Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 06.07.2017, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017 Costco stefnir að lægsta verði miðað við gæði: Eftirspurn eftir ferska kjötinu farið langt fram úr væntingum – nota eigin aðferðir í eigin kjötvinnslu við kjötskurð Óhætt er að segja að innkoma Costco inn á matvörumarkaðinn íslenska hafi með ýmsum hætti haft veruleg áhrif á verslun með matvöru í landinu. Nýjar matvör- ur sjást í fyrsta skipti á Íslandi í versluninni og verðlag á ýmsum vörum sem hafa flokkast sem munaðarvörur er í einhverjum tilvikum mun lægra í Costco en Íslendingar hafa átt að venjast. Steve Barnett, viðskiptastjóri Costco fyrir Bretland og Ísland, var spurður út í nokkur atriði í vöruúr- valinu sem hafa vakið forvitni; til að mynda varðandi aðföng, kjötskurð, gæðastjórnun og verðlag. Í viðskiptum við 40 íslenska birgja „Við flytjum til Íslands grænmeti og ávexti sem er gæðastjórnað með annarri vöru sem við seljum um allan heim. Okkar kjötbirgjar í fersku kjöti eru á Íslandi og við erum í viðskiptum við nokkra af þeim helstu þar,“ segir Steve Barnett. Þegar hann er spurður út í hvort þeir biðji um einhverja sértaka skurði á skrokkunum segir hann að þeir séu með sína eigin kjötiðnaðarmenn í verslun- inni sem vinna kjötið eftir þeirra eigin aðferðum. „Eftirspurnin eftir ferska kjötinu okkar hefur farið langt fram úr okkar væntingum og það hafa komið dagar þar sem við höfum orðið uppiskroppa með til- teknar vörur. Nú vinnum við náið með okkar birgjum að bregðast við þessu og hafa vöruframboðið í þessum kjötvörum stöðugra. Megnið af því sem ég myndi kalla mjólkurvörur er fengið frá Íslandi. Við erum með osta frá Íslandi, Bretlandi, Frakklandi og Ítalíu. Meira en 40 prósent af okkar grunnlager er af íslenskum upp- runa, en auðvitað er þetta breytilegt eftir árstíma þar sem við erum alltaf að prófa nýjar ostategundir frá mis- munandi löndum.“ Það er stefna okkar eins og er að ræða ekki um viðskiptasambönd við birgja, þannig að ég get ekki gefið upp hverjir þeir eru. Ég get þó sagt að vörunúmerin eru yfir 200 sem við eigum í viðskiptum með, við yfir 40 íslenska birgja – þar með talið hráefni sem við notum fyrir okkar eigin framleiðslu á tilbúnum réttum og í bakaríinu,“ segir Steve Barnett. Stefnt að lægsta verði miðað við gæði Steve Barnett er spurður út í verðstefnuna í ávextum og grænmeti – hvort það sé markmið að keppa við verð í sambærilegum íslenskum verslunum. Hann segir auðvelt að svara þessu, því það sé yfirlýst stefna fyrirtækisins að sjá meðlimum sínum fyrir gæðavöru á sem lægsta verði. „Það er mögulegt að meðlimir okkar geti keypt ódýrari vörur annars staðar, en það er ekki mögulegt að fá vörur í þeim gæðaflokki sem við bjóðum ódýrari í öðrum verslunum. Þannig að það má segja að við erum með skýra stefnu um að vera með lægsta verðið, miðað við sömu gæði. Þetta á reyndar við um allar okkar vörur.