Bændablaðið - 05.12.2019, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 21
þeirri mengun. Í þessu tilfelli eru
það Íslendingar. Með tali um að það
skipti engu máli er í raun verið að
segja að það sé í góðu lagi að ljúga
svo lengi sem menn fá greitt fyrir
það í beinhörðum peningum. Ekki
síst ef hægt er að tengja það bar
áttunni gegn hlýnun loftslags. Þar
virðist tilgangurinn vera að helga
meðalið.
Hreina íslenska orkan
úr 89% í 11% á 8 árum
Íslensk orkufyrirtæki hófu sölu á
upprunavottorðum raforku árið
2011. Í gögnum Orkustofnunar
kemur fram að það ár hafi 89%
raforkunnar á Íslandi verð endur
nýjanleg orka. Hins vegar var 5%
hlutdeild orkunnar framleidd með
kjarnorku og 6% með jarðefnaelds
neyti. Árið 2012 var endurnýjanlegi
hlutinn kominn í 63%, kjarnorku
hlutinn í 16% og jarðefnaeldsneytið
í 21%.
Árið 2013 var hreina orkan
39% af heildarorkusölunni.
Kjarnorka var þá á bak við 24% og
jarðefnaeldsneyti stóð fyrir 37%
raforkusölunnar í landinu.
Árið 2014 var endurnýjanlega
orkan 45%, kjarnorka 23% og
jarðefnaeldsneytið var þá komið í
37% af raforkunni hér á landi.
Í tölum fyrir árið 2015 sem birtar
voru 2016, hoppaði endurnýjanlega
orkan allt í einu upp í 71%. Þá var
hlutfall kjarnorku sagt vera 12%
og hlutur jarðefnaeldsneytis 17%.
Þessar breytingar urðu í kjölfar
umfjöllunar Bændablaðsins í júní
2014 um menguðu hreinu orkuna
á Íslandi. Olli sú umfjöllun miklu
uppnámi þar sem ráðherrar lýstu
hneykslun sinni og hver um annan
þveran ætlaði að sjá til þess að þessu
yrði kippt í liðinn. Nú fimm árum
síðar hefur ekkert gerst nema það að
hlutfall hreinu orkunnar í íslensku
raforkuframleiðslunni hefur minnk
að niður í 11%.
Kraftur settur í sölu
hreinleikavottorða 2016
Árið 2016 var greinilega búið að
setja mikinn kraft í sölu hrein
leikavottorða að nýju og endurnýj
anlega orkan komin niður í 21%.
Þá var kjarnorkan sögð standa fyrir
20% íslensku raforkunnar og jarð
efnaeldsneyti stóð fyrir 59%.
Árið 2017 var endurnýjanlega
orkan komin niður í 13% og kjarn
orkan var komin upp í 29%. Þá var
jarðefnaeldsneytið á bak við 58%
íslensku raforkuframleiðslunnar.
Hreina raforka Íslendinga
aðeins 11% af heildinni
Árið 2018 var hreina íslenska
orkan aðeins orðin 11% af heildar
sölu raforku á Íslandi samkvæmt
tölum Orkustofnunar. Þá voru 34%
orkunnar framleidd með geislavirku
úrani og 55% raforkunnar var sögð
framleidd með jarðefnaeldsneyti,
eða kolum olíu og gasi. Svona er
nú komið fyrir hreinorkulandinu
Íslandi.
Líklegt er að hlutfall raforku sem
framleitt er með endurnýjanlegum
orkugjöfum verði komið niður fyrir
10% á næsta ári ef marka má eftir
spurn eftir syndaaflausnum í orku
málum vegna mikillar umræðu um
hlýnun jarðar. Allir vilja jú geta sýnt
fram á það á pappírunum að þeir séu
að framleiða vörur með „grænni“
raforku þótt veruleikinn sé sá að
stærsti hluti fyrirtækja heimsins eru
að framleiða vörur sem byggja á raf
orku sem framleidd er með kolum,
olíu og gasi.
Tæp 19 tonn af
geislavirkum úrgangi
Í staðinn fyrir sölu á hreinleika
vottorðum frá íslenskum raforku
fyrirtækjum verða Íslendingar að
taka á sig á pappírunum losunartölur
frá erlendum fyrirtækjum sem kaupa
vottorðin. Í tölum Orkustofnunar
kemur fram að vegna þess að íslensk
raforka er að 34% hluta sögð fram
leidd með kjarnorku þá tökum við á
okkur 0,94 milligrömm, eða 0,00094
grömm af geislavirkum úrgangi á
hverja kílówattstund. Það skilur eftir
sig tæp 19 tonn af geislavirkum úr
gangi miðað við raforkuframleiðsl
una á Íslandi 2018.
Berum ábyrgð á losun 8,8 milljón
tonna af CO2 út í andrúmsloftið
Vegna þess að íslensk raforka er að
55% hluta sögð framleidd með jarð
efnaeldsneyti, þá tökum við á okkur
samkvæmt pappírunum 443,13
grömm af koltvísýringi á hverja
kílówattstund af raforku. Það jafn
gildir því að við höfum verið að losa
og berum ábyrgð á um 8,8 milljón
tonnum af CO2 út í andrúmsloftið á
síðasta ári.
