Bændablaðið - 05.12.2019, Side 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 15
Lambadagatal Ragnars Þorsteins
sonar, sauðfjárbónda og ljós
myndara með meiru í Sýrnesi í
Aðaldal, er nú komið út í sjötta
sinn. Ragnar hefur veg og vanda
að útgáfunni líkt og verið hefur,
hann tekur flestar myndanna á
búi sínu í Sýrnesi og vinnur að
auki við uppsetningu og hönnun
dagatalsins, sér um fjármögnun
þess og dreifingu. Samkvæmt
venju eru ljósmyndirnar teknar
á sauðburði frá árinu áður, þ.e.a.s.
á Lambadagatali 2020 eru allar
myndirnar teknar á sauðburði
2019 og endurspegla því líka veð
urfarið á þeim árstíma.
Fallegt með þjóðlegum fróðleik
Að venju prýða dagatalið stórar
andlitsmyndir af fallegum, marg-
litum, nýlega fæddum lömbum í
náttúrulegu umhverfi. Dagatalið er
í A4 stærð og er hver mánuður á
einni blaðsíðu. Það er gormað með
upphengju og því auðvelt að hengja
það upp þar sem hentar. Á það eru
merktir allir hefðbundnir helgi- og
frídagar, einnig eru merkingar fyrir
fánadaga, komu jólasveinanna,
gömlu mánaðarheitin og ýmsa
aðra daga er tengjast sögu lands og
þjóðar. Dagatalið er því bæði fal-
legt og gagnlegt með sínum þjóðlega
fróðleik.
Lambadagatölin hafa hlotið góðar
viðtökur undanfarin ár og vinahóp-
ur Facebook-síðunnar Lamba Lamb
er nú rétt að ná þúsund manns.
Útgáfan hefur verið fjármögnuð
á Karolina Fund þar sem þau eru
keypt í forsölu. Að sögn Ragnars
þá er; „megintilgangur útgáfunnar
að breiða út sem víðast, fegurð og
fjölbreytni íslensku sauðkindarinnar.
Það er líka mjög svo skemmtilegt og
gefandi að standa í þessu og finna
þá miklu velvild sem er meðal fólks
til okkar sauðfjárbænda og íslensku
sauðkindarinnar en hún hefur jú fætt
okkur og klætt í gegnum aldirnar og
án hennar værum við ekki til sem
þjóð í dag,“ segir hann.
Krefjandi en skemmtilegt
að mynda lömb
„Það er bæði krefjandi og tíma-
frekt að taka myndir af lömbum
eins og öðru ungviði. Þau eru
líka mjög sjálfstæð með sterka
og fjölbreytta persónueiginleika
eins og við mannfólkið og fylgj-
ast vel með því sem er í gangi og
eru ekki alltaf til í að standa kyrr
og brosa á meðan myndatökunni
stendur.
Eins og gefur að skilja er
sauðburður í fullum gangi á þess-
um tíma og því oft ekki mikill
tími aflögu til annarra verka.
Myndatakan er þó mjög skemmti-
leg og það er endurnærandi á sál
og líkama að leggjast út á tún
og taka myndir af lömbunum.
Lömbin eru ýmist mynduð með
mæðrum sínum eða ein og þá
þarf að vera búið að vinna traust
þeirra svo þau verði ekki skelkuð
og hlaupi í burtu,“ segir Ragnar.
Gylfafl öt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is
Frostagötu 2a • 603 Akureyri • velfang@velfang.is - VERKIN TALA
KUHN áramótatilboð
gildir til 5. janúar 2020
Lambadagatal
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.