“ Viðskiptavinir hafa tilfinningu fyrir gæðum og virði vara Sem kunnugt er stóð Ríkisútvarpið fyrir verðkönnun á dögunum þar sem 49 vörutegundir voru valdar með aðstoð ASÍ og verðlag þeirra borið saman á milli verslana Krónunnar, Bónus og Costco. Niðurstaðan var sú að verðlag á vörunum var oftast dýrast í Costco, en líka oftast ódýrast. Samanlagt var innkaupakarfan aðeins meira en helmingi dýrari í Costco en í Krónunni og Bónus, þar sem verðlag samtals var svipað. Þegar Steve Barnett er spurður um álit hans á þessari könnun, segir hann að það sé trú þeirra hjá Costco að viðskiptavinirnir hafi tilfinningu fyrir gæðum og virði varanna. „Margar vörur sem notaðar voru til samanburðar í könnuninni, voru ekki sambærilegar í gæðum og þess vegna gefur könnunin ekki sanna mynd af virði okkar vara,“ segir hann. /smh Hertar reglur um lífrænt vottaða framleiðslu Þann 30. maí síðastliðinn var lög- gjöf Evrópusambandsins (ESB) um lífræna framleiðslu innleidd í íslenskt regluverk. Með inn- leiðingunni missa íslenskir fram- leiðendur undanþáguákvæði sem voru til staðar í aðlögunarferlinu. Undanþágurnar – eða aðlögunar- kröfurnar eins þær voru kallaðar – sneru til að mynda að ákveðn- um rýmiskröfum í gripahúsum, banni við notkun á grindargólfum og banni við notkun á fiskimjöli í fóðri jórturdýra. Í tilkynningu frá Matvælastofnun þann 15. júní síðastliðinn segir að með innleiðingunni séu gerðar ítarlegri kröfur til lífrænnar framleiðslu í gegnum allt framleiðsluferlið, allt frá öflun aðfanga til markaðssetningar lokaafurða. Lífræn vottun og eftirlit verður áfram hjá sjálfstætt starfandi vottunarstofum sem starfa undir eftirliti Einkaleyfastofunnar. Fram til þessa hefur vottunarstofan Tún verið eini aðilinn sem hefur faggildingu til að votta lífræna framleiðslu á Íslandi. Meira rýmis krafist Gunnar Gunnarsson, fram kvæmda- stjóri Vottunarstofunnar Túns, segir að framleiðendur hafi tækifæri til að ljúka framleiðslu sem hafin var fyrir tíma innleiðingar og markaðssetja hana sem lífræna, þannig að bændur hafa þokkalega rúman tíma til að gera breytingar, að því leyti sem þeirra er þörf, áður en næsta framleiðslu- og/ eða ræktunartímabil rennur upp. „Úttektir sem gerðar eru frá og með júnímánuði veita bændum og öðrum framleiðendum kost á að kortleggja hvaða breytingar gera þarf til þess að kröfur samkvæmt hinni nýju löggjöf verði uppfylltar þegar næsta úttekt fer fram,“ segir hann. Helstu breytingar gagnvart landbúnaðinum eru að sögn Gunnars að nú sé krafist meira rýmis fyrir hvern grip í búpeningshúsum. „Til dæmis er lágmarksrými á hverja kind 1,5 fermetri í stað 1,0 fermetra áður. Þá verður allt búfé að hafa aðgang að heilum gólfum í legurými, þar með talið sauðfé, en þó má allt að 50 prósent legurýmis í fjárhúsum vera grindur ef þær eru í góðu ásigkomulagi. Þá þurfa bændur sem nota kjarnfóður að finna hentugan lífrænan próteingjafa í stað fiskimjöls sem ekki er lengur leyft til fóðrunar jórturdýra. Ýmsar aðrar breytingar koma til framkvæmda, þótt þær hafi að líkindum minni áhrif, og má meðal annars nefna að framvegis þurfa eftirlitsaðilar að taka sýni afurða til efnagreiningar hjá hluta vottaðra framleiðenda.“ Reynir á ráðunauta og stuðningskerfið Gunnari er ekki kunnugt um að framleiðendur hafi hætt eða muni hætta vegna innleiðingar hinna nýju reglugerða. „Ég tel ástæðu til að ætla að flestir eða allir núverandi bændur muni halda áfram í lífrænum búskap, en það mun hins vegar ekki að fullu koma í ljós fyrr en líður á árið og nýtt framleiðslutímabil nálgast. Þau ákvæði sem mest áhrif kunna að hafa á framkvæmd eldis og ræktunar eru ekki þess eðlis að þau séu óyfirstíganleg. Þar reynir annars vegar á ráðunauta leiðbeiningaþjónustunnar um að setja fram hagnýtar leiðir til að leysa málin, og hins vegar á stuðning til aðlögunar og breytinga samkvæmt reglugerð um fjárstyrki til lífrænnar framleiðslu. Hvort tveggja á að veita bændum þann tilstyrk sem til þarf.