Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 31
Akureyri · Sími 465 1332
www.buvis.is
H
ér
að
sp
re
nt
Framúrskarandi áburðardreifarar
frá RAUCH
Sérstök tilboðsverð
ef pantað er fyrir áramót
Eitt fullkomnasta alsjálfvirka mælikerfi sem völ er á - EMC hárnákvæm magnmæling
200 sinnum á sekúndu. Eini dreifarinn sem stjórnar og leiðréttir flæði áburðar aðskilið
á sitt hvora skífu. Stöðug leiðrétting á flæði áburðar allan tímann sem dreift er, enn
meiri nákvæmni á fyrstu metrum dreifingar. Hristingur og halli hefur ekki áhrif á EMC.
Sjálfvirk aðlögun vinnslubreiddar að lögun túnsins.
Beggja megin í einu eða öðru megin.
Afburða dreifigæði, einfalt og þægilegt viðmót,
stór skjár þar sem gott er að fylgjast með dreifingu.
Vinnslubreidd frá 12- 42 metrar - allt að 3200 kg. burðargeta.
Drif í lokuðu olíubaði sem eykur endingu og er viðhaldsfrítt.
Tvöföld pólýhúðun sem eykur endingu dreifara og viðheldur glæsilegu útliti.
www.rauch.de
Gerir þú kröfu um nákvæmni í dreifingu?
- Aukin nákvæmni felur í sér sparnað
til lengri tíma, betri nýtingu af hverjum
hektara og betri hey.
Farallon-eyjar:
Innrás músanna
Vistkerfi Farallon-eyja, sem
liggur við norðanverða strönd
Kaliforníu, er sagt vera í bráðri
hættu vegna mikillar fjölgunar
músa. Eyjarnar eru sagðar ríkar
af líffræðilegri fjölbreytni en líf-
fræðingar segja að það geti breyst
hratt verði ekkert að gert til að
hefta fjölgun músanna.
Farallon-eyjar liggja um 48 kíló-
metra út af borginni San Francisco
og þar verpa um 300 þúsund sjó-
fuglar af ýmsum tegundum, auk
þess sem selir og sæljón eru algeng
á eyjunum.
Líffræðingar sem hafa verið að
kanna hegðun hákarla við eyjarn-
ar og far fugla segja að undanfarin
ár hafi músum á eyjunni fjölgað
gríðarlega og nú sé svo komið að
þær ógni öðrum lífverum þar með
afráni. Mýsnar á eyjunum eiga sér
enga náttúrulega óvini og fjölga sér
því hratt.
Éta allt sem að kjafti kemur
Ekki er nóg með að mýsnar éti fræ
þeirra plantna sem á eyjunni eru og
dragi þannig úr vexti heldur grafa
þær holur og taka yfir holur varp-
fugla og hrekja fuglana á brott.
Sprenging í fjölda
Talið er að mýs hafi borist til eyjanna
á seinni hluta nítjándu aldar með
sjómönnum sem heimsóttu þær til
að safna eggjum. Fjölgun músanna
var takmörkuð þar til fyrir nokkrum
árum þegar spenging varð í fjölda
þeirra og nú er svo komið að þær eru
um allt eins og plága. Fjöldi músa
á eyjunni er sagður vera sá mesti á
hektara í heiminum og varla hægt að
þverfóta fyrir þeim og stundum sagt
að yfirborð eyjanna líti út fyrir að
vera á hreyfingu vegna fjölda þeirra.
Gildrur eða eitur
Að sögn þeirra sem láta sér málið
varða verður að gera eitthvað rót-
tækt til að draga úr fjölda músanna
áður en þær valda enn meiri skaða á
lífríki eyjanna. Langt er frá að allir
séu sammála um til hvaða aðgerða
eigi að grípa. Fljótlegasta og ör-
uggasta leiðin er sögð að eitra fyrir
músunum en aðrir segja að eitrunin
muni hafa ófyrirsjáanleg áhrif á
annað dýralíf á eyjunum og í sjónum
í kringum þær. Andstæðingar eitr-
unar segja að betra sé að leggja fyrir
mýsnar gildrur. /VH
Sagt er að yfirborð eyjanna líti stundum út fyrir að vera á hreyfingu vegna
fjölda músa.