Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 27
ekkert annað breytist. Ef það
verða aftur á móti breytingar
á ræktunarmynstrinu aukast
möguleikarnir til muna, eins og til
dæmis með lífrænni ræktun.“
Aðskilnaður eldisdýra og lands
„Annað sem á sér stað í Bandarík
junum er aðskilnaður eldisgripa
frá landinu. Með auknum
verksmiðjubúskap færist sífellt
í aukana að kjúklingar, svín og
nautgripir hafa ekki aðgang að landi
og dýrin alin upp í lokuðum húsum
eða við fóðurstöðvar (feedlots). Eldið
á sér því stað í takmörkuðu rými og
ræktun fóðurjurta er á öðrum stað.
Fóðrinu er oft ekið langar leiðir til
dýranna og oftar en ekki úrgangurinn
frá dýrunum ekki nýttur sem áburður
og hann settur í opnar rotþrær og svo
skolað út í ár og vötn. Á sama tíma
kaupa bændur sem rækta fóðurjurtir
tilbúinn áburð þar sem það er ódýrara
en að nýta húsdýra áburðinn og það
hefur myndast vítahringur sem erfitt
er að vinna sig úr.“
Bændur í fjárkröggum
þrátt fyrir styrki
Magdoff segir að fjölskyldubú séu á
hröðu undanhaldi í Bandaríkjunum
og sama þróun eigi sér stað víðar
um heim.
„Stór hluti bænda í Banda
ríkjunum á við talsverð fjárhagsleg
vandræði að stríða þrátt fyrir
að yfirvöld veiti þeim ýmiss
konar stuðning og fjárhagslega
fyrirgreiðslu. Við þessar aðstæður
er aðeins tvennt í boði, hætta
búskap eða að stækka við sig til
að auka hagkvæmni og afleiðingin
er að minni býlum fækkar og stóru
búin verða ennþá stærri.
Stór fyrirtæki sjá einnig hag sinn í
að kaupa upp víðáttumikil landsvæði
og í dag eru um einn þriðji bænda í
Miðvesturríkjunum leigu liðar eða
verktakar í fæðuframleiðslu fyrir
matvælafyrirtæki eða annars konar
fjárfesta.
Auk þess sem þessi þróun
er þess valdandi að býlin eru
að verða stærri gerir hún líka
ungu fólki sem vill hefja búskap
það erfiðara. Þessi þróun veikir
sveitirnar sem samfélagslega heild
og í Bandaríkjunum eru fjölmörg
dæmi um að heilu borgirnar hafi
hreinlega dáið vegna þessa þrátt
fyrir að þar búi enn fólk. Þar er
aftur á móti engin þjónusta og allar
stofnanir eru horfnar þar sem ekki
er hægt að reiða sig á vinnu sem
tengist landbúnaði og þjónustu við
hann,“ segir Magdoff.
Baráttan um brauð
„Árið 2008 hækkaði verð á maís,
korni, hrísgrjónum og soja mikið í
kjölfar þess að framleiðsla á etanóli
sem orkugjafa úr korni og soja jókst.
Verð á hrísgrjónum margfaldaðist
og í framhaldinu brutust út átök
víða í Asíu, NorðurAfríku og
á eyjum í Karíbahafinu vegna
verðhækkananna og uppskerubrests
í Ástralíu og í Rússlandi.
Það sem gerðist í raun var að
spákaupmenn sáu sér hag í því
að kaupa upp birgðir af korni og
halda að sér höndum með að selja
það aftur þar til að verðið fór upp.
Útkoman var sú að fólk í fátækari
löndum heims hafði ekki efni á að
kaupa kornið þrátt fyrir að birgðir
væru nógar.
Í framhaldi af þessu fóru bæði rík
lönd og ríkir einstaklingar að kaup upp
stór landsvæði í Afríku og víða um
heim til að tryggja eigið fæðuöryggi
og er það stundum kallað landhremm
ing eða jarðasöfnun. Reyndar skilst
mér að þetta sé að gerast á Íslandi
í einhverjum mæli og að auðmenn
kaupi jafnvel jarðir í stórum stíl.“
Landbúnaður á Íslandi þarf
að standa styrkum fótum
Magdoff segist ekki vita nógu mikið
um Ísland og landbúnaðarmál til að
geta tjáð sig um hann að einhverju
ráði.
„Að mínu viti er þróunin í
landbúnaði sú sama víða um heim
og ég geri ráð fyrir að Ísland sé
þar engin undantekning. Til þess
að landbúnaður, matvælafram
leiðsla og matvælaöryggi í
heiminum sé rekin á skynsam
legum og umhverfisvænum
grunni þarf einhvers konar kerfi
sem verndar hann frá óheftum
markaðslögmálum kapítalism
ans. Með þessu á ég ekki við að
það þurfi að framleiða allan mat
sem þjóðin þarf hér á landi en
aftur á móti er nauðsynlegt að
matvælaframleiðslugrunnur inn sé
góður og til að svo sé þarf land
búnaður í landinu að vera öflugur
og standa styrkum fótum,“ segir
Fred Magdoff að lokum.
Jarðvegseyðing og útskolun næringarefna er fylgifiskur einhæfðrar ræktunar.
Mynd / Fred Magdoff.
Opin rotþró við fóðrunarstöð.
Gervihnattamynd sem sýnir útskolun næringarefna í Mexíkóflóa.
Mynd / https://serc.carleton.edu
Vörur fyrir sauðfé 255X190 prent.pdf 1 2.12.2019 14:46:12