Bændablaðið - 05.12.2019, Page 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 41
þykka húð sem stundum lítur út eins
og hún passi illa og sé að minnsta
kosti tveimur númerum of stór.
Heitið hvítur nashyrningur byggir
á þýðingarvillu. Hollendingar, sem
fyrstir settust að í Suður-Afríku,
gáfu hvítum nashyrningum nafn
eftir lögum kjaftsins og kölluðu þá
wijd eða víðkjafta. Bretar misskildu
orðið wijd sem white og gáfu nas-
hyrningunum heitin hvítir og svart-
ir nashyrningar en í raun eru báðar
tegundir gráar að lit.
Allar tegundir nashyrninga sem
eftir eru í heiminum í dag eru í hættu
á að verða útrýmt og verði ekkert
gert til að stöðva ólöglegar veiðar
á þeim og ólöglega verslun með
nashyrningahorn fljótlega er talið
að dýrin deyi út á næstu 30 árum.
Reyndar er ástandið svo slæmt að
fólk er beðið um að birta ekki mynd-
ir af nashyrningum á samfélagsmiðl-
um sem teknar eru á verndarsvæðun-
um þar sem vitað er að veiðiþjófar
notfæra sér myndirnar til að staðsetja
dýrin.
Flóðhestar eru
stuttfættir og tunnulaga
Síðar í annarri safaríferð sáust
flóðhestar vel á landi. Þrátt fyrir að
flóðhestar séu með stærri landdýrum
virka þeir fremur litlir. Þeir eru
tunnulaga á stuttum fótum en með
stóran haus og gríðarstóran kjaft sem
þeir geta hæglega drepið krókódíla
með. Í dag finnast flóðhestar í Suður-
Afríku einungis innan verndarsvæða
þar sem þeir eyða stórum hluta lífs-
ins í vatni og ganga helst á land til að
bíta gras á nóttunni. Þeir eiga líka til
að bíta á daginn sé fæða takmörkuð.
Fullvaxinn karlkyns flóðhestur
getur verið tvö tonn að þyngd og
kvendýrið 1,7 tonn en yfirleitt eru
dýrin minni og þeir verja búsvæði
sitt af hörku. Flóðhestar geta hlaupið
á um 30 kílómetra hraða á klukku-
stund, verið á kafi í sex mínútur og
lifað í um það bil 40 ár.
Blettatígur á veiðum
Næst í röð dýra sem fyrir augun bar
var blettatígurslæða með fimm um
það bil hálfs árs gamla kettlinga og
hjörð af antilópum, sebrahestum og
gnýjum.
Blettatígurslæðan var mjóslegin
og að sögn landvarðarins nánast
alla daga í leit að bráð þar sem
kettlingarnir eru frekir til fæðunn-
ar og ekki enn farnir að taka þátt í
veiðunum. Helsta fæða blettatígurs
eru stökkhafrar og minni antilópur
sem þeir hlaupa uppi á miklum hraða.
Grasbítar eins og antilópur, gnýr
og sebrahestar eiga það til að halda
hópinn og er talið að dýrin geri það
til að auka öryggið því betur sjá augu
en auga og betur heyra eyru en eyra
ef rándýr nálgast í veiðihug.
Fílar á ferð
Afrískir fílar eru stór dýr og getur
fullvaxinn tarfur vegið vel á sjötta
tonn og verið fjórir metrar á herða-
kamb. Þrátt fyrir að við höfum séð
fíla á öllum verndarsvæðunum sem
við heimsóttum eru fílar í Afríku
sagðir vera í útrýmingarhættu þrátt
fyrir að fjöldi þeirra fari vaxandi.
Líftími fíla getur verið um 70 ár,
eða svo lengi sem jaxlar þeirra halda
áfram að endurnýjast og þeir geti étið.
