Bændablaðið - 26.04.2018, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Þann 12. apríl
var opnað á
skráningar á
allar kynbóta-
sýningar vorsins.
Skráning og greiðsla fer fram í
gegnum netið á síðunni www.
worldfengur.com þar sem valið er
„skrá hross á kynbótasýningu“.
Einnig er hægt að skrá hross
til sýningar á heimasíðu RML
www.rml.is í gegnum flýtihnapp
á forsíðunni. Þar má auk þess
finna leiðbeiningar um hvernig
eigi að skrá á kynbótasýningu
undir kynbótastarf/hrossarækt/
kynbótasýningar.
Í töflunni hér til hliðar má sjá
síðasta skráningardag á hverja og
eina sýningu en skráningu þarf að
vera lokið á miðnætti þess dags.
Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa
á sýninguna þó svo skráningarfrestur
sé ekki útrunninn. Eigandi/
umráðamaður hrossins verður þá að
velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð
er hægt að hringja í síma 516-5000,
eða senda tölvupóst á netföngin
halla@rml og hross@rml.is. Við
bendum á að utan dagvinnutíma eru
starfsmenn RML ekki til staðar til
að svara síma eða tölvupósti og því
hvetjum við eigendur/umráðamenn
til að hafa tímann fyrir sér frekar
en hitt þegar kemur að skráningum
á sýningarnar.
RML áskilur sér fullan rétt
til að fækka dögum á sýningum
ef skráningar eru færri en búist
er við. Þar sem gert er ráð fyrir
tveggja vikna sýningum, eins og á
Gaddstaðaflötum og Hólum, verða
vikurnar sameinaðar ef hrossafjöldi
verður ekki nægur á báðar vikurn-
ar. Sýning verður ekki haldin nema
lágmarksfjöldi skráninga náist, sem
eru 30 hross. Gerð er undantekning á
þessu fyrir sýninguna á Stekkhólma
á Fljótsdalshéraði en þar verða að
nást 15 skráningar svo sýning verði
haldin. Hér að neðan má sjá sýningar
vorsins og hvenær síðasti skrán-
ingar- og greiðsludagur er.
Sýningargjöld og fleira
Gjald fyrir fullnaðardóm er
26.000 kr. en fyrir byggingadóm/
hæfileikadóm 20.500 kr. Ganga þarf
frá greiðslu um leið og hrossið er
skráð. Hægt er að greiða með debet-
eða kreditkortum, ekki er hægt að
greiða með millifærslu. Um leið og
hrossið hefur verið skráð birtist það
strax inni á viðkomandi sýningu.
Ef það gerist ekki er rétt að kanna
hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis
við skráninguna.
Endurgreiðslur á sýningar-
gjöldum koma því aðeins til greina
að látið sé vita um forföll fyrir kl.
16.00 síðasta virka dag fyrir upphaf
sýningarviku í síma 516-5000 en
einnig er hægt að
senda tölvupóst á
netfangið hross@
rml.is. Endurgreitt
er 14.000 kr. fyrir
hross sem skráð
hefur verið í
fullnaðardóm og
11.000 kr. fyrir
hross sem hefur
verið skráð í
sköpulags- eða
hæf i le ikadóm.
Slasist hross eftir
að sýning hefst
er sama hlutfall
endurgreitt gegn
læknisvottorði.
Endurgreiðslu-
krafa vegna
slasaðra hrossa
þarf að hafa borist
fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í
sýningu og velji að sýna annað hross
en það sem skráð er, ber sá hinn
sami fulla ábyrgð gagnvart þeim
sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla
fyrir það hross sem skipt var út
verður notuð til greiðslu á hrossinu
sem kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur eða
geldinga til sýningar nema búið
sé að taka úr þeim stroksýni til
DNA-greiningar og staðfesting
á því liggi fyrir í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera
DNA-greindir svo og foreldrar
þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm
vetra og eldri þarf að liggja fyrir
í WF að búið sé að taka blóðsýni
og röntgenmynda vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross á
kynbótasýningu nema þau séu
örmerkt.
• Ef örmerki finnst ekki í hrossi
sem mætir til dóms ber að
örmerkja það á staðnum og
taka stroksýni úr nös til DNA-
greiningar á ætterni, með þeim
kostnaði sem af því hlýst fyrir
eiganda/forráðamann. Örmerki
og DNA-sýni þurfa ávallt að
fylgjast að.
Ekki er hægt að
skrá hross til
sýningar nema
ofantaldar kröfur
séu uppfylltar.
Hross sem koma
inn á sýningu í stað
annarra skráðra
hrossa og uppfylla
ekki þessi skilyrði
verður vísað frá
sýningu strax hjá
mælingarmanni
án undantekninga.
Nánari upp-
lýsingar um
reglur og annað
sem viðkemur
kynbótasýningum
má finna á heima-
síðunni www.rml.
is eða hringja í síma 516-5000 hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Einnig er hægt að senda tölvupóst
á netfangið hross@rml.is.
Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins
Skráningar á kynbótasýningar vorsins
HROSS&HESTAMENNSKA
Við leitum að starfsmönnum í sumarvinnu hjá okkur. Það er sko líf og fjör
og margt að læra. Glæný verksmiðja og frábær hópur af starfsmönnum
kominn til starfa, en þeir þurfa sumarfrí og þess vegna viljum við heyra í þér.
Unnið er á átta tíma þrískiptum vöktum á virkum dögum og tólf tíma
vöktum um helgar. Hver vakt á frí aðra hverja helgi og valda virka daga.
Einnig eru laus til umsóknar sumarstörf í fjármálum og innkaupum ásamt
sumarafleysingum fyrir rafvirkja og vélvirkja.
Þú sækir um starfið á www.PCC.is og hún Laufey mannauðsstjóri er tilbúin að veita
allar nánari upplýsingar, laufey.sigurdardottir@pcc.is eða í síma 8551051.
Hlökkum til að heyra frá þér, umsóknarfrestur til 30.maí nk.
Þú þarft að:
• Vera orðin/n 18 ára
• Vera hörkudugleg/ur
• Vera með gild ökuskírteini
• Vera tilbúin/n að fara í
heilsufarsskoðun og vímuefnapróf
Við framleiðum
ekki síma
en við framleiðum
kísilinn sem er
notaður í þá
Sprettur, Kópavogi föstudagur 11. maí
Brávellir, Selfoss föstudagur 18. maí
Stekkhólmi, Fljótsdalshéraði föstudagur 18. maí
Akureyri föstudagur 18. maí
Sprettur, Kópavogi föstudagur 25. maí
Gaddstaðaflatir, Hellu* föstudagur 25. maí
Hólar, Hjaltadal* föstudagur 25. maí
Borgarnes föstudagur 25. maí
Víðidalur í Reykjavík föstudagur 25. maí
-
–