Bændablaðið - 26.04.2018, Síða 28

Bændablaðið - 26.04.2018, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Lýðháskólinn settur á fót á Flateyri: Frelsi, þekking og þroski Í kynningu um Lýðháskólann á Flateyri segir að skólinn sé samfélag nemenda og kennara sem býður fólki tækifæri til að þroskast og mennta sig í samstarfi við íbúa á Flateyri. Einkunnarorð skólans eru frelsi, þekking og þroski. Helena Jónsdóttir, skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri, segir að mikil undirbúningsvinna liggi að baki stofnun skólans við skipulagningu og gerð námskrár. „Í janúar síðastliðinn var svo farið á fulla ferð eftir að fékkst fjármagn til að ráða framkvæmdastjóra til að keyra verkefnið áfram. Formlega var skólinn síðan settur á laggirnar 15. apríl síðastliðinn og auglýst eftir umsóknum.“ Tvær námsbrautir Að sögn Helenu verða kenndar tvær námsbrautir við skólann og er hver tvær annir með sex til sjö námskeiðum, Hafið, fjöllin og þú og Hugmyndir, heimurinn og þú, sem hver um sig tekur við að hámarki 20 nemendum. „Á námsbrautinni Hafið, fjöllin og þú er lögð áhersla á að nýta þær auðlindir sem til eru í náttúru, menningu og samfélagi á Flateyri og í nærsveitum og með námskeiðum er lögð áhersla á færni, þekkingu og verkefni sem miða að því að nemendur verði færari í að ferðast um í náttúrunni, njóta hennar og nýta sér auðlindir hennar á öruggan og umhverfisvænan máta. Á hinni brautinni, sem kallast Hugmyndir, heimurinn og þú, er lögð áhersla á hugmyndavinnu og sköpun og útfærslu í hvers kyns formum, auk tjáningar og miðlunar. Með námskeiðum er lögð áhersla á ólík skapandi verkefni sem miða að því að nemendur öðlist færni í heimildaöflun, markvissri hugmyndavinnu og sköpun í ólíkum formum auk miðlunar til samfélagsins. Námskrá skólans er óhefð- bundin og við leyfðum ímynduna- raflinu að ráða og leituðum til þeirra auðlinda sem er að finna á Flateyri, bæði sem samfélag og náttúran í kring og úr því urðu til þessar tvær námsbrautir.“ Úti í öllum veðrum Að sögn Helenu fer aðeins hluti námsins við skólann fram innandyra og í hefðbundnum kennslustofum. „Við verðum á mismunandi stöðum og stundum úti, í öllum veðrum og stundum við líkamlega krefjandi aðstæður. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að vera hreyfanlegur og til í ýmislegt. Það er mikilvægt að nemendur séu opnir fyrir nýjum upplifunum og því að reyna á sig við aðstæður sem þeir hafa ekki verið í áður. Uppbygging námsins Kennsla við skólann hefst 19. september næstkomandi og eru öll námskeið kennd í tveggja vikna stuttum en hnitmiðuðum lotum. Helena segir að með stuttum námslotum sé auðveldara fyrir nemendur og kennara að einbeita sér að hverju námskeiði fyrir sig og kynna sér viðfangsefnin til hlítar. „Einnig gefst svigrúm fyrir kennara og nemendur til að staldra við áhugaverð viðfangsefni hverju sinni. Þetta fyrirkomulag skapar jafnframt aukin tækifæri til að fá reynslumikið fólk og fagaðila víðs vegar að af landinu og utan úr heimi til að kenna námskeið við skólann.“ Flateyri tilvalinn staður fyrir lýðháskóla „Umhverfi eins og á Flateyri býður upp á flest sem þarf til sköpunar. Hér er stutt í náttúruna og auðvelt að skapa eitthvað í tengslum við hana.“ „Á skíðum skemmti ég mér“. Myndir / Lýðháskólann á Flateyri Helena Jónsdóttir, skólastjóri Lýðháskólans á Flateyri. ráða mótun hennar.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.