Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 37

Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017 vinnslu á þelinu eða geitafiðunni hér heima. Fram til þessa hafa íslenskir geitabændur einkum sent fiðu í spunaverksmiðjur í Noregi, en það er mjög dýrt og erfitt við að eiga. Nú eru hjónin Hulda Brynjólfsdóttir og Tyrfingur Sveinsson á Tyrfingsstöðum, rétt austan Þjórsár á Suðurlandi, að kaupa tæki og búnað til að setja upp litla spunaverksmiðju. Vélarnar eru af Belfast Mini Mill gerð og koma frá Kanada. Hefur fjármagni vegna kaupanna m.a. verið safn- að í gegnum fjármögnunarsíðuna indiegogo.com. Byrjað var að setja vélbúnaðinn upp í síðustu viku með aðstoð tæknimanns frá Kanada. Hulda sagði í samtali við Bændablaðið að allt væri þetta gert í nafni fyrirtækis þeirra hjóna sem heitir Sveitakallinn en reksturinn á spunaverksmiðjunni verður undir nafninu Uppspuni. Fyrst og fremst verður stílað inn á að framleiða band sem er með- höndlað af meiri varúð en stærri vélar ráða við og því verður bandið mýkra. Hægt verður að koma með ull til þeirra og fá hana unna í band eftir óskum, eða í kembur sem hægt verður að handspinna úr eða þæfa. Er smám saman á læra á geitina „Maður er smám saman að kynnast geitinni og læra meira á hana,“ segir Helena. „Hún er talsvert frábrugðin sauðfénu. Við vorum líka með fé, en létum það allt frá okkur og ákváðum að gerast bara geitabændur. Geitur eru mannelskar líkt og hundar. Geiturnar sem ég er að rækta eru frekar gæfar og það dugar að flauta, þá elta þær mig og koma á eftir mér inn í hús. Þær vilja helst allar fá klór og klapp og ég held að ef maður er góður við þær þá strjúki þær ekkert frá manni. Þær fá að éta og fá hlýju og þar sem þær eru hjarðdýr þá halda þær mjög hópinn. Það er því orðið mjög vinsælt að koma í heimsókn til okkar og skoða geiturnar. Þetta er líka mjög skemmtilegt og gaman að þróa vöru úr því sem geitin gefur af sér.“ Margir hissa á geitaáhuganum Helena segir að bændur í sveitinni hafi svo sem ekki haft sérlega mikið álit á hennar búskap og undrist að hún skuli velja sér geitur sem bústofn. Menn hafi ekki haft sérlega mikla trú á að það sé hægt að nýta geitur til að framleiða boðlegar afurðir. Þá segir hún að menn haldi að erfitt sé að eiga við geiturnar og að þær séu strokgjarnar og stökkvi yfir girðingar. Helena segir sína reynslu allt aðra og þegar hún hafi verið að bjóða upp á geitakjöt sé fólk oft búið að dæma fyrirfram án þess að hafa smakkað. Geitakjöt er með hærra próteinhlutfall og fituminna en lambakjöt. Einnig er það þéttara, með fínni kjöttrefjar og rauðara en lambakjötið. Hún segir að geitur hafi í gegnum tíðina ekki þótt vænlegar til að búa með. Þær hafi fyrst og fremst verið dýr fátæka mannsins, en séu verulega vanmetnar skepnur. Það hafi m.a leitt til þess að íslenska geitin er í útrýmingarhættu. Stofninn var kominn niður í 222 dýr árið 1981, en geitum hefur hægt og bítandi verið að fjölga á síðustu áratugum. Þannig var stofninn kominn í 1.188 skepnur á síðasta ári, samkvæmt tölum Búnaðarstofu MAST. Þann 1. janúar 2017 tók gildi reglugerð um geitfjárbúskap. Þar er tekið fram að til að geta fengið styrk til að viðhalda viðkvæmum geitastofni, verði ræktendur að búa á lögbýli. Helena segir að margir geitabændur séu ósáttir við þessa reglugerð, enda búi þeir ekki allir á lögbýlum. Eigi að síður hyggjast þessir bændur láta reyna á hvort þeir muni njóta aðstoðar eins og áður. „Það er verulega gaman að fá að taka þátt í þessari uppbyggingu og verndun stofnsins. Samt bý ég á sýktu svæði og get því ekki selt frá mér lífdýr. Að sama skapi verð ég að fara yfir nokkrar varnarlínur til að ná mér í dýr til að fjölga í mínum stofni. Það má því segja að ég sé í svolítilli klemmu að vera staðsett hér,“ segir Helena Hólm. Hún er þó afskaplega ánægð með að hafa tekið þá ákvörðun að flytja austur í Flóa. /HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.