Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201914
Þeir sem fara til Evrópu eða
annarra heimshluta á villisvína-
veiðar þurfa að gæta ýtrustu
smitvarna til að koma í veg
fyrir að bera afríska svínapest
milli landa. Pestin er í hraðri
útbreiðslu og mikil ógn stafar af
henni fyrir svínarækt í heimin-
um. Smit getur borist með mat-
vælum, fatnaði og ýmsum tækj-
um og tólum.
Veiran sem veldur afrískri svína-
pest getur m.a. borist með sýktum
svínum og sæði, hráu kjöti af sýkt-
um dýrum, farartækjum, búnaði,
fatnaði o.fl. Veiðimenn eru meðal
þeirra sem þurfa sérstaklega að
gæta sín á að dreifa ekki veirunni.
Afrísk svínapest er
bráðsmitandi drepsótt í
svínum og hefur dreifst
með villtum svínum um
Asíu, Afríku og Evrópu.
Ekki er til nein með-
höndlun við sjúkdómnum
og ekki er hægt að verjast
honum með bólusetn-
ingum. Veiran sem veld-
ur sjúkdómnum er ekki
hættuleg fyrir fólk eða
önnur dýr en veldur svín-
um þjáningum og dauða.
Tjón fyrir landbúnað þar
sem sjúkdómurinn kemur
upp er gífurlegt.
Tilmæli til þeirra sem
fara á villisvínaveiðar eru:
• Kynnið ykkur vel þær
smitvarnareglur sem
gilda í veiðilandinu.
• Þrífið og sótthreinsið
tæki og skó áður en
veiðilandið er yfirgefið.
• Þvoið notaðan fatnað
í veiðilandinu. Sé það
ekki mögulegt skal setja
hann í poka og þvo í
þvottavél án tafar þegar
heim er komið eða fara
með í hreinsun.
• Farið ekki á svínabú að
nauðsynjalausu, hvorki
innanlands né erlendis.
• Kynnið ykkur vel þær
reglur sem gilda um
innflutning á kjöti
og veiðiminjar. Þær
má finna á heimasíðu
Matvælastofnunar,
www.mast.is.
Tilmæli til svínabænda eru:
• Hafið stranga stjórn á aðgangi
og umgangi gesta og starfsfólks
á búinu.
• Fóðrið ekki svín með matarúr-
gangi.
• Þrífið og sótthreinsið öll tæki og
tól sem farið er með inn á búið.
Thelma Dögg Róbertsdóttir,
dýralæknir svínasjúkdóma
hjá Matvælastofnun
HLUNNINDI&VEIÐI
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
klefar
Kæli- & frystiklefar
í miklu úrvali.
Vottaðir gæðaklefar með
mikla reynslu á Íslandi.
Einfaldir í uppsetningu.
hillur
fyrir kæli- & frystiklefa.
Mikið úrval og auðvelt að setja saman.
Sérhannaðar fyrir matvæli.
Kæli- & frysti-
búnaður
hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Skortur að verða á svínakjöti vegna afrísku svínapestarinnar:
Kínverjar reyna að tryggja sér svínakjöt um allan heim
– Verð á svínakjöti er farið að hækka á mörkuðum víða um heim
Kínverjar hafa aflétt banni á
innflutningi á svínakjöti frá
Kanada og Brasilíu. Kemur
þetta í kjölfar þess að forseti
Alþjóðadýraheilbrigðis stofn-
unarinnar (OIE) varaði við því í
lok október að u.þ.b. fjórðungur
svínastofna heimsins muni drep-
ast af völdum afrísku svínapest-
arinnar.
Dr. Mark Schipp, forseti OIE,
greindi frá skelfilegri spá sinni á
fréttamannafundi í Sydney í Ástralíu
fimmtudaginn 31. október. Þar kom
fram að hann teldi að um 25% af
svínum heimsbyggðarinnar muni
drepast af völdum svínapestarinn-
ar. Á heimsvísu voru framleidd um
121 milljón tonna af svínakjöti árið
2018. Fjórðungur af því er tæplega
30,3 milljónir tonna. Ef fjórðungur
svínastofnsins í heiminum ferst úr
þessari veiki, gæti það hins vegar
leitt til enn meiri framleiðslusam-
dráttar þannig að heildarframleiðslan
fari jafnvel talsvert undir 90 milljón
tonn á ári.
Fækkað hefur um 45% í
svínastofni Kínverja
Ljóst er að þetta verður mjög þungt
högg fyrir svínaræktina og sér í lagi
fyrir Kínverja sem eru langstærstu
framleiðendur á svínakjöti í heim-
inum. Financial Times hefur það
eftir greinanda hjá fjárfestinga-
sjóðnum INTL FCStone að það hafi
orðið um 45% fækkun í svínastofni
Kínverja frá því veikin greindist þar
fyrst.
