Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 Nú er sá tími kominn að leggja þarf lokahönd á skipulag jarðvinnslu og sáningar. Hagkvæm skilyrði eru til aukinnar jarðræktar þetta árið. Styrkir til jarðræktar hafa verið hækkaðir. Heyfengur ársins 2017 var með afburðum góður og því líklegt að fyrningar séu nokkrar. Því má ætla að svigrúm sé til þess að endurrækta og leggja stund á sáðskipti. Vert er að benda á mikilvægi kornræktar í sáðskiptum. Bygg getur nýtt sér uppsafnaðan næringarefnaforða túnræktarinnar og haft jarðvegsbætandi áhrif þannig að uppskera korns eykst annað árið sem það er ræktað í sama stykkinu. Nauðsynlegt að leggja vinnu í jarðvinnsluna Til að sáning takist vel þarf að leggja vinnu í jarðvinnsluna og brýnt er að huga að sýrustigi jarðvegsins. Ólíkar tegundir gera misjafnar kröfur bæði til sýrustigs og jarðvinnslu. Sumar tegundir þola lágt sýrustig betur en aðrar og geta sprottið í misvel unnu landi meðan slíkt kemur harkalega niður á uppskeru annarra. Almennt má segja að æskilegt sé að sýrustig sé um pH 6 og vel unnin jörð skilar ávallt betri uppskeru en slakari jarðvinnsla. Nota aðeins þau yrki sem reynst hafa vel hérlendis Aldrei verður of oft sagt að mjög mikilvægt er að nota aðeins þau yrki sem reynst hafa vel hérlendis. Reynslan hefur sýnt að þótt yrki standi sig vel í nálægum löndum eru aðrar aðstæður hér á landi sem geta gert það að verkum að illa gengur. Óþarfi er að taka slíka áhættu við sáningu, nóg er af þáttum sem erfitt er að stýra þegar kemur að jarðrækt. Hægt er að sjá hvaða yrki er mælt með í ritinu Nytjaplöntur á Íslandi sem er aðgengilegt á vef LbhÍ (undir rannsóknir, útgefið efni, Nytjaplöntur á Íslandi), tilraunaniðurstöður er hægt að sjá í jarðræktarskýrslum LbhÍ og fjöldann allan af upplýsingum er að finna í greinasafni landbúnaðarins, www.landbunadur.is. Við hvetjum bændur til að afla sér upplýsinga um þau yrki sem þeir hyggjast nota. Með hlýnandi loftslagi og bættum búskaparháttum eru mikil tækifæri sem vert er að nýta þegar vel árar. Hrannar Smári Hilmarsson, tilraunastjóri í jarðrækt, LbhÍ Þórey Ólöf Gylfadóttir, lektor, Lbhí ...frá heilbrigði til hollustu Nýliðunarstuðningur í landbúnaði Nýliðar í landbúnaði sem eru að hefja búskap eiga kost á að sækja um nýliðunarstuðning í landbúnaði. Þessi stuðningur er hluti af búvörusamningi milli ríkis og bænda, sem tók gildi 1. janúar 2017. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Matvælastofnun ráðstafar fjármunum til nýliðunarstuðnings. Þetta er annað árið sem nýliðunarstuðningur í landbúnaði er veittur í samræmi við rammasamning ríkis og bænda. Framlög beinast að einstaklingum í eigin nafni eða til lögaðila, þar sem nýliði á a.m.k. 25% hlut. Skilyrði sem einstaklingar þurfa að uppfylla eru m.a. að þeir séu á aldrinum 18-40 ára á árinu og séu að kaupa búrekstur eða hlut í búrekstri í fyrsta skipti eða hafa leigt eða keypt búrekstur innan þriggja ára frá 1. janúar 2015. Matvælas to fnun mun forgangsraða umsóknum eftir þremur þáttum; menntun umsækjenda, jafnréttissjónarmiðum og heildarmati á umsókn skv. 18. gr. reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 1180/2017. Að sögn Jóns Baldurs Lorange, framkvæmdastjóra búnaðarstofu Matvælastofnunar, er vinnureglum um forgangsröðun breytt frá því í fyrra. Gagnrýni kom á fyrri vinnureglur um forgangsröðun og hefur nú verið tekið tillit til þeirra við gerð nýrra vinnureglna sem stofnunin mun vinna eftir. Við gerð nýrra reglna hefur verið haft að leiðarljósi að tryggja gegnsæi, jafnræði umsækjenda og hlutleysi matsaðila. Þannig er komið nýr matsþáttur þar sem lagt er heildarmat á nýliðunarumsókn þar sem hún er metin eftir rökstuðningi, 5 ára rekstraráætlun og framlegð, stærð eignarhlutar í búrekstri og loks starfsreynslu í landbúnaði frá 14 ára aldri. Hvað varðar menntunarþáttinn þá gefur viðurkennt búfræðinám auk framhaldsnáms á sviði landbúnaðar flest stig (10) og þá er viðurkennt iðnnám metið til jafns við grunnám við viðurkenndan háskóla, svo dæmi sé tekið. Nánar er hægt að kynna sér vinnureglur Matvælastofnunar á heimasíðu stofnunarinnar, og á rafrænni umsókn á Bændatorginu þegar opnað verður fyrir umsóknir 3. maí n.k. ,,Stuðningur við nýliða getur að hámarki numið 20% af fjárfestingarkostnaði á árinu og getur nýliði mest fengið 9 milljónir í heildarstuðning. Forgangsröðun umsókna felst í því að umsóknir verða flokkaðar í þrjá flokka eftir stigafjölda. Þær umsóknir sem fengu 21 til 30 stig eru í mesta forgangi, umsóknir með 11–20 stig í öðrum og loks umsóknir með færri stig í minnsta forgangi. Byrjað verður á að úthluta til þeirra umsækjenda sem eru í efsta forgangshóp til að tryggja að þeir hljóti sem mestan stuðning til að hefja búskap. Ef fjármunir verða þá afgangs þá verður úthlutað til þeirra sem eru í öðrum forgangshóp og að lokum, ef fjármunir hrökkva til, til þeirra sem eru í neðsta forgangshópi. Rétt er að taka fram að þeir umsækjendur sem fengu ekki úthlutað í fyrra eða fengu ekki hámarksstuðning geta sótt um að nýju í ár, svo fremi sem þeir uppfylla ennþá skilyrði fyrir nýliðunarstuðningi skv. reglugerð,“ sagði Jón Baldur. Jóhanna Guðrún Snæfeld Magnúsdóttir, sérfræðingur í búnaðarmálum, hefur umsjón með nýliðunarstuðningi í landbúnaði og veitir frekari upplýsingar. Nýliðar eru hvattir til að kynna sér vel ákvæði IV. kafla reglugerðar nr. 1180/2017 og vinnureglur um forgangsröðun umsókna. Fræ í frjóa jörð Bygg getur nýtt sér uppsafnaðan næringarefnaforða túnræktarinnar og haft jarðvegsbætandi áhrif þannig að uppskera korns eykst annað árið sem það er ræktað í sama stykkinu. Þórey Ólöf Gylfadóttir við sýnatöku. LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.