Bændablaðið - 06.07.2017, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Costco stefnir að lægsta verði miðað við gæði:
Eftirspurn eftir ferska kjötinu
farið langt fram úr væntingum
– nota eigin aðferðir í eigin kjötvinnslu við kjötskurð
Óhætt er að segja að innkoma
Costco inn á matvörumarkaðinn
íslenska hafi með ýmsum hætti
haft veruleg áhrif á verslun með
matvöru í landinu. Nýjar matvör-
ur sjást í fyrsta skipti á Íslandi í
versluninni og verðlag á ýmsum
vörum sem hafa flokkast sem
munaðarvörur er í einhverjum
tilvikum mun lægra í Costco en
Íslendingar hafa átt að venjast.
Steve Barnett, viðskiptastjóri
Costco fyrir Bretland og Ísland, var
spurður út í nokkur atriði í vöruúr-
valinu sem hafa vakið forvitni; til að
mynda varðandi aðföng, kjötskurð,
gæðastjórnun og verðlag.
Í viðskiptum við 40 íslenska
birgja
„Við flytjum til Íslands grænmeti
og ávexti sem er gæðastjórnað
með annarri vöru sem við seljum
um allan heim. Okkar kjötbirgjar
í fersku kjöti eru á Íslandi og við
erum í viðskiptum við nokkra
af þeim helstu þar,“ segir Steve
Barnett. Þegar hann er spurður
út í hvort þeir biðji um einhverja
sértaka skurði á skrokkunum
segir hann að þeir séu með sína
eigin kjötiðnaðarmenn í verslun-
inni sem vinna kjötið eftir þeirra
eigin aðferðum. „Eftirspurnin eftir
ferska kjötinu okkar hefur farið
langt fram úr okkar væntingum og
það hafa komið dagar þar sem við
höfum orðið uppiskroppa með til-
teknar vörur. Nú vinnum við náið
með okkar birgjum að bregðast
við þessu og hafa vöruframboðið
í þessum kjötvörum stöðugra.
Megnið af því sem ég myndi
kalla mjólkurvörur er fengið frá
Íslandi. Við erum með osta frá
Íslandi, Bretlandi, Frakklandi og
Ítalíu. Meira en 40 prósent af okkar
grunnlager er af íslenskum upp-
runa, en auðvitað er þetta breytilegt
eftir árstíma þar sem við erum alltaf
að prófa nýjar ostategundir frá mis-
munandi löndum.“
Það er stefna okkar eins og er að
ræða ekki um viðskiptasambönd
við birgja, þannig að ég get ekki
gefið upp hverjir þeir eru. Ég get
þó sagt að vörunúmerin eru yfir
200 sem við eigum í viðskiptum
með, við yfir 40 íslenska birgja
– þar með talið hráefni sem við
notum fyrir okkar eigin framleiðslu
á tilbúnum réttum og í bakaríinu,“
segir Steve Barnett.
Stefnt að lægsta verði
miðað við gæði
Steve Barnett er spurður út
í verðstefnuna í ávextum og
grænmeti – hvort það sé markmið
að keppa við verð í sambærilegum
íslenskum verslunum. Hann segir
auðvelt að svara þessu, því það sé
yfirlýst stefna fyrirtækisins að sjá
meðlimum sínum fyrir gæðavöru á
sem lægsta verði. „Það er mögulegt
að meðlimir okkar geti keypt ódýrari
vörur annars staðar, en það er
ekki mögulegt að fá vörur í þeim
gæðaflokki sem við bjóðum ódýrari
í öðrum verslunum.
Þannig að það má segja að við
erum með skýra stefnu um að vera
með lægsta verðið, miðað við sömu
gæði. Þetta á reyndar við um allar
okkar vörur.“
Viðskiptavinir hafa tilfinningu
fyrir gæðum og virði vara
Sem kunnugt er stóð Ríkisútvarpið
fyrir verðkönnun á dögunum þar sem
49 vörutegundir voru valdar með
aðstoð ASÍ og verðlag þeirra borið
saman á milli verslana Krónunnar,
Bónus og Costco. Niðurstaðan var
sú að verðlag á vörunum var oftast
dýrast í Costco, en líka oftast ódýrast.
Samanlagt var innkaupakarfan
aðeins meira en helmingi dýrari í
Costco en í Krónunni og Bónus,
þar sem verðlag samtals var svipað.
