Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201926
UMHVERFISMÁL&KAPÍTALISMI
fara ekki saman
Fyrr á þessu ári kom út í íslenskri
þýðingu Þorvalds Þor valds sonar
bókin What Every Enviromentalist
Needs to Know About Capitalism
eftir þá Fred Magdoff og John
Bellamy Foster. Bókin, sem kall-
ast Það sem allir umhverfissinnar
þurfa að vita um kapítalisma á
íslensku, fjallar um tengslin milli
umhverfisvanda samtímans og eðli
kapítalisma.
Fred Magdoff var staddur á
Íslandi fyrir skömmu þar sem hann
hélt meðal annars fyrirlestur um efni
bókarinnar. Magdoff er prófessor
emeritus í plöntu- og jarðvegsvís-
indum við Háskólann í Vermont
í Bandaríkjunum og hefur á ferli
sínum lagt áherslu á að rannsaka
heilbrigði jarðvegs og vistvænan
landbúnað.
Vandi landbúnaðarins er
kerfið
Magdoff segir að á ferli
sínum hafi hann lagt megin-
áherslu á að rannsaka jarð-
veg og heilbrigði jarðvegs
í tengslum við landbúnað
og að hann hafi verið yfir-
maður plöntu- og jarðvís-
indadeildar háskólans sem
hann starfaði við í átta ár.
Auk þess sem hann starfaði
fyrir landbúnaðarráðuneyti
og var verkefnastjóri rann-
sókna í tólf ríkjum í norð-
austurhluta Bandaríkjanna.
Rannsóknirnar beindust að-
allega að frjósemi jarðvegs.
„Eftir að ég fór á eftir-
laun hef ég skrifað talsvert
og haldið fyrirlestra víða
um heim sem tengjast rann-
sóknasviði mínu. Ástæðan
fyrir komu minni til Íslands
er að bók sem ég skrifaði
ásamt John Bellamy Foster og
heitir á frummálinu What Every
Enviromentalist Needs to Know
About Capitalism hefur verið
þýdd á íslensku og ég var fenginn
til að segja frá henni og hugmynda-
fræðinni á bak við hana.
Tilgangurinn með bókinni er
meðal annars að reyna að dýpka
umræðuna og hvað eigi sér stað í
landbúnaði í dag og hvað valdi þeim
vanda sem við eigum við að etja.
Okkar niðurstaða er sú að vandinn
liggi í kerfinu sjálfu og hvernig kerf-
ið virkar. Landbúnaðarkerfið hvet-
ur bændur til að hugsa á ákveðinn
hátt og stefna að því að græða sem
mest af peningum innan þess ramma
sem þeir starfa. Við slíkar aðstæður
hafa hvorki bændur né aðrir sem
að landbúnaði koma möguleika á
að hugsa um umhverfið eða hvers
konar mengun, ræktun eða dýraeldi
leiðir af sér.
Hugsun af þessu tagi leiðir síðan
til alls konar vandamála, hvort sem
þau tengjast vistkerfinu eða eru
félagsleg. Reyndar lít ég svo á að
vandinn tengist ekki bara landbúnaði
sem slíkum heldur að hann nái til alls
hagkerfisins og í bókinni er fjallað
um hagkerfið sem heild en ekki bara
landbúnað,“ segir Magdoff.
Kapítalismi og landbúnaður
fara ekki saman
„Niðurstaða okkar eftir að hafa
skrifað bókina er að það sé kapítal-
ismi og kapítalísk hugsun sem er rót
umhverfisvandans í dag. Kapítalísk
hugmyndakerfi eins og við búum
við í dag beinir fólki í þá átt að
græða sem mest af peningum án
tillits til annarra þátta.“
Í grein Magdoff, A Rational
Agriculture is Incompatible with
Capitalism, bendir hann á að skyn-
samlegur landbúnaður og kapítal-
ismi fari ekki saman. Þar segir hann
meðal annars að bændur í miðríkj-
um Bandaríkjanna rækti aðallega
maís og soja. Allt þjónustukerfið
og menningin á svæðinu er byggt
í kringum þá ræktun og 98% stunda
hana og aðeins lítill hluti bænda er í
annars konar framleiðslu.
„Þegar bændur eru á annað borð
orðnir hluti af þessu kerfi leiðir ein
ákvörðun til þeirrar næstu og niður-
staðan er alltaf sú sama. Það er að
segja að ef menn ætla að hagnast á
ræktuninni verða þeir að stækka við
sig til að ná aukinni hagkvæmni á
hvern hektara. Slíkt leiðir til auk-
innar fjárfestingar í landi og tækjum
og síðar í erfðabreyttum fræjum og
auknum áburði til að auka uppsker-
una enn meira.
