Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Hýsi-Merkúr hf. | Lambhagavegur 6 | 113 Reykjavík
534 6050 | merkur@merkur.is | www.merkur.is
Í ALLAR STÆRÐIR OG TEGUNDIR BELTAVÉLA
KEÐJUR Á BELTAVÉLAR
HLIÐARDRIF
BELTASTREKKJARAR
FRAMHJÓL
RÚLLUR
TANNHJÓL
GÚMMÍBELTI
Grettir Ásmundarson 1018–1027 og
Þórir óbyggðabóndi
Grettissaga mun rituð nærri alda-
mótunum 1300 og er höfundur að
líkindum úr Húnavatnssýslu. Segir
hún frá útlaganum Gretti, þar með
ferðum hans og dvalarstöðum.
Samkvæmt sögunni dvelst Grettir
við Fiskivötn á Arnarvatnsheiði á
árunum 1018-1021. Í þá tíð og lengi
síðan var fjölfarið um Heiðina milli
Húnaþings og Borgarfjarðar. Því er
ólíklegt að Grettir, þótt afreksmaður
væri, hefði getað haldist þar við svo
lengi, því margir vildu hann feigan.
Mér hefur dottið í hug að í reynd hafi
Grettir leynst við önnur Fiskivötn, þ.e.
Fiskivötn á Landmannaafrétti; höf-
undur sögunnar hafi heyrt frásagnir
um veru Grettis við Fiskivötn en þar
sem höfundur var af Norðvesturlandi
hafi hann einungis þekkt Fiskivötn á
Arnarvatnsheiði og því ætlað þau vera
dvalarstað Grettis.
Í annan stað segir sagan og
frá ferð Grettis í Þórisdal sem
þeir Vestlendingar töldu vera í
Geitlandsjökli (sem gengur til vest-
urs frá Langjökli) og hafa fræðimenn
ársett dvöl hans þar 1024-1025. Segir
þar að fyrir dalnum hafi ráðið þurs er
Þórir hét. Nú má spyrja hvort hér sé
ekki kominn Þórir sá sem Þórisvatn,
Þóristindur og Þóristungur eru við
kenndar? Öll er lýsingin á dalnum
ævintýra- og þjóðsagnakennd. Þar
segir m.a. að á lítil hafi fallið eftir
dalnum, sléttar eyrar báðum megin,
fagrar hlíðar grasi vaxnar og smá-
kjarr. Margt sauðfé átti Þórir í daln-
um. Lýsing þessi á ekkert skylt við
það sem seinni tíma menn hafa ætlað
og nefnt Þórisdal, en gæti næstum
smellpassað við Þóristungur vestan
Veiðivatna. Þóristungur eru einstak-
lega gott sauðfjárland, Kaldakvísl
fellur eftir þeim og eru eyrar á stöku
stað meðfram henni. Mislágar hæðir
eru þar næstum allt um kring og hafa
þær verið kjarri vaxnar á þessum tíma.
Þá segir í sögu Grettis að hann
hafi komið að Bræðratungu í
Biskupstungum til ættarvinarins
Þórhalls Ásgrímssonar. Þórhallur tók
honum vel, en þar kom að hann vildi
Gretti á brott. Þórhalli er vel lýst í
öðrum heimildum og er næsta víst að
þegar hann vildi ekki hafa Gretti lengur
á heimili sínu, hafi hann reynt að vísa
honum á annan stað til dvalar. Hafi
einhver Þórir þá búið í Þóristungum,
þá gat Þórhallur haft nægar spurnir
af honum vegna tengsla sinna við-
fólk í Rangárþingi. Þórhalla systir
hans hafði verið tengdadóttir Njáls á
Bergþórshvoli og hafði Þórhallur dval-
ið þar á bæ um skeið. Fleiri tengsl átti
Þórhallur við fólk austan Þjórsár því
Helga Þorgeirsdóttir húsfreyja í Odda
var náfrænka hans. Þótt vel félli á með
Gretti og fjölskyldu Þóris þá eirði hann
þar ekki nema einn vetur. Kannski var
hin raunverulega ástæða fyrir brottför
Grettis þaðan sú að kvisast hafði út
um verustað hans (?) og þeir Þórir
talið hyggilegast að hann færði sig
um set vegna hugsanlegrar heimsóknar
þeirra sem sátu um líf hans. Þá segir
í sögunni: „Síðan fór hann suður um
land og svo til Austfjarða …. Hvergi
fékk hann vist né veru“ Hér er hálfgerð
glompa í sögunni (á árunum 1025-
1027) og því líkast sem höfundur viti
ekki hvernig hann eigi að fylla upp í
þá eyðu, eiginlega varla fyrr en Grettir
hefur vetursetu í Bárðardal haustið
1027.
Hafi Grettir dvalið í Þóristungum,
þá hefur hann örugglega kannað
landið umhverfis og leitað fyrir sér
um fylgsni innar í óbyggðum um. Þá
hefði hann séð hversu gott var að leyn-
ast í Snjóöldufjallgarði við Stórasjó og
hafði afl til að hlaða veggi Hreysisins.
Hann hefði séð að þarna var gott til
vista; nægur fiskur í vötnum, fugl til
að fanga og hvannarætur. Sauðkind gat
hann fundið á afréttum og jafn séður
maður og hann gat laumast til byggða
og náð sér þar í taminn hest og leitt
hann þangað innúr til afsláttar.
Tilgátan um veru Grettis á
Þóristungum og í Hreysinu er
skemmtileg, hún gæti verið rétt
en hafa ber í huga að hún gæti líka
verið röng. Nöfnin Þórir og Fiskivötn
styðja tilgátuna. Varla hefur það verið
á færi annarra en garpa að búa þarna í
Hreysinu í vetrarbyljum og frosthörk-
um. Hafi Grettir búið þar, þá dvaldi
hann þar ekki einn.
Náttúrufegurð þykir mikil við vötnin. Elsa Vilmundardóttir jarðfræðingur
lýsir því svo: „Náttúra Veiðivatna á sér enga hliðstæðu á jörðinni eftir því
sem ég best veit, ekki einu sinni á Íslandi, sem þó er mjög auðugt af eld-
gosamyndunum.“ Mynd / HKr.
Vesturhrauni 3 - 210 Garðabær - Sími: 480-0030
sala@burstagerdin.is - www.burstagerdin.is
Hringburstar og burstakefli
Burstar á lager
í flestar gerðir sópa
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Réttu
græjurnar!
Við sérhæfum okkur í öryggisbúnaði
m.a. heyrnarhlífum og samskiptabúnaði.
Hugaðu að heyrninni, hún er mikilvæg!
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Fyrir börnin
Í skotveiðina
Bluetooth
Áföst á hjálmi
Hefðbundin
Fyrir samskipti