Bændablaðið - 26.04.2018, Side 40

Bændablaðið - 26.04.2018, Side 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Aspas, eða spergill, er stundum kallað grænmeti aristókratans enda var það í miklu uppáhaldi hjá háaðlinum í Evrópu á fimmtándu og sextándu öld. Plantan þótti allt í senn bragðgóð, læknandi og lostavekjandi. Samkvæmt áætlun FAOSTAD var heimsframleiðsla á aspas árið 2016 rétt rúm 8,7 milljón tonn og að hann sé ræktaður á um 170 þúsund hekturum lands. Tíu lönd sem framleiddu mest af aspas árið 2016: Kína tæp 7,7 milljón tonn, Perú, um 380 þúsund tonn, Mexíkó, tæp 217 þúsund tonn, Þýskaland, 120 þúsund tonn, Spánn, tæp 60 þúsund tonn, Ítalía, 44 þúsund tonn, Bandaríki Norður- Ameríku, 32 þúsund tonn, Japan, 29 þúsund tonn, Taíland, 25 tonn og Frakkland, tæp 21 þúsund tonn. Ræktun á aspas hefur aukist jafnt og þétt og er áætlað að hún verði rúmlega 10 milljón tonn á heimsvísu fyrir árið 2030. Bandaríki Norður-Ameríku eru stærsti innflytjandi aspas í heiminum og fluttu inn tæp 190 þúsund tonn árið 2016. Í öðru sæti er Evrópusambandið sem heild sem flutti inn um 100 þúsund tonn sama ár og síðan Kanada í því þriðja sem flutti inn rétt rúm 20 þúsund tonn 2016. Samkvæmt tölum á vef Hagstofu Íslands voru flutt inn rúm 733 tonn af ferskum aspas til Íslands árið 2017 og þar af rúm 445 tonn frá Perú. Auk þess er talsvert flutt inn af niðursoðnum aspas í dósum og glerkrukkum eða þá frystur. Ættkvíslin aspas Hátt í 300 tegundir plantna tilheyra ættkvíslinni Asparagus. Flestar eru fjölærar, sígrænar og vaxa sem undirgróður, smárunnar eða klifurjurtir. Útbreiðslusvæði ættkvíslarinnar er stórt, allt frá hitabeltinu upp í Himalajafjöll og til eyðimarka og sjá fuglar að mestu um dreifingu fræjanna. Þekktustu plönturnar innan ættkvíslarinnar eru skógarháar, A. densilorus og A. setaceus, sem eru blaðfalleg stofustáss hér á landi og A. offisinalis sem við þekkjum sem aspas eða spergil. Gömul nytjajurt Sá aspas sem við þekkjum best sem matjurt kallast stundum garðaaspas og er skipt í tvær undirtegundir, A, officinalis sp. officinalis og A. officinalis sp. prostratus. Óvissa ríkir um upprunaleg heimkynni garðaaspas en í dag finnst hann víða sem villiplanta í Evrópu, norðanverðri Afríku og vestanverðri Asíu. Undirtegundin A. officinalis sp. prostratus sem er smágerðari og lágvaxnari en A, officinalis sp. officinalis er að mestu bundin við Evrópu vestanverða frá Spáni til Írlands, Bretlandseyja og norðurhéraða Þýskalands. Garðaspergill er fjölær planta sem getur við bestu skilyrðin náð eins til eins og hálfs metra hæð. Stönglarnir, sem nýttir eru til matar, vaxa upp af forðarót og geta margir HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Heimsframleiðsla á aspas árið 2016 er rétt rúm 8,7 milljón tonn og hann er ræktaður á um 170 þúsund hekturum lands. Fjólublár 'Violetto d' Albenga', hvítur og grænn aspas. Madame de Pompadour, uppáhaldsástkona Loðvíks 15., kallaði efsta hluta spergla ástartoppa.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.