Í raun er hver og ein af þessum
ákvörðunum skynsamleg út af fyrir
sig og í ákveðnu samhengi. Á sama
tíma valda þær því að á stórum land-
svæðum er einungis verið að rækta
tvær tegundir og mengunin frá þeirri
ræktun er gríðarleg. Einhæfri ræktun
eins og þessari fylgir jarðvegseyðing
og útlosun næringarefna í gegnum
framræslukerfi í ár og vötn. Að
lokum skolast næringarefnin út í
Mississippi-fljót og þaðan niður í
Mexíkóflóa þar sem er að finna stórt
svæði sem kallast „The Dead Zone“
eða Dauða svæðið, vegna súrefn-
isskorts af völdum útlosunar nær-
ingarefna, aðalleg niturs og fosfórs,
frá landbúnaði. Súrefnisskorturinn
veldur því að flestar æðri lífverur á
svæðinu eru dauðar en bakteríur og
þörungar lifa góðu lífi og vistkerfið
raskast.“
Magdoff segir að fyrir nokkrum
árum hafa hann tekið saman magn-
ið af næringarefnum sem skolast
í Mississippi-fljótið og áfram í
Mexíkóflóa frá Iowa-ríki. Í borginni
Des Moines, sem er fjölmennasta
borg ríkisins, er stór vatnshreinsistöð
þar sem efnainnihald vatnsins er
mælt á fimmtán mínútna fresti. Ef
nítrat (NO-3) innihald vatnsins sem
aðallega kemur úr nituráburði fer yfir
ákveðin mark (9 hlutar af milljón) er
farið í sérstakar aðgerðir til að hreinsa
vatnið enn frekar af heilsufarsaðgerð-
um.
„Út frá þessum mælingum og
vatnsmagni í fljótinu er hægt að
áætla hversu mikið magn af nitri er
í því fyrir ofan vatnshreinsistöðina.
Samkvæmt mínum útreikningum
fara um það bil 453 þúsund tonn af
nitri um ána við vatnshreinsistöðina á
hverju ári og niður í Mexíkóflóa. Það
má því ætla að magnið aukist eftir því
sem neðar dregur í fljótinu og aðrir
mengunarvaldar eins og nautgripa-
eldi og útlosun úr rotþróm bætist við.
Fyrir utan það hversu mengandi
nitrið er þá er um að ræða gríðar-
lega sóun á áburði og fjármunum sem
hæglega mætti draga úr ef landbún-
aðurinn á vatnasvæði Missisippi-
fljótsins væri fjölbreyttara.“
Ræktun þekjuplantna
myndi breyta miklu
Magdoff hlær þegar hann er spurður
hvað sé til ráða og hvernig breyta
megi þessari þróun.
„Auðvitað eru til leiðir en það eru
ekki allir til í að láta á þær reyna.
Meðal þess sem er verið er að gera er
að hvetja bændur til að rækta þekju-
plöntur á ökrunum eftir að búið er að
uppskera maísinn og sojað. Með því
er hægt að draga veruleg úr magni
niturs sem skolast úr jarðveginum.
Slík ræktun er einföld og passar vel
inn í núverandi ræktunarmynstur
maís og soja.
Að mínu mati er ræktun
þekjuplantna líklega besta aðferðin
til að draga úr niturlosuninni ef
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Fred Magdoff er prófessor emeritus í plöntu- og jarðvegsvísindum við Háskólann
í Vermont. Mynd / HKr.
Með auknum verksmiðjubúskap færist sífellt í aukana að kjúklingar, svín
og nautgripir hafi ekki aðgang að landi og dýrin alin upp í lokuðum húsum
eða við fóðurstöðvar. Mynd / Fred Magdoff
Maís er ræktaður á stórum svæðum í Mið-austurríkjum Bandaríkjanna og veldur ræktunin mikilli útskolun næring-
arefna. Sérstaklega niturs og fosfórs. Mynd / Fred Magdoff.
Í umsögnum um bókina hefur meðal
annars komið fram að efni hennar
geti verið gagnleg lesning í tengsl-
um við umræður um loftslagsvand-
ann. Þannig segir Naomi Klein bók-
ina ómissandi, bæði vægðarlausa
og sannfærandi og Ólafur R. Dýr-
mundsson telur hana snilldarlega af-
hjúpun í blekkingum kapítalismans
í umhverfismálum.