Bændablaðið - 26.04.2018, Side 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Vaxandi þörf er á eflingu fag þekk-
ing ar við uppbyggingu og náttúru-
vernd á ferða manna stöðum, enda
hafa margar af helstu náttúru -
perlum okkar skemmst vegna
ágangs ferðamanna. Land búnaðar-
háskólinn og Land græðsla ríkisins
hafa því ákveðið að efna til nám-
skeiðaraðar um uppbyggingu og
náttúruvernd á ferðamannastöðum.
Ljóst er að gríðarlega miklar
framkvæmdir við lagfæringar og
uppbyggingu standa fyrir dyrum.
Það skiptir því öllu að rétt sé staðið
að verki.
Þó að hér sem erlendis séu ýmiss
konar námskeið og -brautir í boði
sem snúa að landvörslu og ferða-
mennsku, þá hefur enn sem komið
er ekki verið byggt upp heildstætt
nám sem getur undirbúið beint þá
sem hyggjast taka að sér slík ver-
kefni, hvort sem um er að ræða
verktaka eða umsjónafólk ferða-
mannastaða.
Til að bæta úr þessu, ákvað
Landgræðsla ríkisins að taka þátt
í ASCENT, sem er evrópskt sam-
starfs verkefni um eflingu fagþekk-
ingar í náttúruvernd. ASCENT er
hluti af norðurslóðaáætlun Evrópu-
sam bandsins.
Ein af afurðum verkefnisins er
að þróa námskeiðaröð þar sem farið
er yfir helstu þætti er varða upp-
byggingu og náttúruvernd á ferða-
mannastöðum. Var í framhaldinu
ákveðið að efna til samstarfs við
Endurmenntun LbhÍ sem halda mun
utan um framkvæmd námskeiðanna
og mögulega þróa sérstaka náms-
braut í framhaldinu. Færri komust á fyrsta
námskeiðið en vildu
Námskeiðin verða fimm talsins og
eru ætluð verktökum, ráðgjöfum,
umsjónaraðilum ferðamannastaða
ásamt öðrum sem áhuga hafa á.
Fyrsta námskeiðið fór fram
dagana 5. og 6. apríl og komust
mun færri að en vildu. Á nám-
skeiðinu voru kennd undirstöðu-
atriði í hefðbundnu handverki í
torf- og grjóthleðslum, en slíkar
aðferðir gagnast í víðu samhengi
á mörgum ferðamannastöðum,
en í nýrri landsáætlun um upp-
byggingu innviða á ferðamanna-
stöðum er eindregið mælt með
því að nýta náttúruleg og stað-
bundin efni við mannvirkjagerð
á ferðamannastöðum. Þetta er líka
í fullkomnu samræmi við óskir
ferðamanna sem fram komu í
nýlegri viðhorfskönnun ASCENT
verkefnisins.
Undirstöðuatriði í
göngustígagerð í haust
Stefnt er að því að halda áfram
með þróun námskeiðanna og
strax næsta haust verður í boði
námskeið þar sem undirstöðuatriði
í göngustígagerð verða kynnt.
Kennarar á námskeiðinu verða
innlendir sérfræðingar í bland við
erlenda. Þá er einnig stefnt að
því að bjóða upp á námskeið um
endurheimt staðargróðurs og í lokin
er fyrirhugað að halda námskeið um
stefnumótun, hönnun og stjórnun
ferðamannastaða í samvinnu við
helstu sérfræðinga á því sviði.
Örn Þór Halldórsson
Landgræðsla ríkisins
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Námskeiðaröð um uppbyggingu og
náttúruvernd á ferðamannastöðum
Vísir að vegg.
Grjótið valið. Myndir / Örn Þór Halldórsson
Hér kemur torf og grjót í stað steypu.
Klömbrur skornar til.
Snidda stungin.
Náttúrulegur bekkur.