Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 7 LÍF&STARF Þ rátt fyri mikla árgæsku í tíðar-fari, þá streyma Íslendingar í stórum hópum til sólar og yls á Kanaríeyjum eða Tenerife. Mér þykja nokkuð stór tíðindi að meira að segja granni minn við Eyjafjörð, Davíð Hjálmar Haraldsson, lagði til þeirrar reisu fyrir skömmu. Heimkominn og hug- umkær, sendi hann mér netpóst nokkuð mikinn að magni sem innihélt þverskurð af allri hans dægradvöl í nýafstaðinni Kanaríeyjaferð. Eitthvað hefur hann þó notið sólar sennilega, en mikið orti hann allavega, og fer „ferðadagbók“ Davíðs hér eftir: Túrhestar á Tenerife tæpast miklu nenna. Það er mikið lúxuslíf að liggja hér og brenna. Sunnanblær er sífellt hér, sól og breyskjuhiti. Nefbroddurinn orðinn er eins og götuviti. Davíð fylgdist vel með dýralífinu: Dýralíf hérna er margbreytt og mikið, maurarinir búa til slóðir í rykið, skrautlegir fuglar í flokkum sjást víða og flugur og iglur á sólbekkjum skríða. Við hótelið eldgamall köttur oft kúrir, kafloðin hlussa sem murrar og lúrir, við dyrnar í sólbaði dormar hann latur en dregst helst á fætur ef kallað er: Matur! Við sundlaugina sá ég fíl og sautján metra krókódíl -ættaða frá ánni Níl- þeir eta menn í hasti. Þeir bölvuðu af bræði tveir -af biti þeirra maður deyr- mér varð til lífs að voru þeir úr viðarlíki og plasti. „Annars var gott við sundlaugina og gaman að fylgjast með sundleikfimi bústinna kvenna“: Á sundlaugarbakka ég hélt mig til hlés, í hasarinn lítið ég þorði. Í lauginni miðri einn búrhvalur blés og bláhveli léku á sporði. Mesta unun hefur greinilega veitt honum að skoða fólk og yrkja um margbreytt útlit þess: Það henti loks hugljúfa Garp með háls eins og pelíkan-sarp og lubba sem hreiður að hann virtist reiður er hrafn settist á hann og varp. Eftir tveggja vikna dvöl var þó ögn farið að sjá á sóldýrkendum: Svíður og kolar sólin blíð, soðið er hold að beini. Nú mætti koma norðanhríð og nístingsfrost. Je minn eini! Steini var meðal ferðafélaga Davíðs: Heimleiðis í helkalt sker hópurinn er snúinn. Sólbrúnn mjög og sæll hann er og sýnist ekki lúinn en straumlaus héðan Steini fer því Steini er alveg búinn. Davíð dregur svo saman ferðalýsingar sínar í lipurri vísu: Sólin bætir sálar hag og sumir verða fegri. Ég horfi í spegil hér í dag og held að ég sé negri. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com 239MÆLT AF MUNNI FRAM Fjórar gimbrar og tveir hrút- ar fengu 20 stig fyrir læri – á Degi sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu sem haldinn var á Hellu Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu var haldinn 12. október síðastliðinn á Hellu. Helst bar þar til tíðinda að fjórar gimbrar og tveir hrútar fengu fullt hús stiga fyrir læri í lambadómum. Að sögn Huldu Brynjólfsdóttur, frá Félagi sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu, sem stóð að viðburðinum, var þátttaka mjög góð og margir gestir komu til að sjá fallegt fé, hitta sveitungana og eiga góðan dag saman. Bakvöðvi frá Skíðabakka 43 sentimetra þykkur „Hæstu lambhrútar úr heimasýningum voru boðaðir til sýningarinnar, en auk þess mátti koma með ódæmda hrúta á staðinn. Þá voru gimbrar einnig velkomnar, bæði dæmdar og ódæmdar. Óhætt er að segja að þykkir vöðvar hafi ráðið ríkjum á sýningunni, en hvorki meira né minna en sex lömb fengu 20,0 fyrir læri. Þá var þykkasti bakvöðvi sýningarinnar á gimbur frá Skíðbakka, en hann var 43 mm,“ segir Hulda. „Dagurinn var hefðbundinn, en byrjað var að dæma lömb fyrir hádegi og síðan raðað í sæti eftir hádegi. Verðlaunað var fyrir hyrnd og kollótt lömb hvort í sínu lagi. Meiritunga 4 var útnefnt ræktunarbú ársins 2018, en þar eru ábúendur Þórdís Ragna Guðmarsdóttir og Tyrfingur Hafsteinsson. Besta fimm vetra ær sýslunnar er frá Árbæjarhjáleigu, númer 14-401, en þar eru ábúendur þau Kristinn Guðnason og Marjolyn Tiepen. Besti vet- urgamli hrúturinn er frá Teigi í Fljótshlíð, Þrjótur númer 17-396, en þar eru ábúendur þau Arna Dögg Arnþórsdóttir, Guðni og Tómas Jennssynir. Sú nýbreytni var að ekki voru dæmdir veturgamlir hrútar, heldur fékk sá veturgamli hrútur sem skilaði bestum afurðum árið 2018 viðurkenningu. Áhorfendur hafa valið litfegursta lambið að undanförnu og það atriði var einnig núna, en auk þess komu nokkur börn með vel skreytt lömb sem áhorfendur kusu um hvert væri best skreytt.“ Gimbur í happdrættisvinning Hulda segir að margir aðilar styrki hátíðina sem er árviss viðburður í sýslunni; sveitarfé- lögin þrjú; Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur sem styrkja með fjárframlagi, Sláturfélag Suðurlands sem gefur kjötsúpu, Rangárhöllin sem gefur afslátt af húsnæðinu og nokkrir aðilar sem gefa vinninga í happdrætti, en þar má meðal annars vinna efnilega gimbur. „Við þökkum öllum þeim sem komu að sýn- ingunni með einum eða öðrum hætti, kærlega fyrir þeirra framlag. Styrkjendum af heilum hug og þeim sem gáfu happdrættisvinninga og hlökkum til næstu sýningar sem verður í október 2020,“ segir Hulda. /smh Besta hyrnda gimbrin kom frá Rúti Pálssyni, Skíðbakka í Landeyjum. Hún var með 43 mm bakvöðva og hlaut því líka verðlaun fyrir þykkasta bakvöðva sýningarinnar. Gimbrin í 2. sæti kom frá Sigríki Jónssyni, Syðri-Úlfsstöð- um. Formaður nefndarinnar, Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, afhenti verðlaunin. Besti hyrndi lambhrúturinn kom frá Kaldbak og eru Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson með barnabörnunum alsæl með verðlaunin. Myndir / Hulda Brynjólfsdóttir Besti veturgamli hrútur ársins 2018 kom frá Félagsbúinu Teigi, en ábúendur þar eru Arna Dögg Arnþórsdóttir, Guðni Jensson og Tómas Jensson. Ræktunarbú ársins 2018 var Meiritunga 4, en ábúendur þar eru Þórdís Ragna Guðmarsdóttir og Tyrfingur Hafsteinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.