Bændablaðið - 06.07.2017, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2017
Fámennt en góðmennt á Fjórðungsmóti Vesturlands:
Gæðingaveisla í Borgarnesi
− Skapti Steinbjörnsson var valinn knapi mótsins og Arna frá Skipaskaga hestur mótsins
Rúmlega 1.000 manns komu saman
á Fjórðungsmóti Vesturlands í
Borgarnesi dagana 28. júní til 2.
júlí sl. Þar öttu kappi gæðingar
og hestamenn af Vesturlandi,
Húnavatnssýslum og Skagafirði.
Skapti Steinbjörnsson var valinn
knapi mótsins og Arna frá
Skipaskaga hlaut titilinn Hestur
mótsins.
Ingi Tryggvason, formaður
framkvæmdarnefndar Fjórðungs-
mótsins, segist sáttur með útkomuna,
þótt mótsókn
hafi ekki
staðist vænt-
ingar. „Mótið
gekk allt mjög
vel og dagskrá
var á áætlun.
Vell irnir stóð-
ust álagið
vel, knap-
arnir lýstu
yfir ánægju
bæði með
aðal völl og
nýja kynbóta-
völlinn. Við bjuggumst þó við aðeins
fleiri gestum.“
Þátttaka á mótið var með besta
móti og segir Ingi það benda til þess
að Fjórðungsmót eigi enn tilverurétt.
„Hugsanlega þarf þó að endurskoða
fyrirkomulag Fjórðungsmóta með
tilliti til fjölda móta á þessum tíma
árs, en í júní og júlí eru mót nánast
allar helgar. Það þyrfti að lágmarka
kostnaðinn enn frekar, til að mynda
liggur mikill kostnaður í tæknimálum
á svona móti. Þá mætti líka skoða
að stytta mótið um einn dag. Aftur
á móti hafa margir lýst yfir ánægju
með að dagskráin sé ekki mjög
þétt. Þannig hefur gefist tími til að
gera eitthvað annað en að horfa á
hestana,“ segir Ingi.
Frábær hestakostur
Lárus Ástmar Hannesson, formaður
Landssambands hestamannafélaga,
segir það hafa sýnt sig í ár að þátttaka
Húnvetninga og Skagfirðinga sé
framfaraskref fyrir Fjórðungsmótið.
„Hestakosturinn var frábær og
reiðmennskan mjög góð. Svæðið,
vellir og skipulag var til fyrirmyndar,
þótt tjaldsvæðið hafi verið svolítið
langt í burtu. Skipuleggjendur
mótsins og Borgnesingar eiga
heiður skilið fyrir gott mót. Hins
vegar vantaði fleira fólk og meiri
stemningu,“ segir hann.
Lárus var enn fremur keppandi á
mótinu en hann sat stóðhestinn Atlas
frá Lýsuhóli í A-úrslitum í A-flokki
gæðinga og hlutu þeir brons fyrir
frammistöðu sína. „Það er alltaf
gaman að vera á góðum hesti. Þetta
er svona hestur sem gerir allt, maður
þarf bara að passa að trufla hann
ekki,“ segir Lárus.
Sterk gæðingakeppni
Mótið fór fram á tveimur völlum.
Á aðalvelli fór fram gæðingakeppni
í öllum flokkum ásamt opinni
töltkeppni og skeiðkappreiðum.
Stóðhesturinn Trymbill frá Stóra-
Ási sigraði A-flokk gæðinga með
vandaðri sýningu en eigandi hans,
Mette Mannseth, sat gæðinginn.
Merargullið Arna frá Skipaskaga
sigraði B-flokk gæðinga örugglega,
undir stjórn Sigurðar Sigurðarsonar.
Arna var þar að auki valin hestur
mótsins.
Knapi mótsins að mati dóm-
ara var Skapti Steinbjörnsson á
Hafsteinsstöðum. Hann fór mik-
inn á mótinu og var m.a. í 4 sæti
í A-flokki gæðinga á 5 vetra hrys-
su, Hrafnistu frá Hafsteinsstöðum,
ásamt því að hljóta silfur í B-flokki
gæðinga með gæðinginn Odda frá
Hafsteinsstöðum.
Yngri knapar sýndu ekki síður
glæsilega reiðmennsku. Sonja S.
Sigurgeirsdóttir og Jónas frá Litla-
Dal fóru með sigur af hólmi í ung-
mennaflokki eftir að hafa unnið
sig upp úr B-úrslitum. Guðný
Rúna Vésteinsdóttir og Þruma frá
Hofsstaðaseli sigraði í unglinga-
flokki nokkuð örugglega. Guðmar
Hólm Ísólfsson Líndal sigraði barna-
flokk á Daníel frá Vatnsleysu en þeir
höfðu einnig farið fjallabaksleið að
sigrinum líkt og Sonja.
Jakob Svavar Sigurðsson og
Júlía frá Hamarsey sigruðu opna
töltkeppni mótsins og Guðmar Freyr
Magnússon og Fönix frá Hlíðartúni
sigraði töltkeppni 17 ára og yngri.
Helga Una Björnsdóttir hlaut reið-
mennskuverðlaun Félags tamninga-
manna á mótinu. Hún kom fram með
hross bæði í keppni og kynbótasýn-
ingum og þótti sýna vandaða, fram-
úrskarandi reiðmennsku á áverka-
lausum hestum og prúða framkomu
á mótinu.
Hestagull á kynbótabrautinni
Á nýendurgerðum kynbótavelli komu
fram 64 kynbótahross. Hæst dæmda
kynbótahross mótsins, og jafnfram
efsta hryssa í flokki 7 vetra og
eldri, var Álfrún frá Egilsstaðakoti.
Hún hlaut 8,75 í aðaleinkunn, 8,39
fyrir sköpulag og 8,99 fyrir kosti.
Álfrún er undan Álfi frá Selfossi og
Snögg frá Egilsstaðakoti en knapi
hennar var Helga Una Björnsdóttir,
sem á hryssuna ásamt Einari
Hermundssyni, sem enn fremur
ræktaði gripinn.
Kylja frá Stóra-Vatnsskarði var
efst 6 vetra hryssna. Hún hlaut 8,38
í aðaleinkunn, 8,03 fyrir sköpulag
og 8,61 fyrir kosti. Kylja er undan
Kiljani frá Steinnesi og Lukku
frá Stóra-Vatnsskarði. Benedikt
Benediktsson er ræktandi hennar
og eigandi en Hans Þór Hilmarsson
sýndi hryssuna. Þess má geta að
Kiljan frá Steinnesi hefur nú náð
lágmarki til heiðursverðlauna fyrir
afkvæmi sem hann mun að öllum
líkindum hljóta á Landsmóti 2018.
Krús frá Skipaskaga var hæst 4
vetra hryssna en hún hlaut 8,28 í
aðaleinkunn. Fyrir sköpulag hlaut
Krús 8,69 og 8,00 fyrir kosti. Krús
er undan Steinari frá Skipaskaga og
Krús frá Ólafsvík. Daníel Jónsson
sýndi Krús.
Hæst 5 vetra hryssna var Ísey frá
Lækjamóti. Hún hlaut í aðaleinkunn
8,60, 8,70 fyrir sköpulag og 8,54
fyrir kosti. Ísey er undan Jóni frá
Kjarri og Hrönn frá Leysingjastöðum
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
HROSS&HESTAMENNSKA