Bændablaðið - 05.12.2019, Side 2

Bændablaðið - 05.12.2019, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 20192 Stjórn Bændasamtaka Íslands vill ekki að Framleiðnisjóður verði lagður niður og látinn renna inn í nýjan Matvælasjóð eins og Kristján Þór Júlíusson áformar að gera. Afstaða stjórn- ar Bændasamtakanna er skýr og þvert á áform ráðherrans en ráðherra hefur sagt að hann telji undarlegt ef menn ætli að láta endurskoðun rammasamnings standa í vegi fyrir þessu. Sigurður Eyþórsson, fram- kvæmdastjóri Bændasamtakanna, segir að Framleiðnisjóður sé hluti af rammasamningi landbúnaðarins sem gildir til 2026 og getur ráðherra ekki lagt sjóðinn niður eða látið hann renna inn í nýjan Matvælasjóð nema semja um það við endurskoðun rammasamningsins. Ráðherra segir sjóðinn innlenda matvælaframleiðslu Í skriflegu svari við fyrirspurn Bændablaðsins um viðbrögð sín við afstöðu stjórnar Bændasamtakanna segir Kristján Þór Júlíusson land- búnaðarráðherra: „Með stofnun Matvælasjóðs er verið að framfylgja aðgerð í þings- ályktun um að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar mat- vælaframleiðslu. Alþingi samþykkti ályktunina í júní síðastliðinn með 54 atkvæðum. Markmið þess að sameina þessa tvo sjóði í einn er að efla nýsköpun og þróun í inn- lendri matvælaframleiðslu og styrkja þannig Ísland sem matvælaland. Til að ná því markmiði verður aukið fjármagn sett í sameinaðan sjóð en jafnframt mun það fjármagn sem fyrir er nýtast betur enda nokkur samlegðaráhrif í því að reka einn sjóð í stað tveggja. Gert er ráð fyrir að nýr Matvælasjóður taki til starfa 1. janúar 2021. Þegar er hafinn undirbúningur að stefnumótun fyrir hinn nýja sjóð í samráði við Bændasamtök Íslands og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.“ Framlög til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins samningsbundinn „Afstaða stjórnar Bændasamtakanna er sú að framlög til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins séu bundin í ramma- samningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins og að markaðar eru frekari áherslur fyrir starf sjóðs- ins á hverju samningstímabili. Fjárframlög og áherslur sjóðsins eru því hluti af samningi bænda við hið opinbera. Framleiðnisjóðurinn styður við ýmis verkefni sem ekki snerta mat- vælaframleiðslu með beinum hætti en eru þýðingarmikil fyrir landbún- aðinn og dreifbýlið og má þar meðal annars nefna rannsóknar- og þró- unarverkefni, nýsköpun og eflingu atvinnu á bújörðum, fræðslutengd verkefni, og starfsmenntasjóð BÍ og vörslu fjármuna vegna þróunarverk- efna í sauðfjárrækt, nautgriparækt og garðyrkju og vörslu fjármuna Markaðssjóðs sauðfjárafurða. Starfsemi sjóðsins fer fram á landsbyggðinni og innan sjóðsins er fólk sem hefur mikla reynslu og þekkingu af landbúnaði og er búsett í dreifbýli. Sjóðurinn er því mjög mikilvægur fyrir landbúnað- inn, bæði hvað varðar þróunar- og rannsóknarstarf, búsetustuðning og uppbyggingu atvinnutækifæra í sveitum landsins. Við erum að sjálfsögðu til í að ræða við ráðherra og þá meðal annars um málaflokka sem tilheyra Framleiðnisjóði en falla ekki undir verksvið Matvælasjóðs og finna þeim nýjan farveg,“ segir Sigurður. Um tvo kosti að ræða Á fundi stjórnar Bændasamtaka Íslands greindi Guðrún Tryggva- dóttir, formaður samtakanna, stjórn inni frá viðræðum sínum við landbúnaðarráðherra um stöðu Fram leiðnisjóðs landbúnaðarins og fyrirætlana ráðherra um að sameina hann inn í nýjan Matvælasjóð án þess að endurskoðun á rammasamn- ingi hafi farið fram. Fram kom á fundinum að ráðherra sér tvo kosti í stöðunni. Annars vegar að Framleiðnisjóði verði haldið óbreyttum og hann verði ekki hluti af nýjum Matvælasjóði. Ráðherra mun þó áfram beita sér fyrir stofnun hins nýja sjóðs en BÍ mun þá ekki eiga hlut að því að móta stefnu og starfshætti hans. Hins vegar að áfram verði haldið með fyrri hugmyndir um að