Opinberar blekkingar
Þessar opinberu tölur sem hér eru
birtar virðast samt varla geta talist
annað en sérkennilegur leikur. Í
sömu gögnum Orkustofnunar er líka
sagt að raforkuframleiðslan á Íslandi
árið 2018 hafi að 99,99% hluta verið
framleidd með vatnsorku, jarðhita og
vindorku. Aðeins 0,01% raforkunnar
hafi verið framleidd með jarðefna
eldsneyti. Tilgangurinn virðist þá
væntanlega vera að blekkja grun
lausa neytendur til að borga meira
fyrir vöru sem í raun er framleidd
með óhreinum orkugjöfum. Má í
raun segja að Landsvirkjun staðfesti
það í sínum útlistunum á sölu upp
runavottorða.
Græn upprunavottorð
fyrir 600 milljónir króna
Í svari við ítrekuðum fyrirspurnum
Bændablaðsins á síðasta ári til
Landsvirkjunar um tekjur af upp
runaorkuvottorðum barst loks svar
í nóvember í fyrra. Þar kom fram að
þá stefndi í að tekjur fyrirtækisins af
sölu skírteinanna á árinu 2018 næmi
um 600 milljónum króna.
Vel rekin Landsvirkjun
dansar á línu viðskiptasiðferðis
Stærsta raforkufyrirtæki Íslendinga,
Landsvirkjun, hefur sannarlega á að
skipa afar hæfum stjórnendum sem
hafa fjárhagslega hagsmuni fyrirtæk
isins ávallt í fyrirrúmi. Um það deilir
vart nokkur maður. Staðan er afar
góð og því vekur undrun að fyrir
tækið telji sig þurfa að selja uppruna
vottorð sem orka jafn mikils tvímælis
í siðferðilegu tilliti og raun ber vitni.
Rekstur Landsvirkjunar gekk
vel á árinu 2018. Orkusala hefur
aldrei verið meiri, eða 14,8 TWst.
Einnig voru tekjur
þær hæstu í sögu
fyrirtækisins, eða
534 milljónir
dollara, eða sem
svarar nærri 66
milljörðum króna.
Ytri aðstæður
voru fyrirtækinu
einnig hagstæð
ar. Má þar nefna
hækkun álverðs
um 7% milli ára.
Fyrirtækið
er því orðið afar
sterkt og eigið fé
í árslok 2018 nam
2.163,1 milljón
Bandaríkjadala
og með eigin
fjárhlutfall upp
á 48,6%. Hafði
hlutfallið þá hækk
að milli ára um 2,8%. Skilaði
Landsvirkjun í fyrra einnig mesta
hagnaði í sögu fyrirtækisins, fyrir
óinnleysta fjármagnsliði nam hann
184 milljónum dollara, eða sem
svarar á genginu í dag rúmum 18
milljörðum króna. EBITA nam 390
milljónum dollara og EBITA hlutfall
var 73%. Hefur fyrirtækið verið að
greiða niður lán af framkvæmdum
jafnt og þétt.
Þessi góði árangur stjórnenda
Landsvirkjunar sýnir svo ekki er
um villst að það er algjör óþarfi
að leggja siðferðisímynd íslenskr
ar raforkuframleiðslu að veði með
sölu syndaaflausnarbréfa til erlendra
fyrirtækja.
Viðskiptavöndlar með
kolefniskvóta búnir til í nafni
loftslagshlýnunar
Allur þessi skrípaleikur er gerður
í samræmi við viðskiptakerfi ESB
(EU ETS) sem er stærsta við
skiptakerfi með losunarheimildir
í veröldinni. Það nær yfir 11.000
virkjanir og iðjuver í ESB og þar
af eru um 1.000 slíkar í Bretlandi.
Inni í þessu kerfi eru virkjanir, olíu
hreinsunarstöðvar, aflandsolíubor
pallar, atvinnugreinar sem framleiða
járn og stál, sement og kalk, pappír,
gler, keramik og ýmis kemísk efni.
Aðrar stofnanir, þar á meðal
háskólar og sjúkrahús, geta einnig
fallið undir ETS ESB, allt eftir
brennslugetu orkuframleiðslubúnað
ar á þeirra svæði. Flug
rekendur sem fljúga til
eða frá evrópskum flug
velli falla einnig undir
ETS ESB.
S a m k v æ m t
útlistun yfir
valda í Bretlandi
virkar þetta kerfi
í grunninn þannig
að fyrirtæki A og
fyrirtæki B sem
áætluðu að losa
kannski 210 tonn
hvert af CO2 á ári,
fengu úthlutað í
úthlutunarferli
ESB heimild
til að losa 200
tonn hvert að
hámarki sam
kvæmt pólitískri
ákvörðun. Í lok
fyrsta árs var
skráð raunlosun A ekki nema180
tonn þar sem A hafði endurbætt
brunakerfið orkuframleiðslu sinn
ar í byrjun árs sem dró úr CO2
losun þess. Þar með „átti“ A 40
tonna kolefniskvóta í afgang sem
var selt öðru fyrirtæki sem var að
losa meira en þau 200 tonn sem
ESB hafði ákvarðað sem hámark.
