á nýendurgerðum kynbótavelli komu fram 64 kynbótahross. Hæst dæmda kynbótahross mótsins, og jafnfram efsta hryssa í flokki 7 vetra og eldri, var Álfrún frá Egilsstaðakoti. Hún hlaut 8,75 í aðaleinkunn, 8,39 fyrir sköpulag og 8,99 fyrir kosti. Álfrún er undan Álfi frá Selfossi og Snögg frá Egilsstaðakoti en knapi hennar var Helga Una Björnsdóttir, sem á hryssuna ásamt Einari Hermundssyni, sem enn fremur ræktaði gripinn. Kylja frá Stóra-Vatnsskarði var efst 6 vetra hryssna. Hún hlaut 8,38 í aðaleinkunn, 8,03 fyrir sköpulag og 8,61 fyrir kosti. Kylja er undan Kiljani frá Steinnesi og Lukku frá Stóra-Vatnsskarði. Benedikt Benediktsson er ræktandi hennar og eigandi en Hans Þór Hilmarsson sýndi hryssuna. Þess má geta að Kiljan frá Steinnesi hefur nú náð lágmarki til heiðursverðlauna fyrir afkvæmi sem hann mun að öllum líkindum hljóta á Landsmóti 2018. Krús frá Skipaskaga var hæst 4 vetra hryssna en hún hlaut 8,28 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag hlaut Krús 8,69 og 8,00 fyrir kosti. Krús er undan Steinari frá Skipaskaga og Krús frá Ólafsvík. Daníel Jónsson sýndi Krús. Hæst 5 vetra hryssna var Ísey frá Lækjamóti. Hún hlaut í aðaleinkunn 8,60, 8,70 fyrir sköpulag og 8,54 fyrir kosti. Ísey er undan Jóni frá Kjarri og Hrönn frá Leysingjastöðum Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com HROSS&HESTAMENNSKA

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.