Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017 Þvottastykki HANNYRÐAHORNIÐ Gallery Spuni Ég dundaði mér við að gera uppskriftir sl vetur. Hér er ein þeirra og þykir mér ansi vænt um hana, eins þykir mér ansi vænt um ykkur, viðskiptavini mína, og er hún hönnuð með ykkur í huga. Hlakka ekkert smá til að sjá fullt af fallegum tuskum frá ykkur. Megið endilega deila með okkur myndum. Gallery Spuni á facebook og/eða @galleryspuni á instagram. Þvottastykki: 2-3, 4-5, 6-7 ára. Garn Drops Bomull – Lín fæst í Gallery Spuna Innihald: 53% bómull, 47% hör Þyngd/lengd: 50 g = ca 85 metrar Fytja upp upp 61 lykkju og prjóna eftir teikningu á prjóna nr 3,5 mm. Fróðleikur: • Hör eða lín er efni sem er unnið úr stráum hörplöntunnar (Linum usitatissimum). • Í einu hörstrái eru 30-40 þættir sem eru jafn langir stráinu en hver þáttur er gerður úr mörgum þráðum sem hver er 0,5-7 cm langur. • Hör er sótthreinsandi efni svo það er tilvalið í þvottaklúta. Bestu kveðjur, frá okkur í Gallery Spuna Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 3 2 6 9 4 8 8 4 6 3 1 3 7 5 9 4 3 2 2 4 5 1 8 3 9 5 6 7 9 5 6 6 2 1 4 2 1 7 5 8 9 Þyngst 2 5 7 4 3 9 1 8 7 1 6 4 3 7 5 8 8 3 6 9 1 4 2 9 8 2 7 6 7 9 3 5 4 6 8 1 6 4 8 1 5 9 2 3 1 4 7 3 8 2 3 8 7 6 1 2 4 2 1 7 6 7 4 5 3 9 5 3 2 5 4 8 7 6 8 3 7 4 5 6 6 3 8 5 4 3 9 1 5 7 1 4 2 FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Ætla að fara í sveitina með ömmu „Mamma mín er tannlæknir og pabbi minn er stundum í fótbolta og er hjálparskólastjóri. Ég á tvo litla bræður, Heimi Vilja sem er 3 ára og Halldór Nökkva sem er bara 2 mánaða. Ég á líka litla systur sem er engill. Hún heitir Júlía og er 1 árs. Ég á margar vinkonur, alveg fullt.“ Nafn: Þórunn Saga Björgvinsdóttir. Aldur: 6 ára. Stjörnumerki: Sporðdreki. Búseta: Stykkishólmi. Skóli: Grunnskólinn í Stykkishólmi. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Stærðfræði. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kettlingar, kisan mín Viðja og lömb- in í sveitunum mínum, Mýri og Valþjófsstöðum. Uppáhaldsmatur: Fiskibollur, pitsa, hamborgari, grjónagrautur og slátur. Uppáhaldshljómsveit: Engin. Uppáhaldskvikmynd: Stóra stökkið og Vaina. Fyrsta minning þín? Þriggja ára að skoða ungana og kettlinga, ég fékk að halda á hvolpi. Svo sá ég kind og ég reyndi að halda á henni. Heimir Vilji bróðir minn var pínulítill í hvítum galla. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Í vetur æfði ég á blokkflautu, var í frjálsum íþróttum og fór stundum á fimleikaæfingu í Grundarfirði. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Mig langar að verða tannlæknir eins og mamma mín. Þá ætla ég að lækna tennurnar í Berglindi frænku minni þegar hún kemur í heimsókn til mín. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég fór í tvo snúninga í fimleikahringjunum niðri heima hjá mér. Ætlar þú að gera eitthvað skemmti- legt í sumar? Ég ætla að fara í sveitina með ömmu minni. Ég ætla að fara í útilegu með pabba, mömmu og litlu bræðrum mínum, Heimi Vilja og Halldóri Nökkva. Við ætlum líka í sumarbústað. Svo bara að leika við vinkonur mínar. Næst » Þórunn Saga ætlar að skora á Aron Elvar Stefánsson, vin sinn og bekkjarbróður, að svara næst. Ármúli 15 - Sími: 515 0500 - www.fasteignakaup.is Erna Valsdóttir löggiltur fasteigna-, skipa- og fyrirtækjasali Sumarhús á Skarðsströnd í Dölum Rómantískt sumarhús í Villingadal með útsýni út á Breiðaörðinn fagra. Upplýsingar veitir Erna í síma 892-4717 eða hjá erna@fasteignakaup.is Erna Valsdóttir fasteignasali Áttablaðarós = Slétt á réttu og brugðið á röngu = Vinstri hallandi úrtaka = Prjóna 2 L saman = Uppásláttur = Brugðið á réttu og slétt á röngu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.