Fer þessi sala á afgangsheimildum
fram í gegnum sérstakan kolefnis
markað.
Fyrirtæki B sendi hins vegar frá
sér 220 tonn CO2 vegna þess að það
þurfti að auka framleiðslugetu sína
og taldi of dýrt að fjárfesta í spar
neytnari orkubúnaði. Þetta leysti
fyrirtæki B með því að kaupa þær
losunarheimildir sem A hafði selt
inn á markaðinn.
Niðurstaðan er sú að kol
tvísýrings losunin er nákvæmlega
jafn mikil og fyrirtækin áætluðu
í upphafi. En vegna þessa nýja
viðskiptavafningakerfis græðir A
beinharða peninga á að losa minna
en B þarf að borga sérstaklega refsi
gjald í formi losunarkvóta fyrir að
hafa ekki tök á nýjum búnaði. Til
að mæta þessum kostnaði þarf fyr
irtæki B væntanlega að hækka sitt
vöruverð. Það er síðan rökstutt með
því að fyrirtækið sé að framleiða
sína vöru með grænni orku og geti
lagt fram vottorð í formi kolefnis
kvóta sem sýni það. Út á þetta er
svo væntanlega hægt að fá ýmiss
konar umhverfisvottanir.
Þetta segja menn að eigi að
verða hvati fyrir fyrirtæki til að
menga minna. Það gleymdist bara
í hugmyndafræðinni að aukinn
kostnaður á fyrirtækin sem ekki
höfðu tök á að fara í nýjar fjár
festingar á orkunýtnari tækjum
jókst, þannig að þeim var gert enn
erfiðara um vik við að fara út í
slíkar fjárfestingar í framhaldinu.
Þá getur þetta líka virkað þannig
að það sé hreinlegra ódýrara hjá
fyrirtækjum að verða sér úti um
losunarkvóta eða upprunavottorð til
að sýnast hreinni en þau eru, heldur
en að innleiða vistvænt orkukerfi í
sinni framleiðslu. Í flestum tilvik
um er aðgengi að hreinni orku svo
alls ekki mögulegt, en stefnt er að
því að endurnýjanleg raforka verði
20% af heildinni í Evrópu á næsta
ári. Niðurstaðan getur því hæglega
verið aukin losun gróðurhúsaloft
tegunda m.a. í skjóli aflausnarbréfa
frá íslenskum orkufyrirtækjum.
Þú getur pantað
Byggðasögu
Skagafjarðar með
því að hringja í
síma 453 6261.
Einnig má senda
tölvupóst á netfangið
saga@skagafjordur.is
Safnahúsinu | 550 Sau›árkróki | Sími 453 6261 | Netfang: saga@skagafjordur.is | http://sogufelag.skagafjordur.is
N
ÝP
RE
N
T
eh
f.
/
1
12
01
9
Tuttugu ára útgáfuafmæli
Byggðasögu Skagafjarðar
Afmælistilboð á Byggðasögu Skagafjarðar
• I. bindi um Skefilsstaðahrepp og Skarðshrepp kr. 7.500
• II. bindi um Staðarhrepp og Seyluhrepp kr. 7.500
• III. bindi um Lýtingsstaðahrepp kr. 7.500
• IV. bindi um Akrahrepp kr. 7.500
• V. bindi um Rípurhrepp og Viðvíkurhrepp kr. 7.500
• VI. bindi um Hólahrepp kr. 7.500
• VII. bindi um Hofshrepp kr. 7.500
• VIII. bindi um Fellshrepp og Haganeshrepp kr. 7.500
• IX. bindi um Holtshrepp kr. 16.000
Útgáfa bókarinnar var styrkt af
Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, BYKO og Steinull.
AFMÆLIS
TILBOÐ
kr. 60.000FYRIR ALLAR NÍUBÆKURNAR
Ofangreint ver›
er félagsmanna-
ver› Sögufélags
Skagfir›inga og
b‡›st einnig þeim sem
panta beint frá útgáfunni.
Þeir sem greiða fyrir jól 2019 fá bæk-
urnar sendar burðargjaldsfrítt, eftir
það leggst við burðargjald. Hægt er að
semja um greiðsludreifingu.
Kennitala Sögufélagsins er:
640269-4649
Bankareikningur:
0310 - 26 - 11011
Af heimasíðu Orkustofnunar um mengunarþætti sem teknir eru inn vegna
sölu upprunavottorða fyrir 2018
Hreinorkuvottorðin eru a
f margvís
legum toga og fara vænt
anlega vel
á vegg.
Af heimasíðu Orkustofnunar.