Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Stefnt er að því að flytja alla
meginstarfsemi ÍSAGA í Voga á
Vatnsleysuströnd í framtíðinni en
ný 2,5 milljarða króna verksmiðja
fyrirtækisins var tekin þar
formlega í notkun af iðnaðar- og
viðskiptaráðherra við hátíðlega
athöfn síðasta vetrardag.
Verksmiðjan framleiðir súrefni og
köfnunarefni úr andrúmsloftinu og
mun styðja við ört vaxandi íslenskan
iðnað og framleiðslu, ásamt því að
sjá heilbrigðisþjónustunni áfram
fyrir hágæða súrefni á öruggan hátt.
Bygging nýju súrefnis- og
köfnunarefnisverksmiðju ÍSAGA
ehf. og þýska móðurfélagsins
Linde við Heiðarholt í Vogum á
Vatnsleysuströnd er fyrsta skrefið í
að flytja þangað alla meginstarfsemi
þessa gamalgróna fyrirtækis, sem
stofnað var árið 1919 í samstarfi
við sænska fyrirtækið AGA. Með
kaupum á AGA 1999 eignaðist
Linde ÍSAGA en samsteypan er
stærsta gasfyrirtæki heims í dag
með starfsemi í yfir 100 löndum.
Meiri afköst – minni orkunotkun
– engin mengun
Nýja verksmiðjan leysir af
hólmi 40 ára gamla verksmiðju
við Breiðhöfða í Reykjavík.
Afkastageta hennar er um 1.200
m³ á klukkustund, eða 30% meiri
en gömlu verksmiðjunnar, en
orkunotkunin er samt umtalsvert
minni.
Fjárfestingarkostnaður vegna
verksmiðjunnar er um 2,5 milljarðar
króna, fyrst og fremst í tæknibúnaði.
Hægt er að tvöfalda afkastagetuna
þegar þurfa þykir og standa vonir
til að það verði gert innan nokkurra
ára samfara auknum uppgangi í
fiskeldi, kísilmálmvinnslu, kæli- og
frystiflutningum og endurvinnslu
áls, ásamt áframhaldandi
vexti í heilbrigðisþjónustu og
hefðbundnum iðnaði.
Verksmiðjan í Vogum er
alsjálfvirk. Henni verður fjarstýrt
af starfsfólki ÍSAGA sem
fylgist með rekstrinum allan
sólarhringinn á sama hátt og gert
er í dag í verksmiðjunum við
Breiðhöfða og að Hæðarenda í
Grímsnesi, þar sem framleitt er
koldíoxíð úr jarðhitavatni. Enginn
mengandi úrgangur eða aukaefni
fylgja framleiðslunni og eini
útblásturinn er lyktarlaus vatnsgufa.
Staðsetningin í Vogum dregur einnig
umtalsvert úr kolefnisspori ÍSAGA
en u.þ.b. 90% af því fljótandi súrefni
sem fyrirtækið framleiðir fer til
viðskiptavina sem eru í innan við
100 km fjarlægð frá Vogum.
Hreint loft – tær snilld!
Það er mikið öryggismál fyrir
íslenskt þjóðfélag að vera sjálfbært
í framleiðslu súrefnis og köfnunar-
efnis, ekki síst með tilliti til öryggis
sjúklinga. Sjálfbærni og umhyggja
fyrir umhverfinu eru leiðarstef í
starfsemi ÍSAGA og Linde og kapp-
kostar fyrirtækið að vera með vist-
vænar vörur og tæknilausnir, í takt
við þá tæru snilld að vinna súrefni
og köfnunarefni úr andrúmsloftinu
– úr hreinu lofti með grænni orku.
Auk þess að framleiða súrefni, köfn-
unarefni og koldíoxíð flytur ÍSAGA
inn lofttegundir eins og glaðloft,
argon, helíum, acetylen og própan.
Um 28 manns starfa að jafnaði hjá
fyrirtækinu, sem er með höfuðstöðv-
ar að Breiðhöfða, þar sem er m.a.
áfyllingarstöð, skrifstofa og versl-
un, auk þess sem félagið er með sjö
afgreiðslustaði víðs vegar um landið.
ÍSAGA flytur meginstarfsemina frá Reykjavík:
Ný súrefnis- og köfnunar efnisverksmiðja
tekin í notkun í Vogum á Vatnsleysuströnd
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Bernd Euilitz, framkvæmdastjóri Linde Group í Evrópu, Mið-Austurlöndum
og Afríku, klippti á borða ásamt Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, þegar nýja verksmiðjan var formlega tekin í notkun.
Nýja verksmiðjan í Vogunum kostaði 2,5 milljarða króna og getur framleitt
1.200 m³ á klukkustund, eða 30% meira en 40 ára gömul verksmiðja ÍSAGA
við Breiðhöfða í Reykjavík.
Ásgeir Eiríksson, sveitarstjóri í Vogum, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Bernd Eulitz, framkvæmdastjóri Linde
í Evrópu, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Andreas Opfermann, svæðisstjóri Linde
í Norður-Evrópu og Guðmundur K. Rafnsson, framkvæmdastjóri iðnaðarsviðs ÍSAGA.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS