Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201910
FRÉTTIR
Páskadraumur í Dubrovnik
sp
ör
e
hf
.
Vor 4
Austurlenskur blær, hefðir, minjar og ólýsanleg
náttúrufegurð hrífa okkur í glæsilegri ferð til Dubrovnik
og Porec í Króatíu við Adríahafið. Farið verður til
Svartfjallalands þar sem við siglum yfir til gömlu
borgarinnar Kotor. Við munum eiga góða daga í yndislega
listamannabænum Rovinj í Króatíu og endum að lokum
góða ferð í tónlistarborginni Salzburg.
7. - 19. apríl
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 288.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
FourSalmon kannar samfélagsleg
og umhverfisleg áhrif af fiskeldi
Í lok október var haldinn
fundur hérlendis vegna
nýs norræns verkefnis
sem kallast FourSalmon
og felst í að skoða samfé-
lagsleg og umhverfisleg
áhrif af fiskeldi.
Meginviðfangsefnið
er laxeldi í sjókvíum og
horft til stefnumótunar,
stjórnunar og eftirlits,
áhrifa á nærumhverfið
og samfélagið, áskorana
og tækifæra.
Ragnheiður Þórarins
dóttir, rektor Land
búnaðar háskólans, segir
að markmið verkefnisins
sé að taka saman upp
lýsingar í fjórum lönd
um, Noregi, Færeyjum,
Kanada og Íslandi, þar
sem meðal annars er
horft til laga og reglu
gerða í löndunum.
Sérfræðingar frá Nofima
og Háskólanum í Tromsö
í Noregi, Háskólanum í
Færeyjum, Háskólanum
í Ottawa í Kanada,
Háskóla Íslands og
Landbúnaðarháskóla Íslands taka
þátt í verkefninu.
„Hópurinn fundaði með
þeim stofnunum sem koma að
umhverfismati, eftirliti og leyfis
veitingum, sem og burðarþolsmati,
það er að segja Skipulagsstofnun,
Matvælastofnun, Umhverfisstofnun
og Hafrannsóknastofnun, sveit
arstjórnum á Tálknafirði og í
Vesturbyggð, auk þess sem leitað
var upplýsinga til annarra hagaðila,
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
og Landssambands veiðifélaga.
Þá fór hópurinn í skoðunarferð í
nýju seiðaeldisstöð Arctic Smolt
í Tálknafirði.
Tækifæri og áskoranir
„Náttúruauðlindir á norður
slóðum skapa mikil tækifæri en
einnig áskoranir fyrir samfélögin.
Fiskeldi í sjókvíum er að ryðja
sér til rúms og hefur haft áhrif á
þróun byggða í dreifbýli í þátt
tökulöndunum. Hérlendis höfum
við til dæmis séð fjölgun íbúa í
nærumhverfi fiskeldisfyrirtækja.
Það eru þó ýmsar áskoranir sem
snúa bæði að umhverfislegum og
samfélagslegum þáttum. Í verk
efninu er ætlunin að taka saman
þær upplýsingar og gera saman
burð milli landanna fjögurra á því
hvernig stjórnun þessara þátta er
háttað. ,Þannig má auka þekkingu,
styðja við og stuðla að framþróun
og þekkingarmiðlun milli land
anna,“ segir Ragnheiður.
Sérfræðingar með
þverfaglegan bakgrunn
Verkefnið er stutt af Fram Centre í
Noregi (The High North Research
Centre for Climate and the
Environment). Verkefnishópurinn
samanstendur af sérfræðingum með
þverfaglegan bakgrunn í félagsfræði,
skipulagsfræði, umhverfisstjórnun,
tæknigreinum og líffræði.
„Allir í hópnum eiga það sameig
inlegt að hafa unnið að verkefnum á
sviði fiskeldis til fjölda ára, sem snúa
að lagaumhverfi, eftirliti, leyfismál
um, umhverfismati og/eða vottun á
sjálfbærni.“ /VH
Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor Landbúnað-
arháskólans.
Hópurinn heimsækir bæjarskrifstofur Vesturbyggðar á Patreksfirði. Mynd / LBHÍ.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum:
Námskeið í loftslagsvænum
landbúnaði haldin í febrúar
– Skráning á námskeiðin er þegar hafin á heimasíðu RML
Í byrjun næsta árs fer af stað verk-
efnið „Loftslagsvænn landbúnað-
ur“ í samræmi við aðgerðaáætlun
Íslands í loftslagsmálum. Liður í
því er námskeið fyrir bændur sem
haldin verða í febrúar 2020.
Undirbúningur verkefnisins hefur
verið fjármagnaður af umhverf
is og auðlindaráðuneytinu og
atvinnuvega og nýsköpunarráðu
neytinu og hefur verið unninn í
samstarfi Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins, Landgræðslunnar,
Skógræktarinnar, Landssamtaka
sauðfjárbænda og Bændasamtaka
Íslands.
Markmið verkefnisins er að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda frá
búrekstri og auka bindingu kolefnis
með breyttum áherslum í landnýt
ingu. Megináherslan verður til að
byrja með lögð á sauðfjárrækt og
er það í samræmi við áherslur rík
isstjórnarinnar.
Námskeið fyrir bændur
Í febrúar verða haldin heilsdags
námskeið í loftslagsvænum landbún
aði þar sem bændum og öðrum land
eigendum gefst kostur á að efla þekk
ingu sína á loftslagsmálum og hvaða
aðgerðir eru vænlegar til árangurs,
svo sem með breyttri landnýtingu,
ræktun, áburðarnotkun og fóðrun.
Námskeiðsstaðir verða ákveðnir með
tilliti til fjölda skráninga á hverju
svæði. Námskeiðsgjaldi verður stillt
í hóf. Takmarkað framboð verður
á námskeiðum og því mikilvægt
að áhugasamir skrái sig sem fyrst
á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins, rml.is, eða með því
að hringja í síma 5165000.
Þátttökubú
Þeim, sem eru þátttakendur í
gæðastýrðri sauðfjárrækt og hafa
lokið námskeiði í Loftslagsvænum
landbúnaði, mun gefast kostur á
að sækja um að verða þátttökubú
í verkefninu. Þátttökubúum gefst
kostur á aðstoð við að vinna tíma
setta aðgerðaáætlun um minnkun
á kolefnisspori í búrekstrinum og
einnig aðstoð við að koma áætl
unum sínum í framkvæmd. Unnið
verður út frá forsendum hvers og
eins. Ávinningur þátttakenda verður
einkum fólginn í betra landi, bættum
rekstri, betri nýtingu aðfanga, verð
mætari auðlind, bættri ímynd og há
mörkun afurða. /BPB
Markmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá
búrekstri og auka bindingu kolefnis með breyttum áherslum í landnýtingu.
Megináherslan verður til að byrja með lögð á sauðfjárrækt og er það í sam-
ræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar.