Bændablaðið - 26.04.2018, Page 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018
Nýlega komst upp um
danskan kjötsala sem
hefur selt framleiðslu sína
sem afurðir af grísum
sem velferðargrís þrátt
fyrir að um hefðbundið
grísaeldi væri að ræða.
Á skömmum tíma
hefur komist upp um tvö
kjötmisferli í Danmörku. Í
febrúar síðastliðinn komst
upp að kjötsalinn Genz
Kød hafi selt mikið magn af
suður-amerísku nautakjöti
sem innlenda framleiðslu.
Nú hefur komið í ljós
að sami kjötsali hefur verið
að selja veitingahúsum
í Kaupmannahöfn mörg
tonn af grísakjöti sem
kjöt af svokölluðum
velferðargrísum, þrátt fyrir
að um hefðbundið eldi hafi
verið að ræða.
Velferðargrís eru þeir
grísir sem sagðir eru njóta
betri umönnunar en grís í
hefðbundnu eldi og margir
eru tilbúnir að borga hærra verð fyrir
í nafni dýravelferðar.
Matvælaeftirlit Danmerkur hefur
farið fram á að Genz Kød viðurkenni
svindlið og að málið verði rannsakað
sem sakamál. /VH
Hið árlega fagþing nautgripa-
ræktarinnar í Danmörku
var haldið um þarsíðustu
mánaðamót og fer hér þriðji hluti
umfjöllunar um „Kvægkongres“
eins og fagþingið heitir á dönsku.
Líkt og undanfarin ár var
haldin tveggja daga ráðstefna
samhliða aðalfundi kúabænda
og var ráðstefnan með 11 ólíkar
málstofur. Heldur hér áfram
umfjöllun um þessar málstofur.
4. Kjötkálfaeldi
Í Danmörku er eldi á nautkálfum frá
kúabúum í mjólkurframleiðslu stór
búgrein og undantekningarlítið eru
kúabændur í mjólkurframleiðslu
ekki með naut í eldi heldur
selja kálfana á þar til gerð bú
sem eru sérhæfð í nautaeldi.
Í málstofnunni voru haldin 6
erindi og þar sem þessi búgrein
er með sitt eigið búgreinafélag
var aðalfundur félagsins einnig
haldinn í málstofunni og fjölluðu
þrjú erindanna um stefnumörkun
og innri málefni greinarinnar.
Eitt erindið snéri að smitvörnum
enda töluverð hætta á smiti á svona
búum, þar sem þau kaupa oftast
kálfa frá mörgum kúabúum. Þá
fjallaði eitt erindi um sölu beint
frá býli. Kúabændurnir Gert og
Pia ala árlega 1.400 nautkálfa
til slátrunar og selja hluta þeirra
beint og hafa þau komið á fót
sérstöku vörumerki sem þau kalla
„Langelandskalven“ með tilvísun
til þess staðar sem bú þeirra er á.
Í stuttu máli sagt þá sögðu
þau að kostirnir við þessa litlu
hliðarbúgrein með nautaeldinu
vera að hún skapar góða ímynd og
gefur góða tengingu við neytendur,
en ókostirnir væru að erfitt væri
að selja allt fallið og að danskir
bændur yrðu seint efnaðir á því
að selja kjötið með þessum hætti.
Þá fjallaði annað erindi um
áhugaverða tilraun sem gerð
var á Holstein kálfum eftir
mjólkurfóðrunartímabilið, en hún
gekk út á að bera saman vöxt og
rekstrarafkomu við mismunandi
fóðrun: eingöngu orkumikið
heilfóður, eingöngu kjarnfóður eða
blöndu af kjarnfóðri og orkuminna
heilfóðri. Í ljós kom að varðandi
vöxtinn skipti það ekki máli hvaða
fóðurtegund nautin fengu, en
afkomulega séð skilaði blanda af
kjarnfóðri og orkuminna heilfóðri
lægstum heildarkostnaði á hvert
kíló í vexti.
5. Holdanautarækt
Holdanautabúskapur er stór
búgrein í Danmörku og var í þessari
málstofu haldin fimm erindi og
jafnframt, þar sem búgreinin er
með sitt eigið búgreinafélag, var
aðalfundur þess haldinn samhliða.
Flest erindin snéru fyrst og
fremst að dönskum aðstæðum en
eitt þeirra á þó einnig vel við hér
á landi en það flutti ráðunauturinn
Finn Strudsholm frá SEGES en
hann fjallaði um alþjóðlegar
rannsóknir á holdanautum og kom
hann víða við í erindi sínu. Víða
lúta áherslur að því að draga úr
kolefnisfótspori framleiðslunnar
en sem kunnugt er hefur búgreinin
töluverð umhverfisáhrif og vinna
vísindamenn að því að leita
lausna og hefur náðst góður
árangur, með kynbótum, að draga
úr þessum áhrifum gripanna. Þá
hafa kynbótafræðingar lagt aukna
áherslu á mjólkurframleiðslu
kúnna, svo kálfarnir vaxi hraðar
og leggja fræðingarnir töluverða
áherslu á að bændur endurnýi örar
nú en áður. Yngri kýr eru betur
fallnar til mjólkurframleiðslu en
eldri kýr, vegna kynbótanna, og
munar hjá mörgum kynjum 1 kílói
mjólkur á dag að jafnaði á milli
ungra kúa og gamalla en reikna má
með því að hvert auka kíló mjólkur
hjá kúnum skili 60 gramma
vaxtarauka hjá kálfunum! Þannig
nefndi Finn að ef kýrin mjólkar t.d.
fjórum kílóum meira á dag skilar
það sér sem 48 kílóa þyngri kálfi
þegar hann er 200 daga gamall!
6. Fóðrið
Fóðurkostnaður er langstærsti
útgjaldaliður kúabúa og því
skiptir gríðarlega miklu máli
að horfa á alla þætti í tengslum
við fóðrun kúnna svo ná megi
aukinni hagkvæmni í reksturinn.
Þess má geta að í stefnumörkun
dönsku bændasamtakanna fyrir
nautgriparæktina hefur stefnan
verið sett á að árið 2020 eigi árleg
aukning heimaaflaðs fóðurs að vera
2%, að næringarefnatap gróffóðurs
frá geymslustað til fóðrunar. Það
verði að hámarki 5% og að árið
2020 eigi 75% allra kúabænda
landsins að þekkja af nákvæmni
framleiðslukostnað mjólkurinnar á
búi sínu! Metnaðarfullt og verður
áhugavert að fylgjast með því
hvort þessi markmið í stefnunni
nái fram að ganga.
Í þessari málstofu danska fag-
þingsins voru annars haldin átta
erindi og snéru sum þeirra að
sérhæfðum dönskum aðstæðum
og eiga því ekki við hér á landi.
Nokkur eiga þó beint erindi til
íslenskra kúabænda. Þar á meðal
erindi landsráðunautarins Niels
Kongó:
Sex landverðir drepnir
Virunga-þjóðgarðurinn í Kongó
er stærsta og jafnframt eitt síðasta
búsvæði fjallagórillu í heiminum.
Þjóðgarðurinn, sem er sá elsti í
Afríku, er einnig sá hættulegasti
í heimi.
Fyrr í þessum mánuði voru sex
landverðir drepnir við vörslu í
garðinum en alls hafa 170 landverðir
verið drepnir þar af veiðiþjófum á
síðustu 20 árum.
Verndun fjallagórillunnar í
Virunga-þjóðgarðinum er sagt
vera eitt hættulegasta umhverfis-
verndarverkefni í heimi um þess-
ar mundir. Þjóðgarðurinn er um
7.800 ferkílómertar að stærð og
gæsla í honum vandasöm og erfið.
Landverðir sem fara um svæðið geta
verið sambandslausir við umheiminn
svo dögum skiptir og veiðiþjófar,
ólöglegir skógarhöggsmenn og upp-
reisnarhópar þar víða að verki.
Þrátt fyrir mannfall í Virunga-
þjóðgarðinum hefur tekist þokkalega
upp með verndun fjallagórillunnar
og henni fjölgað úr 300 í 1000 frá
árinu 1997. /VH
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Fjallagórillur drepnar af veiðiþjófum í Virunga-þjóðgarðinum í Kongó.
Vesturhrauni 3 - 210 Garðabær
480-0000 - sala@aflvelar.is - www.aflvelar.is
Cleanfix HS770 sópurinn hentar
bæði inni og úti.
Fyrir bílaplön, bílageymslur,
íþróttasvæði, o.fl.
Vinnslubreidd 77 cm
Stillanlegur hliðarbursti
32L tankur
Verð: 83.824 kr.
Sumartilboð* 71.250 kr
Handknúinn sópur
*Tilboðsverð gildir úr apríl 2018
og á meðan birgðir endast
Kúabændurnir Gert og Pia, sem ala árlega 1.400 nautkálfa til slátrunar, töluðu á fagþinginu um reynslu sína af sölu
hluta framleiðslunnar beint frá býli. Myndir / SAGES
Fagþing nautgriparæktarinnar í Danmörku 2018 – þriðji hluti:
Moðið á að vera svo til eins
og upphaflega heilfóðrið!
Svínakjötsskandall
í Danmörku
Sala á grísakjöti undir fölskum formerkjum
skekur danskan svínakjötsmarkað.