“ Erfiðar kröfur fyrir sauðfjárbændur Hér í blaðinu 9. mars síðastliðinn var rætt við Höllu Steinólfsdóttur, sem stundar lífrænt vottaðan sauðfjárbúskap í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd, og Ólaf Dýrmundsson, fulltrúa Íslands í Evrópusambandshópi lífrænna landbúnaðarhreyfinga og fyrrverandi ráðunaut í lífrænum búskap, um fyrirhugaðar breytingar. Bæði lýstu þau áhyggjum sínum af þeim og töldu hættu á því að einhverjir sauðfjárbændur myndu hætta með lífræna vottun, gengi innleiðingin í gegn með þessum hætti. „Ég hef verið að ræða þetta við félaga mína sem líst alls kostar illa á þessi áform. Ef það á að fara að taka hart á þessum skilyrðum sem snúa að fjárbúskapnum – varðandi grindargólfin og rýmisþörfina – þá er ég ekki viss um að við lifum það af í lífrænum búskap. Það myndi hreinlega vera of kostnaðarsamt að fara út í svo miklar breytingar. Við byggðum stórt hús árið 2005 með grindargólfi til þess að hagkvæmara sé að hirða búfjáráburðinn. Lömbin fæðast þar en eru mestan sinn líftíma frjáls um fjöll og dali og koma inn að hausti til að fara á sláturbíl. Aðgengi að hálmi til undirburðar hér á landi er ekki sambærilegt því sem er í Evrópu,“ sagði Halla. Ólafur sagði að breytingarnar gætu orðið til þess að lífrænt vott- uð sauðfjárrækt leggist niður hér á landi. „Ekki verður tekið tillit til sérstakra aðstæðna hér norður frá og svo standast rök ekki fyrir hertum kröfum. Það eru til dæmis engin vísindaleg rök fyrir því að banna fiskimjöl í fóðri jórturdýra. Rýmiskrafan í fjárhúsum verður líka sérkennileg í því ljósi að með henni eru gerðar kröfur um meira en tvöfalt það rými sem gildir í aðbúnaðarreglugerð fyrir hefðbund- in fjárbú. Þarna er auðvitað verið að miða við evrópsk kyn – sem eru flest stórvaxnari og þyngri,“ sagði Ólafur. Útflutningshagsmunir vegna þörungaafurða Í umfjöllun blaðsins 9. mars var enn fremur leitað svara í ráðuneytinu varðandi þá ákvörðun að hverfa frá aðlögunarkröfunum. Guðmundur Kristján Jónsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, svaraði því þannig að það væri vegna útflutningshagsmuna – að ef Ísland héldi kröfum sínum til streitu væri hætta á að lífræn vottun á íslenskum afurðum fengist hvort eð er ekki viðurkennd á innri mark- aðnum þar sem eldri reglur væru í gildi. „Stærstur hluti útflutnings lífrænna afurða er með þörunga- afurðir sem hefur farið vaxandi. Þar að auki er mikilvægt fyrir neytendur að reglur ESB taki gildi. Íslenskar reglur um lífræna landbúnaðarfram- leiðslu hafa ekki verið uppfærðar í sex ár. Listar yfir ríki utan EES og framleiðendur þaðan, sem fram- leiða lífrænar vörur sem standast kröfur ESB, eru ekki í notkun hér. Eftirlit með innflutningi á lífrænt ræktuðum vörum mun því batna með þessum reglum,“ sagði í svar- inu. Löggjöfin samanstendur af 41 svokallaðri gerð sem innleiddar eru með tveimur innleiðingarreglu- gerðum; annars vegar um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara og hins vegar um fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá löndum utan Evrópu. /smh FRÉTTIR Enginn skortur var í kjötdeildinni í Costco þegar blaðamaður var á ferðinni á dögunum. Mynd / smh Steve Barnett. Mynd / Costco Hér má sjá upprúllaða bringukolla og nautalundir. Halla Steinólfsdóttir. Mynd / smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.