Þegar Steve Barnett er spurður
um álit hans á þessari könnun, segir
hann að það sé trú þeirra hjá Costco
að viðskiptavinirnir hafi tilfinningu
fyrir gæðum og virði varanna.
„Margar vörur sem notaðar voru til
samanburðar í könnuninni, voru ekki
sambærilegar í gæðum og þess vegna
gefur könnunin ekki sanna mynd af
virði okkar vara,“ segir hann. /smh
Hertar reglur um lífrænt
vottaða framleiðslu
Þann 30. maí síðastliðinn var lög-
gjöf Evrópusambandsins (ESB)
um lífræna framleiðslu innleidd
í íslenskt regluverk. Með inn-
leiðingunni missa íslenskir fram-
leiðendur undanþáguákvæði sem
voru til staðar í aðlögunarferlinu.
Undanþágurnar – eða aðlögunar-
kröfurnar eins þær voru kallaðar
– sneru til að mynda að ákveðn-
um rýmiskröfum í gripahúsum,
banni við notkun á grindargólfum
og banni við notkun á fiskimjöli í
fóðri jórturdýra.
Í tilkynningu frá Matvælastofnun
þann 15. júní síðastliðinn segir að
með innleiðingunni séu gerðar
ítarlegri kröfur til lífrænnar
framleiðslu í gegnum allt
framleiðsluferlið, allt frá öflun
aðfanga til markaðssetningar
lokaafurða. Lífræn vottun og eftirlit
verður áfram hjá sjálfstætt starfandi
vottunarstofum sem starfa undir
eftirliti Einkaleyfastofunnar. Fram til
þessa hefur vottunarstofan Tún verið
eini aðilinn sem hefur faggildingu til
að votta lífræna framleiðslu á Íslandi.
Meira rýmis krafist
Gunnar Gunnarsson, fram kvæmda-
stjóri Vottunarstofunnar Túns, segir
að framleiðendur hafi tækifæri til að
ljúka framleiðslu sem hafin var fyrir
tíma innleiðingar og markaðssetja
hana sem lífræna, þannig að bændur
hafa þokkalega rúman tíma til að gera
breytingar, að því leyti sem þeirra er
þörf, áður en næsta framleiðslu- og/
eða ræktunartímabil rennur upp.
„Úttektir sem gerðar eru frá og með
júnímánuði veita bændum og öðrum
framleiðendum kost á að kortleggja
hvaða breytingar gera þarf til þess að
kröfur samkvæmt hinni nýju löggjöf
verði uppfylltar þegar næsta úttekt fer
fram,“ segir hann. Helstu breytingar
gagnvart landbúnaðinum eru að sögn
Gunnars að nú sé krafist meira rýmis
fyrir hvern grip í búpeningshúsum.
„Til dæmis er lágmarksrými á
hverja kind 1,5 fermetri í stað 1,0
fermetra áður. Þá verður allt búfé
að hafa aðgang að heilum gólfum í
legurými, þar með talið sauðfé, en
þó má allt að 50 prósent legurýmis
í fjárhúsum vera grindur ef þær
eru í góðu ásigkomulagi. Þá þurfa
bændur sem nota kjarnfóður að finna
hentugan lífrænan próteingjafa í stað
fiskimjöls sem ekki er lengur leyft
til fóðrunar jórturdýra. Ýmsar aðrar
breytingar koma til framkvæmda, þótt
þær hafi að líkindum minni áhrif, og
má meðal annars nefna að framvegis
þurfa eftirlitsaðilar að taka sýni afurða
til efnagreiningar hjá hluta vottaðra
framleiðenda.“
Reynir á ráðunauta
og stuðningskerfið
Gunnari er ekki kunnugt um að
framleiðendur hafi hætt eða muni
hætta vegna innleiðingar hinna nýju
reglugerða. „Ég tel ástæðu til að ætla
að flestir eða allir núverandi bændur
muni halda áfram í lífrænum búskap,
en það mun hins vegar ekki að fullu
koma í ljós fyrr en líður á árið og
nýtt framleiðslutímabil nálgast. Þau
ákvæði sem mest áhrif kunna að hafa á
framkvæmd eldis og ræktunar eru ekki
þess eðlis að þau séu óyfirstíganleg.