FL sameinist Matvælasjóði en BÍ muni þá eiga fulla aðild að því að móta stefnu og starfshætti nýja sjóðsins. Stjórn samþykkti samhljóða að heppilegra væri að velja fyrri kostinn og halda Framleiðnisjóði óbreyttum. /VH FRÉTTIR Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra telur að ekki sé svigrúm innan lög- gjafarinnar og alþjóðlegra skuld- bindinga Íslands til að heimila rekstur á svokölluðum örslátur- húsum heima á bæjum. Það kom fram í svari hans við fyrirspurn Bjarna Jónssonar, vara- þingmanns Vinstri grænna. Bjarni spurði hvort ráðherra hefði í hyggju að breyta reglum um örslátur hús og auka frelsi sauðfjár- bænda til að slátra eigin lömbum og selja afurðir þeirra beint til neytenda – hvort lagalegt svigrúm væri til þess. Ráðherra segir í svarinu að niðurstaða skoðunar á undanförnum mánuðum, í samráði við Matvælastofnun og Bændasamtök Íslands, leiði í ljós að tillaga um slík sláturhús – þar sem bændum sé heimilt að slátra, vinna og selja afurðir sínar heima á bæ – rúmist ekki innan löggjafarinnar og alþjóðlegra skuldbindinga Íslands. Sérstaklega er tiltekin sú ástæða að í sértækum evrópskum reglum (nr. 854/2004) um skipulag opinbers eft- irlits með afurðum úr dýraríkinu, er kveðið á um skoðun opinbers dýra- læknis fyrir og eftir slátrun. Í svarinu kemur fram að samráð hafi verið haft við nágrannaþjóð- ir, svo sem Noreg, Þýskaland og Finnland. Engin bein aðkoma dýralækna í örslátrunartillögum Í tillögum Matís að reglum um örslátrun, sem kynntar voru í sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðu- neytinu í september á síðasta ári, er ekki gert ráð fyrir beinni að- komu dýralækna; hvorki fyrir né eftir slátrun – eða á meðan slátrun stendur. Tilkynna beri hins vegar um slátrun til eftir litsdýralæknis með 48 klukkustunda fyrirvara. Dýralæknum er hins vegar heim- ilt að skoða dýrin, samkvæmt til- lögunum. Fyrir slátrun myndu bændur taka myndir af lifandi dýrunum og eftir slátrun af heilum skrokkum og inn- yflum hvers dýrs – og senda þær dýralækni innan tiltekins frests væri þess óskað. Í tillögunum er lögð áhersla á hreinlæti og þjálfun starfsmanna/ bænda eins og í öðrum sláturhúsum. Sóknarfæri til verðmætasköpunar fyrir lítil sláturhús Ráðherra segir í svarinu að í reglu- gerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli séu sérstök ákvæði varðandi lítil sláturhús. Lítil reynsla sé komin á framkvæmd hennar en fram kemur að talið sé að þar geti falist ákveðin sóknarfæri til aukinnar verðmætasköpunar. Ekki er tekið fram í hvaða ákvæðum þau sóknarfæri kunni að felast. Það virðist hins vegar ekki vera grundvallarmunur á reglugerðum fyrir lítil og stór sláturhús, sér- staklega í því sem snýr að bænd- um. Aðalmunurinn á hefðbundnu sláturhúsi, hvað heilbrigðiseftirlit dýralæknis snertir, er sá að varð- andi lítil sláturhús er ekki gerð krafa um stöðuga viðveru sam- þykkts dýralæknis á meðan slátr- un stendur yfir – að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í svarinu til Bjarna segir loks að í ráðuneytinu verði áfram unnið að því að leita leiða til að auka verð- mætasköpun bænda í samstarfi við Matvælastofnun og Bændasamtök Íslands og fylgst með þróun mála í nágrannaríkjunum sem miða að því að auðvelda starfsemi lítilla eða færanlegra sláturhúsa. /smh TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér HAFÐU SAMBAND 511 5008 Tillagan um örsláturhús rúmast ekki innan lagalegs svigrúms – það er niðurstaða skoðunar samráðshóps ráðuneytisins á undanförnum mánuðum Eva Margrét Jónudóttir við mælingar í tilraunaverkefni Matís á bænum Birkihlíð í Skagafirði, þar sem slátrað var samkvæmt örslátrunartillögunum. Myndir / Matís Bændasamtök Íslands: Vilja ekki að Framleiðnisjóður verði lagður niður þrátt fyrir áform ráðherra Sigurður Eyþórsson. Kristján Þór Júlíusson. Guðrún Tryggvadóttir.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.