Verulegur samdráttur
í framboði á svínakjöti
Kínverjar framleiddu rúmlega 54
milljónir tonna af svínakjöti á árinu
2018 samkvæmt tölum Statista. Ef
framleiðslan dregst saman um 45%,
gæti það þýtt að rúmlega 24 milljónir
tonna af svínakjöti hverfa af mark-
aðnum. Næstmesta framleiðslan
var í ríkjum Evrópusambandsins
sem framleiddu þá samanlagt um
24,3 milljónir tonna og Bandaríkin
voru með 11,9 milljóna tonna fram-
leiðslu.
Það virðist þó vera fleira en
svínakjötsframleiðslan sem er að
dragast saman. Samkvæmt spá land-
búnaðarráðuneytis Bandaríkjanna
þá er áætlað að samdráttur í fram-
leiðslu á kjúklingakjöti, svínakjöti
og nautakjöti muni dragast saman
um 6,4 milljónir tonna á árinu 2020.
Margir sérfræðingar á markaði telja
þetta mjög vanáætlað.
Leitað að svínakjöti
víða um heim
Þegar er farið að gæta verðhækkana
á svæðum þar sem svínapestin hefur
náð sér á strik, eins og í Evrópu.
Því er ekki óeðlilegt að þau lönd
reyni að tryggja sér svínakjöt fyrir
heimamarkað og það þýðir að draga
mun úr sölu út fyrir heimamarkaði.
Brasilía, þar sem Kínverjar hafa
nú sóst eftir kaupum á svínakjöti,
framleiddi í fyrra tæpar 3,8 milljónir
tonna. Kanada, sem Kínverjar hafa
einnig verið að bera víurnar í, fram-
leiddi á síðasta ári rúmlega 1,9 millj-
ónir tonna af svínakjöti. Fimmtu
stærstu framleiðendur á markaðnum
eru svo Rússar sem framleiddu nær
3,2 milljónir tonna á síðasta ári, en
þeir hafa náð því að vera sjálfum
sér nógir eftir að Evrópusambandið
setti viðskiptabann á matvælasölu
til landsins 2015. Þá tóku rússnesk
yfirvöld þá stefnu að tryggja fæðu-
öryggi landsmanna fyrir árið 2020
og virðist það hafa gengið nokkuð
vel eftir. Hafði þetta viðskiptabann
alvarlegar afleiðingar fyrir nokkuð
stóra svínakjötsframleiðsluþjóð eins
og Danmörku sem varð að leita sér
annarra markaða.
Áköf leit Kínverja að svínakjöti
víða um heim bar á góma í vefriti
Global Meat 2. desember. Þar kom
fram að útflutningur á svínakjöti
frá Evrópu til Kína hafi tvöfaldast
á milli ára og hafi verið komin í
138.400 tonn í september síðast-
liðinn. Var met slegið í útflutningi
svínakjöts frá Evrópu í september og
hafði útflutningurinn þá aukist um
37% á milli ára og var 236.600 tonn.
Þessi aukni útflutningur sem
stafar af aukinni eftirspurn frá Kína
vegna svínapestarinnar hefur leitt
til ört hækkandi verðs á svínakjöti.
„Held að tegundin muni
ekki alveg glatast“
„Ég held að tegundin sem slík muni
ekki alveg glatast,“ sagði Schipp, „en
það er alvarlegasta ógnin við svína-
eldi sem við höfum nokkurn tíma séð.
Þetta er mesta ógnin við búfjárrækt
á okkar tímum,“ sagði Mark Schipp
í samtali við AP. /HKr.
FRÉTTIR
...frá heilbrigði til hollustu
Smithætta fylgir veiðiferðum erlendis
AFRÍSK
SVÍNA-
PEST
Afrísk svínapest (ASF)
er bráðsmitandi
svínasjúkdómur.
Sjúkdómurinn er ekki
hættulegur fyrir fólk
en veldur gífurlegu
fjárhagslegu tjóni fyrir
landbúnað. Bóluefni gegn
sjúkdómnum eru ekki til.
Sem veiðimaður hefur þú
möguleika á að uppgötva
einkenni hjá svínum
snemma og skyldur til
bregðast rétt við.
Ekki dreifa
sjúkdómnum.
Þrífið og sótthreinsið
búnað á staðnum
Farið ekki á svínabú
að nauðsynjalausu
Þrífið og sótthreinsið
veiðiminjar á staðnum
Deilið ekki matvælum úr kjöti
af veiddum dýrum með öðrum
né fóðrið dýr með þeim
Skiljið veiðiúrgang
eftir á staðnum
Skiljið ekki eftir
mat fyrir villisvín
Veiðimenn
Ekki vera
smitberar
svínadrepsóttar
Fyrir frekari upplýsingar:
www.oie.int/asf
VIRÐIÐ ALMENNAR VARÚÐARREGLUR
• Tilkynnið dauð
eða veik villisvín til
dýraheilbrigðisyfirvalda
• Virðið veiðibönn sem
yfirvöld hafa sett
• Ef þú ferð reglulega inn
á svínabú, ekki fara á
villisvínaveiðar
ALÞJÓÐADÝRAHEILBRIGÐISSTOFNUNIN
Verndum dýrin, varðveitum okkar framtíð
drepur
svín