Þar reynir annars vegar á ráðunauta
leiðbeiningaþjónustunnar um að
setja fram hagnýtar leiðir til að leysa
málin, og hins vegar á stuðning til
aðlögunar og breytinga samkvæmt
reglugerð um fjárstyrki til lífrænnar
framleiðslu. Hvort tveggja á að veita
bændum þann tilstyrk sem til þarf.“
Erfiðar kröfur fyrir
sauðfjárbændur
Hér í blaðinu 9. mars síðastliðinn
var rætt við Höllu Steinólfsdóttur,
sem stundar lífrænt vottaðan
sauðfjárbúskap í Ytri-Fagradal
á Skarðsströnd, og Ólaf
Dýrmundsson, fulltrúa Íslands í
Evrópusambandshópi lífrænna
landbúnaðarhreyfinga og
fyrrverandi ráðunaut í lífrænum
búskap, um fyrirhugaðar breytingar.
Bæði lýstu þau áhyggjum sínum
af þeim og töldu hættu á því að
einhverjir sauðfjárbændur myndu
hætta með lífræna vottun, gengi
innleiðingin í gegn með þessum
hætti. „Ég hef verið að ræða þetta
við félaga mína sem líst alls kostar
illa á þessi áform. Ef það á að fara
að taka hart á þessum skilyrðum
sem snúa að fjárbúskapnum
– varðandi grindargólfin og
rýmisþörfina – þá er ég ekki viss
um að við lifum það af í lífrænum
búskap. Það myndi hreinlega vera
of kostnaðarsamt að fara út í svo
miklar breytingar. Við byggðum
stórt hús árið 2005 með grindargólfi
til þess að hagkvæmara sé að hirða
búfjáráburðinn. Lömbin fæðast þar
en eru mestan sinn líftíma frjáls um
fjöll og dali og koma inn að hausti
til að fara á sláturbíl. Aðgengi að
hálmi til undirburðar hér á landi
er ekki sambærilegt því sem er í
Evrópu,“ sagði Halla.
Ólafur sagði að breytingarnar
gætu orðið til þess að lífrænt vott-
uð sauðfjárrækt leggist niður hér
á landi. „Ekki verður tekið tillit
til sérstakra aðstæðna hér norður
frá og svo standast rök ekki fyrir
hertum kröfum. Það eru til dæmis
engin vísindaleg rök fyrir því að
banna fiskimjöl í fóðri jórturdýra.
Rýmiskrafan í fjárhúsum verður
líka sérkennileg í því ljósi að með
henni eru gerðar kröfur um meira
en tvöfalt það rými sem gildir í
aðbúnaðarreglugerð fyrir hefðbund-
in fjárbú. Þarna er auðvitað verið
að miða við evrópsk kyn – sem eru
flest stórvaxnari og þyngri,“ sagði
Ólafur.
Útflutningshagsmunir vegna
þörungaafurða
Í umfjöllun blaðsins 9. mars var enn
fremur leitað svara í ráðuneytinu
varðandi þá ákvörðun að hverfa frá
aðlögunarkröfunum. Guðmundur
Kristján Jónsson, aðstoðarmaður
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, svaraði því þannig að það
væri vegna útflutningshagsmuna –
að ef Ísland héldi kröfum sínum til
streitu væri hætta á að lífræn vottun
á íslenskum afurðum fengist hvort
eð er ekki viðurkennd á innri mark-
aðnum þar sem eldri reglur væru
í gildi. „Stærstur hluti útflutnings
lífrænna afurða er með þörunga-
afurðir sem hefur farið vaxandi. Þar
að auki er mikilvægt fyrir neytendur
að reglur ESB taki gildi. Íslenskar
reglur um lífræna landbúnaðarfram-
leiðslu hafa ekki verið uppfærðar
í sex ár. Listar yfir ríki utan EES
og framleiðendur þaðan, sem fram-
leiða lífrænar vörur sem standast
kröfur ESB, eru ekki í notkun hér.
Eftirlit með innflutningi á lífrænt
ræktuðum vörum mun því batna
með þessum reglum,“ sagði í svar-
inu.
Löggjöfin samanstendur af 41
svokallaðri gerð sem innleiddar
eru með tveimur innleiðingarreglu-
gerðum; annars vegar um lífræna
framleiðslu og merkingu lífrænna
vara og hins vegar um fyrirkomulag
á innflutningi lífrænna afurða frá
löndum utan Evrópu. /smh
FRÉTTIR
Enginn skortur var í kjötdeildinni í Costco þegar blaðamaður var á ferðinni á dögunum. Mynd / smh
Steve Barnett. Mynd / Costco
Hér má sjá upprúllaða bringukolla
og nautalundir.
Halla Steinólfsdóttir. Mynd / smh