Bændablaðið - 26.04.2018, Page 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Grýtubakkahreppur hefur auglýst
eftir aðilum sem áhuga hafa á að
bjóða upp á heilsárs ferðaþjónustu
í sveitarfélaginu. Til að styðja við
heilsárs ferðaþjónustu eru einnig
auglýst samhliða takmörkuð
afnot af landi sveitarfélagsins til
þyrluskíðamennsku frá hausti
2021.
Afnotarétturinn nær til jarðanna
Þönglabakka, Láturs, Keflavíkur,
Hóls í Þorgeirsfirði, Botns,
Kaðalstaða, Gils, Kussungsstaða,
Grenivíkur, Hvamms 1, en þó ekki
ræktarlands þessara jarða. Einnig
á sveitarfélagið jörðina Svínárnes
að hálfu.
Hinir áhugasömu skulu skila
inn ítarlegum hugmyndum um
áætlanir sínar um uppbyggingu
ferðaþjónustu í sveitarfélaginu og
áætlaðan fjölda starfa sem kunna
að verða til þar vegna þeirrar
uppbyggingar. Einnig upplýsingum
um reynslu og þekkingu af
ferðaþjónustu og þjónustu henni
tengdri auk upplýsinga um reynslu
og þekkingu af þyrluskíðamennsku.
Að auki áætlanir um kynningu og
markaðsstarf svæðisins í heild sem
valkost í ferðaþjónustu, bæði hér á
landi og erlendis.
Þess er óskað að auk áðurnefndra
upplýsinga verði eftir atvikum lögð
fram gögn er varða fjármögnun
verkefna og annað sem máli kann
að skipta varðandi mat á því hvort
þær hugmyndir sem fram verða
settar séu raunhæfar og líklegt að
þær gangi eftir.
Stefnt er að því að gefa þeim
aðilum sem lýsa yfir áhuga
sínum, tækifæri til þess að kynna
hugmyndir sínar fyrir sveitarstjórn,
áður en ákvörðun verður tekin um
samstarfsaðila. Frestur til þess að
skila inn upplýsingum er til 4. maí
2018. /MÞÞ
Grýtubakkahreppur leitar eftir samstarfsaðilum:
Vill uppbyggingu heilsárs ferðaþjónustu á svæðinu
FRÉTTIR
Grenivík. Mynd / HKr.