Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 37
í svona ræktun eins og gert er á
Íslandi?
„Það gerist hvergi annars staðar
í heiminum. Yfirleitt er bændum í
öðrum löndum ekki boðið upp á að
nota annað en margendurnýtt vatn
frá hreinsistöðvum. Það er vatn sem
við myndum í besta falli telja annars
flokks. Það er alveg einstakt að geta
drukkið sama vatnið og við erum að
vökva plönturnar með og notum til
að þrífa bílana okkar. Svona þekkist
hvergi annars staðar í heiminum og
er gríðarlega mikils virði.“
Íslensku gúrkurnar standa
vel gagnvart innflutningi
– Hvernig standið þið þá í samkeppni
við innflutning?
„Það er nánast enginn innflutn-
ingur á gúrkum þrátt fyrir að engir
tollar séu á þeim og tómötum. Þegar
einhverjar sveiflur eru í íslensku
framleiðslunni hafa menn verið að
reyna að flytja inn gúrkur en maður
sér að þær seljast illa og eru dýrar.“
Framleiðsla á íslenskum
tómötum hefur gefið eftir
„Að öllum líkindum hefur íslenska
tómataframleiðslan eitthvað
minnkað og því hefur meira verið
flutt inn,“ segir Reynir. Samkvæmt
tölum Hagstofu Íslands hefur
tómata framleiðslan hér á landi
verið að dragast saman ár frá ári,
eða úr 1.652 tonnum árið 2010 í
1.213 tonn árið 2018. Á sama tíma
hefur innflutningur aukist úr 583
tonnum í 1.549 tonn.
„Það dugar að það komi lélegt
sumar hér til að öll framleiðsla
dragist saman. Í fyrra bilaði
kolsýruverksmiðjan auk þess sem
það var mjög skýjað og dimmt
yfir. Því minnkaði framleiðslan.
Nú er búið að vera gott sumar og
framleiðslan því góð.
Við erum að framleiða hér um eitt
til eitt og hálft tonn af tómötum á viku.
Það er rólegra yfir þeirri framleiðslu
en í gúrkunum og aðeins verið að
tína þrisvar í viku og frí um helgar.
Líftími plantnanna í framleiðslu
er líka lengri en í gúrkunum. Við
erum að skipta tómataplöntunum út
á sex mánaða fresti. Það er því mun
minni vinna við tómataræktina en
gúrkuframleiðsluna.“
Engin eiturefnanotkun
við framleiðsluna
Reynir segir að mikið sé lagt upp úr
heilnæmi grænmetisins sem ræktað er
í Reykási. Því séu eingöngu notaðar
lífrænar varnir með skordýrum til að
eyða óværu sem upp getur komið.
„Við höfum ekki notað eitur af
neinu tagi í þessari stöð síðan 2007.
Við notum lífrænar varnir, og síðan
klór, vetnisperoxíð (sem notað er
til sótthreinsunar) og sápur ef þess
þarf. Við getum einfaldlega ekki
notað eitur þegar við erum með
lífrænar varnir, því það drepur þær
líka. Ef menn nota eitur til að losna
við óværu, þá eru menn komnir í
vítahring eiturefnanotkunar. Bændur
velja því hvort þeir noti lífrænar
varnir eða eitur, þar er ekki til nein
málamiðlun. Eitur er bara liðin tíð í
svona framleiðslu.
Lífrænar varnir er stór liður í
að skapa íslenskri ylrækt sérstöðu.
Þótt menn noti líka lífrænar varnir í
útlöndum er það miklu erfiðara, því
stöðugt koma nýjar og nýjar plágur
sem ekki er hægt að fá lífrænar varnir
við. Við erum laus við slíkt hér.
Ef við tölum um eiturnotkun þá
getum við svo sem valið hér á landi
um fimm tegundir eiturefna á meðan
kollegar okkar í Evrópu geta valið
úr um 30 tegundum efna. Þeir geta
líka keyrt milli Þýskalands, Hollands,
Belgíu, Frakklands og Spánar og
alltaf sótt sér eiturefni þótt þau séu
bönnuð í heimalandinu. Þetta eru
staðreyndir sem menn vita af og
ekkert er gert í að stoppa.
Auk þess þá vita neytendur í
Evrópu sjaldnast hvaðan grænmetið
eða aðrar landbúnaðarafurðir eins
og kjúklingar koma. Kjúklingar í
dönskum umbúðum geta allt eins
verið upprunnir í Asíu,“ segir Reynir.
Segir Evrópusambandinu
stjórnað af stórfyrirtækjum
Reynir liggur svo sem ekki
á skoðunum sínum gagnvart
Evrópu sambandinu og bendir á að
grunnurinn að stofnun þess hafi
verið viðskiptabandalag í verslun
með stál. Að grunni til byggist
Evrópusambandið enn á sömu
lögmálum sem snúast fyrst og síðast
um að tryggja frelsi athafnamanna
til að hafa viðskipti án nokkurra
hindrana.
„Evrópusambandinu er stjórnað af
stórfyrirtækjum. Ríkum pótintátum
þar sem gróðahyggjumenn eru oft
og tíðum við stjórnvölinn. Þess
vegna fá menn að vaða uppi og
selja krabbameinsvaldandi efni
eins og Roundup. Þetta vita allir,
en Evrópusambandið lokar bara
augunum þar sem stóru fyrirtækin
greiða þeim bara nógu mikinn pening
svo enginn segi neitt.
Við höfum verið að selja hér í
gegnum fyrirtæki okkar NPK áburð
sem heitir Potassium Phosphite sem
nú er búið að taka af markaðnum
í ESB-ríkjunum. Ástæðan er að
Potassium Phosphite hefur þá
aukaeiginleika að geta drepið
sveppasýkingar í plöntum. Þá komu
stóru efnafyrirtækin sem eru að
framleiða sveppaeitur og komu því
þannig fyrir að settar voru reglur
hjá ESB um að banna notkun á
Potassium Phosphite. Þannig fengu
þeir frið til að selja sitt eiturefni til
grænmetisræktarinnar í Evrópu.
Potassium Phosphite er hins
vegar þannig efni að því má úða
vatnsþynntu á plöntur án þess að
það valdi skaða hjá fólki eða náttúru.
Með því að banna þetta er verið
að nota eiturefni sem hefur mikil
áhrif á lífríkið í kringum sig. Nú er
mikið rætt um að skordýrum fari ört
fækkandi í Evrópu og víðar, halda
menn að það sé einhver tilviljun? –
Það er ekkert annað en eitur sem er
að drepa þessi dýr.
Menn verða því að finna aðrar
lausnir en að nota eiturefni í
matvælaframleiðslu. Það eru þegar
á boðstólum margvíslegar lausnir
sem hægt er að nota í ræktun sem
hafa engin eituráhrif. Það hentar bara
ekki stóru eiturefnaframleiðendunum
Ræktun á tómötum á Íslandi hefur verið að gefa eftir á síðustu árum, allavega hvað magn snertir. Framleiðsla á
smátómötum hefur þó verið að aukast verulega en dugar skammt til að halda uppi markaðshlutdeildinni.
– Framhald á næstu síðu
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams kerrur
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Ifor Willams Kerrur
í öllum stærðum og útfærslum