Bændablaðið - 26.04.2018, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
NBÍ ehf, nautastöðin á Hesti í Borgarfirði auglýsir laust til
umsóknar starf fjósameistara - nautahirðis.
Laust er til umsóknar starf nautahirðis við NBÍ efh., nautastöðina á
Hesti í Borgarfirði. Starfið felst í fóðrun og daglegri umhirðu ungkálfa
og nauta, vinnu við sæðistöku, dagleg þrif, viðhald, umsjón með
sæðisbirgðum, afgreiðslu á sæði, rekstrarvörum og köfnunarefni,
sækja kálfa til bænda, umsjón og þrif á lóð stöðvarinnar svo og
ýmsum fleiri verkþáttum. Vinnuskylda er á helgum og hátíðum, á
móti öðrum starfsmönnum stöðvarinnar.
Við leitum að áhugasömum og drífandi starfsmanni, konu eða
karli, sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni. Reynsla í
mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
Umsækjendur skulu hafa lokið búfræðiprófi og hafa auk þess
reynslu í búfjárrækt og búfjárhirðingu. Vinnuvélaréttindi eru
kostur.
Skriflegum umsóknum, ásamt ferilskrá og meðmælum, skal skila
til: NBÍ ehf, Hesti, 311 Borgarnes eða á tölvupóstinn: bull@emax.is.
Hægt er að senda fyrirspurn á sama netfang en upplýsingar eru
ekki veittar í gegnum síma.
Umsóknarfrestur er til 20. maí nk. Gert er ráð
fyrir að nýr starfsmaður hefji störf ekki síðar
en 1. ágúst.
FJÓSAMEISTARI NAUTAHIRÐIR
Um er að ræða jörð á afar fallegum stað í Breiðdal ásamt góðu íbúðarhúsi, sumarhúsi, hesthúsi og
hlöðu. Eign sem býður upp á mikla möguleika í ferðaþjónustu. Á undanförnum árum hefur verið
starfrækt ferðaþjónusta þar sem boðið er upp á hestaferðir með leiðsögn við afar góðan orðstír
og gistingu í sumarhúsi. Eigninni geta fylgt u.þ.b. 45 hross, öll reiðtygi og tilheyrandi klæðnaður
ásamt lítið notaðri dráttarvél. Einnig getur allt innbú í sumarhúsi fylgt.
Jörðin er talin vera nærri 900 hektarar og ræktað land er skráð 21,4 hektarar. Mögulegt er að rækta
töluvert meira. Eigninni fylgir veiðiréttur í Breiðdalsá og arður af hreindýraveiði. Stefnt er að lagningu
ljósleiðara á næstu misserum.
Eignin stendur í 26 km fjarlægð frá Breiðdalsvík og 54 km fjarlægð frá Egilsstöðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali
í síma 510-3500/615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Eignatorg kynnir:
Lögbýlið Höskuldsstaði, Breiðdalshreppi, landnr. 158968
Eigum enn þá nokkur hús úr síðustu sendingu af
þessum frábæru stálgrindarhúsum á hagstæðum
verðum.
Það sem til er:
√ 1 stk. 60 fm á 2,98 millj. kr. + vsk.
√ 1 stk. 84 fm á 3,5 millj. kr. + vsk.
√ 1 stk. 112 fm á 4,3millj. kr. + vsk.
Verðin innifela aðaluppdrætti, sökkul- og
burðarþolsteikningar.
Einnig eru nokkur af þessum vönduðu grill húsum
(47 mm nótað og alheflað) til á lager. Þau eru eru
sexhyrnd og tæpir 12 fm. Verð: 718 þús. kr. + vsk.
Nánari upplýsingar í síma 862-8810 eða hjá
grs@sparenergihus.dk
STÁLGRINDAR- OG GRILLHÚS TIL SÖLU