Bændablaðið - 26.04.2018, Side 30

Bændablaðið - 26.04.2018, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Stefnt er að því að flytja alla meginstarfsemi ÍSAGA í Voga á Vatnsleysuströnd í framtíðinni en ný 2,5 milljarða króna verksmiðja fyrirtækisins var tekin þar formlega í notkun af iðnaðar- og viðskiptaráðherra við hátíðlega athöfn síðasta vetrardag. Verksmiðjan framleiðir súrefni og köfnunarefni úr andrúmsloftinu og mun styðja við ört vaxandi íslenskan iðnað og framleiðslu, ásamt því að sjá heilbrigðisþjónustunni áfram fyrir hágæða súrefni á öruggan hátt. Bygging nýju súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju ÍSAGA ehf. og þýska móðurfélagsins Linde við Heiðarholt í Vogum á Vatnsleysuströnd er fyrsta skrefið í að flytja þangað alla meginstarfsemi þessa gamalgróna fyrirtækis, sem stofnað var árið 1919 í samstarfi við sænska fyrirtækið AGA. Með kaupum á AGA 1999 eignaðist Linde ÍSAGA en samsteypan er stærsta gasfyrirtæki heims í dag með starfsemi í yfir 100 löndum. Meiri afköst – minni orkunotkun – engin mengun Nýja verksmiðjan leysir af hólmi 40 ára gamla verksmiðju við Breiðhöfða í Reykjavík. Afkastageta hennar er um 1.200 m³ á klukkustund, eða 30% meiri en gömlu verksmiðjunnar, en orkunotkunin er samt umtalsvert minni. Fjárfestingarkostnaður vegna verksmiðjunnar er um 2,5 milljarðar króna, fyrst og fremst í tæknibúnaði. Hægt er að tvöfalda afkastagetuna þegar þurfa þykir og standa vonir til að það verði gert innan nokkurra ára samfara auknum uppgangi í fiskeldi, kísilmálmvinnslu, kæli- og frystiflutningum og endurvinnslu áls, ásamt áframhaldandi vexti í heilbrigðisþjónustu og hefðbundnum iðnaði. Verksmiðjan í Vogum er alsjálfvirk. Henni verður fjarstýrt af starfsfólki ÍSAGA sem fylgist með rekstrinum allan sólarhringinn á sama hátt og gert er í dag í verksmiðjunum við Breiðhöfða og að Hæðarenda í Grímsnesi, þar sem framleitt er koldíoxíð úr jarðhitavatni. Enginn mengandi úrgangur eða aukaefni fylgja framleiðslunni og eini útblásturinn er lyktarlaus vatnsgufa. Staðsetningin í Vogum dregur einnig umtalsvert úr kolefnisspori ÍSAGA en u.þ.b. 90% af því fljótandi súrefni sem fyrirtækið framleiðir fer til viðskiptavina sem eru í innan við 100 km fjarlægð frá Vogum. Hreint loft – tær snilld! Það er mikið öryggismál fyrir íslenskt þjóðfélag að vera sjálfbært í framleiðslu súrefnis og köfnunar- efnis, ekki síst með tilliti til öryggis sjúklinga. Sjálfbærni og umhyggja fyrir umhverfinu eru leiðarstef í starfsemi ÍSAGA og Linde og kapp- kostar fyrirtækið að vera með vist- vænar vörur og tæknilausnir, í takt við þá tæru snilld að vinna súrefni og köfnunarefni úr andrúmsloftinu – úr hreinu lofti með grænni orku. Auk þess að framleiða súrefni, köfn- unarefni og koldíoxíð flytur ÍSAGA inn lofttegundir eins og glaðloft, argon, helíum, acetylen og própan. Um 28 manns starfa að jafnaði hjá fyrirtækinu, sem er með höfuðstöðv- ar að Breiðhöfða, þar sem er m.a. áfyllingarstöð, skrifstofa og versl- un, auk þess sem félagið er með sjö afgreiðslustaði víðs vegar um landið. ÍSAGA flytur meginstarfsemina frá Reykjavík: Ný súrefnis- og köfnunar efnisverksmiðja tekin í notkun í Vogum á Vatnsleysuströnd Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA VÍKURVAGNAR EHF. RAFMAGNSBÚNAÐUR BREMSUR BEISLI DEKK LJÓS LED LJÓS Bernd Euilitz, framkvæmdastjóri Linde Group í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku, klippti á borða ásamt Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, þegar nýja verksmiðjan var formlega tekin í notkun. Nýja verksmiðjan í Vogunum kostaði 2,5 milljarða króna og getur framleitt 1.200 m³ á klukkustund, eða 30% meira en 40 ára gömul verksmiðja ÍSAGA við Breiðhöfða í Reykjavík. Ásgeir Eiríksson, sveitarstjóri í Vogum, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Bernd Eulitz, framkvæmdastjóri Linde í Evrópu, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Andreas Opfermann, svæðisstjóri Linde í Norður-Evrópu og Guðmundur K. Rafnsson, framkvæmdastjóri iðnaðarsviðs ÍSAGA. Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.