Bændablaðið - 26.04.2018, Qupperneq 52

Bændablaðið - 26.04.2018, Qupperneq 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. apríl 2018 LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Jakob Pálsson er fæddur og uppalinn á Hamri og tók við rekstri sauðfjárbúsins 1997 af foreldrum sínum, Páli Jakobssyni og Guðrúnu Jónu Jónsdóttur, sem voru þá einnig með kúabú. Býli: Hamar. Staðsett í sveit: Barðaströnd á sunnanverðum Vestfjörðum. Ábúendur: Jakob Pálsson og Guðný Matthíasdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Á bænum búa sjö manns, 3 kynslóðir. Páll Jakobsson og Guðrún Jóna Jónsdóttir, Jakob Pálsson, aðalbóndinn og Guðný Matthíasdóttir ásamt þremur börnum, Páli Kristni, 19 ára, er í skóla í Reykjavík, Ólafi Sölva, 17 ára, og Steinunni Rún, 14 ára. Gæludýr eru kötturinn Styrmir, tíkin Fífa og fjórar kanínur. Stærð jarðar? Ræktað land 15 hektarar og nógur úthagi og beitiland. Gerð bús? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? 210 kindur, 7 hrútar, 16 hænur og 3 hanar. Auglýsi hér með tvo hana sem annars verða étnir. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hluti af deginum fer í að keyra yngsta barnið í og úr skóla á Patreksfjörð og síðan farið í fjárhúsin og deginum eytt í hefðbundin störf á bænum. Tvisvar í viku vinnur bóndinn í fiskeldi hjá Svenna í Vatnsfirði. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburður er alltaf skemmtilegastur og leiðinlegast er þegar vélarnar bila í miðjum hey- skap. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Ef staða sauðfjárbænda lagast þá verður áframhald á búskap og jafnvel aukið við. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Mikið er rætt og sett fram sem er gott en það þarf mikla vinnu til að laga kjör bænda. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Landbúnaðarafurðir frá Íslandi munu verða mjög eftirsóttar vegna hrein- leikans í framtíðinni. Við þurfum að gera út á það. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Hreinlega í öllu sem hægt er að rækta og framleiða. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólkurvörur, egg og pylsur. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Hefðbundin sunnudagssteik, lambalæri með brúnuðum kartöflum og rabarbarasultu. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar gelmingur bar þremur lömbum var sérstakt og svo þegar bóndinn stakk sig á nagla í stíuhlera og fékk slæma blóðeitrun og lá í viku á sjúkrahúsi yfir háannatímann í fjárragi. Hér er uppskrift að bökuðum fiski með stökkri og kryddaðri áferð – með muldum fræjum. Hægt er að nota þorsk eða löngu til dæmis. Avócadosósan fullkomnar réttinn. Avókadó- og tartarsósa › 1 þroskaður avókadó › ¼ bolli (60 ml) majónes › 2 msk. (30 ml) saxað kóríander › 1 tsk. (5 ml) rifinn hvítlaukur › 2 msk. (30 ml) ferskur limesafi › 1 til 2 msk. (15 til 30 ml) fínt saxað jalapeño eða chili › Salt Bakaður fiskur › 1 msk. (25 g) graskersfræ › 1/8 tsk. (1 g) chiliduft › 4 tsk. (2 g) salt › 1/8 tsk. (1 g) pipar › 2 msk. (30 ml), um ólífuolía › 4 hvít fiskflök eða stykki, hver skammtur um 175 g Aðferð 1. Taktu avókadókjötið úr með skeið, setjið í skál og blandið með gaffli þar til það hefur fengið rjómalagaða áferð með smáum bitum. Hrærið majónesinu saman við, kóríander, lime-berkinum, lime-safanum og einni matskeið jalapeño eða chili. Smakkaðu til og kryddaðu með salti og meira chili eftir smekk eða eins og þú vilt (en hafðu í huga að bragðið verður sterkara þegar sósan fær að standa í kæli). Setjið plastfilmu yfir og kælið í að minnsta kosti 30 mínútur, eða í allt að einn dag. 2. Hitið ofninn í 230 gráður. Hitið ofnhelda pönnu. 3. Blandið graskersfræjum, chili- dufti, salti og pipar saman í litlu mortéli eða matvinnsluvél – og hakkið saman, þó ekki það mikið að það verði að dufti. Bætið við einni matskeið (15 ml) af olíu og hrærið saman. Bættu meiri olíu við ef þess þarf. 4. Skolið fiskinn og þerrið. Setjið roðhliðina niður á pönnu. Kryddið með fræ- og kryddblöndunni. 5. Bakaðu í 7 til 10 mínútur, eða þar til flakið er fallega brúnt og fiskurinn eldaður. 6. Framreiðið með bökuðu graskeri eða meðlæti að eigin vali. Caprese-salat með Parmaskinku Þegar sumarið er á leiðinni kemur Caprese-salat með Parmaskinku manni í sumarskapið. › 500 g mozzarella-ostur › 3 stórir tómatar (má nota litla kokteiltómata) › 50 g Parmaskinka (skorið) › 3 msk. ólífuolía › 1 búnt ferskt basil › 1/4 tsk. flögusalt › 1/8 tsk. svartur pipar 1. Þvoið tómatana og sneiðið í þykkar sneiðar. Þeir eru bestir skornir í að minnsta kosti 0,5 cm ca þykkar sneiðar. Þú getur fjarlægt kjarnann úr til að koma í veg fyrir að salatið verði með of mikinn vökva. 2. Losið vatnið af mozzarella- ostinum. Skerið mozzarella- -ostinn í sneiðar með um það bil sömu þykkt og tómatarnir. 3. Raðið lagskipt tómötum og mozzarellaosti í sneiðar. Ef þú vilt getur þú einnig bætt við sneiðum af Parmaskinku. Það getur þó verið góð hugmynd að halda Parmaskinkunni aðskildri ef einhverjir gestir vilja ekki borða hráskinku. 4. Stráið ólífuolíu yfir tómatana, mozzarellaostinn og Parma- skinkuna. Rífið hluta af ferskum basilblöðum ofan á fatið. Saltið og piprið eftir smekk. 5. Látið fatið eða diskinn standa í um það bil 15 mínútur áður en þið framreiðið. MATARKRÓKURINN Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari Hamar Bakaður fiskur með avókadó- og tartarsósu

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.