Bændablaðið - 26.04.2018, Side 36

Bændablaðið - 26.04.2018, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Þann 12. apríl var opnað á skráningar á allar kynbóta- sýningar vorsins. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www. worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu RML www.rml.is í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Þar má auk þess finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá á kynbótasýningu undir kynbótastarf/hrossarækt/ kynbótasýningar. Í töflunni hér til hliðar má sjá síðasta skráningardag á hverja og eina sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/ umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netföngin halla@rml og hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umráðamenn til að hafa tímann fyrir sér frekar en hitt þegar kemur að skráningum á sýningarnar. RML áskilur sér fullan rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við. Þar sem gert er ráð fyrir tveggja vikna sýningum, eins og á Gaddstaðaflötum og Hólum, verða vikurnar sameinaðar ef hrossafjöldi verður ekki nægur á báðar vikurn- ar. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist, sem eru 30 hross. Gerð er undantekning á þessu fyrir sýninguna á Stekkhólma á Fljótsdalshéraði en þar verða að nást 15 skráningar svo sýning verði haldin. Hér að neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær síðasti skrán- ingar- og greiðsludagur er. Sýningargjöld og fleira Gjald fyrir fullnaðardóm er 26.000 kr. en fyrir byggingadóm/ hæfileikadóm 20.500 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inni á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna. Endurgreiðslur á sýningar- gjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16.00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@ rml.is. Endurgreitt er 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 11.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæf i le ikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Endurgreiðslu- krafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn. Minnum á eftirfarandi: • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF. • Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts. • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt. • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA- greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að. Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga. Nánari upp- lýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heima- síðunni www.rml. is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Skráningar á kynbótasýningar vorsins HROSS&HESTAMENNSKA Við leitum að starfsmönnum í sumarvinnu hjá okkur. Það er sko líf og fjör og margt að læra. Glæný verksmiðja og frábær hópur af starfsmönnum kominn til starfa, en þeir þurfa sumarfrí og þess vegna viljum við heyra í þér. Unnið er á átta tíma þrískiptum vöktum á virkum dögum og tólf tíma vöktum um helgar. Hver vakt á frí aðra hverja helgi og valda virka daga. Einnig eru laus til umsóknar sumarstörf í fjármálum og innkaupum ásamt sumarafleysingum fyrir rafvirkja og vélvirkja. Þú sækir um starfið á www.PCC.is og hún Laufey mannauðsstjóri er tilbúin að veita allar nánari upplýsingar, laufey.sigurdardottir@pcc.is eða í síma 8551051. Hlökkum til að heyra frá þér, umsóknarfrestur til 30.maí nk. Þú þarft að: • Vera orðin/n 18 ára • Vera hörkudugleg/ur • Vera með gild ökuskírteini • Vera tilbúin/n að fara í heilsufarsskoðun og vímuefnapróf Við framleiðum ekki síma en við framleiðum kísilinn sem er notaður í þá Sprettur, Kópavogi föstudagur 11. maí Brávellir, Selfoss föstudagur 18. maí Stekkhólmi, Fljótsdalshéraði föstudagur 18. maí Akureyri föstudagur 18. maí Sprettur, Kópavogi föstudagur 25. maí Gaddstaðaflatir, Hellu* föstudagur 25. maí Hólar, Hjaltadal* föstudagur 25. maí Borgarnes föstudagur 25. maí Víðidalur í Reykjavík föstudagur 25. maí - –

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.