Bændablaðið - 26.04.2018, Side 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
FRÉTTIR
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
KLEFAR
Kæli- & frystiklefar
í miklu úrvali.
Vottaðir gæðaklefar með
mikla reynslu á Íslandi.
Einfaldir í uppsetningu.
HILLUR
fyrir kæli- & frystiklefa.
Mikið úrval og auðvelt að setja saman.
Sérhannaðar fyrir matvæli.
KÆLI & FRYSTI
BÚNAÐUR
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
HLUNNINDI&VEIÐI
„Það hefur verið þannig að mestu
laxveiðiár Íslandssögunnar eru
þau er enda á tölunni átta,“
segir Haraldur Eiríksson hjá
Hreggnasa.
„Þannig má nefna árin 1978,
1988 og 2008. Þannig við skulum
vona að þessi tíu ára hringur haldi
áfram og við fáum fantagott sumar.
Mér finnst við eiga það inni. En eins
og segir er ég hóflega bjartsýnn, en
ég bíð eftir því að norðausturhornið
taki við sér, og ár líkt og Hofsá, Selá
og Hafralónsá skili góðum afla. Það
er kominn tími á Austurlandið að
mér finnst.
Það verður þó ákaflega spennandi
að fylgjast með Vesturlandinu.
Seiðasleppingar í flestar árnar heyra
nú sögunni til, og nú þarf að sjá hver
raunveruleg framleiðslugeta ánna
er. Ég er ákaflega ánægður með
þá þróun og að árnar séu með öllu
sjálfbærar. Til að svo megi vera
þurfa veiðiréttarhafar og leigutakar
að huga að sínum og tryggja að
nægilega stór hrygningarstofn sé til
staðar. Stofnar stórlaxa hafa einnig
verið á uppleið, en því miður hefur
það verið smálaxinn sem hefur
verið að klikka undanfarin ár og
það kemur niður á veiðitölunum og
veiðinni síðla sumars.
Eins hefur laxinn verið að mæta
fyrr, sem hefur gert það að verkum
að veiðitíminn hefur verið færður
framar í þó nokkrum ám. Vonandi
verður áframhald á því.“
Gott á Norður- og Austurlandi, í
meðallagi syðra
„Til að draga þetta saman þá spái ég
góðri smálaxagengd á Norður- og
Austurlandi og meðalveiði í ánum
hér sunnan heiða sem byggist í
bland á smálaxi og ágætum
stórlaxagöngum snemmsumars.“
Blikur á lofti og hræsni í
umræðum
Haraldur er ekkert sérlega ánægður
með stöðuna á veiðileyfamarkaði.
„Mér finnst markaðurinn vera
erfiður. Úti í heimi kvarta veiðimenn
sáran yfir sterkri krónu, og það
verður að segjast eins og er að þessar
eilífu sveiflur á gjaldmiðlinum
eru ekki beint að hjálpa okkur
sem erum með stærstan hluta af
veiðileyfaveltunni erlendis. Að sama
skapi er innanlandsmarkaðurinn
ákaflega erfiður og ekki hjálpar
til hækkandi verð ofan í stöðu
krónunnar.“
– Hvað veldur?
„Ég tel þetta að hluta til vera
ímyndarvandamál. Gott dæmi er
fyrirtækjamarkaðurinn sem mjög
hefur dregist saman. Nú er það
orðið bannorð að fara í laxveiði og
það jaðrar við atvinnuróg hvernig
farið er fram í fjölmiðlum. Sem
dæmi eru lífeyrissjóðir orðnir stórir
eigendur í atvinnulífinu og hjá þeim
er algengt að bannað sé að þiggja
laxveiðiferðir. Á sama tíma er farið
í golf- og fótboltaferðir erlendis án
þess að nokkuð þyki fréttnæmt í
þeim efnum. Þetta jaðrar við hræsni
í mínum bókum.
Eins hafa forsvarsmenn sjókvía-
eldis hérlendis farið hart fram í að
sverta orðspor íþróttarinnar. Þessi
norsku fyrirtæki eru með eitt stykki
fyrrverandi forseta Alþingis á
spenanum sem hefur verið nokkuð
duglegur í þeim efnum ásamt
meðreiðarsveinum sínum í pólitíkinni
á Vestfjörðum. Þá helst til að breiða
yfir þann skaða sem þeir sjálfir eru
að valda á náttúrunni og lífríkinu.
Ég vil sjá landeigendur og þá sem
þiggja arð af stangaveiði láta vel í
sér heyra þegar kemur að þessum
málaflokki. Yfir 50% atvinnutekna
í landbúnaði á Vesturlandi koma
frá stangaveiðimönnum og það að
þessari mikilvægu tekjulind sé ógnað
með þessum hætti er einfaldlega ekki
bjóðandi.“
Varmá við Hveragerði:
Fyrsti fiskurinn kominn á land
– Halldór Gunnarsson í spjalli um sumarið
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
„Ég er hóflega bjartsýnn á laxveiðina“
– segir Haraldur Eiríksson hjá Hreggnasa um komandi sumar
Það var nokkuð líflegt í opnuninni
í Varmá, en Flugubúllubræður,
Steinþór og Halldór, voru mættir
í opnunina til að ná úr sér mesta
veiðihrollinum, og það gekk eftir
að fá að taka í sporð.
Fyrsti fiskurinn var kominn
á land rétt um klukkan 9. Sá var
rúmlega 70 cm birtingur og voru
það Bakkarnir sem voru að gefa vel.
„Þetta var virkilega skemmtilegur
dagur, fiskur um allt og allir að fá
flotta fiska,“ segja Steinþór og
Halldór.
„Árið er að fara vel af
stað,“ segir Sigurður, þriðji
Flugubúllubróðirinn, íbygginn.
„Ef fram heldur sem horfir
verður þetta svakalega skemmtilegt
í sumar. Helstu áhyggjurnar eru
kannski vatnsleysi þegar kemur
fram á sumarið. En við biðjum bara
til æðri máttarvalda og mætum því
sem koma skal með jákvæðni.
Flugubúllan, sem var búin að
eiga sitt aðsetur á netinu undanfarin
ár, opnaði nýja verslun í desember
2017 í Kópavogi, en Flugubúlluna
stofnuðu æskufélagarnir Steinþór,
Halldór, og Sigurður árið 2016,“
segir Halldór um leið og hann
dregur inn fluguna þegar sumarið
er að rétt að byrja.
Fyrsti veiðitúrinn er í fullum
gangi, það skiptir öllu. Við
kveðjum þá félaga, fiskurinn vakir
og tekur fluguna. Það er toppurinn.
Sjóbirtingsveiðin hefur gengið vel
síðan hún byrjaði og margir flottir
fiskar veiðst. En líklega hafa veiðst
yfir 2.000 fiskar víða og margir
vel vænir. Veiðisumarið lofar bara
góðu.
Mynd / G.Bender
Úlfar ævintýranna á Sólheimum
Það er hefð fyrir því að Leikfélag
Sólheima frumsýni á sumardaginn
fyrsta. Á því var engin breyting í
ár og var frumsýnt nýtt íslenskt
barnaleikrit, Úlfar ævintýranna.
Höfundur er leikstjórinn
Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson
og tónlistina semur Hallbjörn V.
Rúnarsson, forstöðuþroskaþjálfi á
Sólheimum. Í Úlfari ævintýranna
eru sett saman fjögur þekkt
ævintýri, Rauðhetta, Grísirnir þrír,
Sætabrauðsdrengurinn og Úlfur
Úlfur. Rúmur helmingur íbúa
og starfsmana Sólheima koma
á einhvern hátt að sýningunni.
Sýnt verður í Íþróttaleikhúsinu á
Sólheimum.
Næstu sýningar eru 28. apríl
klukkan 16.00, 29. apríl klukkan
14.00 og lokasýning verður 1. maí
klukkan 14.00
Miðasalan er í síma 847 5323
www.solheimar.is. Verslunin Vala
verður opin á sýningardögum frá
14.00–17.00
Verið hjartanlega velkomin og
njótið.