Meðganga fíla er 22 mánuðir og
við fæðingu eru kálfar um 100 kíló
að þyngd og eftir að þeir komast á
fætur lifa þeir aðallega á mjólk eða
þar til þeir hafa náð stjórn á rananum.
Fílar eru félagslyndir og móðirin og
hjörðin gætir unga vel fyrstu árin.
Júgur kvendýranna eru á milli fram-
fótanna en ekki afturfótanna eins og
hjá flestum ferfættum spendýrum.
Fílar eru grasbítar sem krafsa
upp rætur þegar yfirborðsgróður er
af skornum skammti og þeir geta
hæglega velt háum trjám um koll
til að komast að laufi sem vex ofan
við þá hæð sem rani þeirra nær. Fílar
ganga iðulega langar leiðir milli beit-
arsvæða og fara oftast sömu leiðina
fram og til baka árum saman og
fílagötur því algengar í gegnum þétt
gróðurlendi. Ungir tarfar yfirgefa eða
eru reknir úr hjörðinni og ráfa oft
einir eða nokkrir saman alla ævi eða
þar til þeir ná yfirráðum yfir eigin
hjörð með því að skora ríkjandi karl-
dýr á hólm.
Fáir gera sér líklega grein fyrir því
hversu stórir fílstarfar geta verið og
sjálfum þótti mér nóg um þegar Land
Roverinn vakti athygli tarfs við eitt
vatnsbólið og hann ákvað að skoða
farþegana betur. Satt besta að segja
finnur maður fyrir styrk fullorðins
fílstarfs sem vitað er að hefur drep-
ið fullvaxinn buffalóa og stálpaðan
flóðhest þegar hann kemur að þér og
horfir á þig úr hálfs metra fjarlægð.
Buffalóar, sebrahestar og kúdú
Við fyrstu sýn virðast buffalóar ekki
hættuleg dýr en þegar nær dregur sést
vel hversu stór og sterkleg dýrin eru.
Kvendýrin eru milli 550 til 700 kíló
að þyngd en tarfarnir 650 til 700 kíló.
Bæði kynin eru með stór, sterk og
útstæð horn sem þau verja sig með.
Yfirleitt eru tíu dýr saman í hóp þar
sem eitt karldýr ræður ríkjum en
einnig eiga ung karldýr það til að
halda hópinn.
Sebrahestar eru algengir í Suður-
Afríku og kjósa opin svæði þar sem
skammt er milli vatnsbóla. Þeir eru
hjarðdýr sem halda sig í hópum með
ríkjandi fola, nokkrum merum og
nokkrum ungum folum. Einnig eru
til stóð sem innihalda eingöngu unga
fola. Þeir sem þekkja til segjast geta
þekkt sebrahesta í sundur á röndum
þar sem engir tveir sebrahestar hafa
sams konar rendur. Hægt er að temja
unga sebrahesta til reiða en þeir eru
sagðir hastir.
Kúdú er með stærstu antilópu-
tegundum og finnast þær víða í
Suður-Afríku, bæði innan og utan
verndarsvæða, þar sem þau hoppa
auðveldlega yfir þriggja metra
girðingar. Karldýrin hafa stór og
voldug horn og eru talsvert stærri
en kvendýrin. Kjötið af dýrunum er
afskaplega bragðgott.
Strútar geta drepið
ljón með einu sparki
Fullorðnir hanar strúta eru gráir að
lit en hænur og unghanar brúnir eða
grábrúnleitir. Strútar geta náð góðri
tveggja metra hæð enda hálsinn á
þeim langur. Þeir eru 100 til 160 kíló
að þyngd og geta orðið 30 til 40 ára
gamlir í náttúrulegum heimkynnum
sínum. Strútar eru langfættir og fót-
sterkir og með tvær klær á hvorum
fæti sem líkjast klaufum. Þeir geta
hlaupið á 70 kílómetra hraða á
klukkustund og haldið þeim hraða
í allt að 30 mínútur og taka þrjá til
fimm metra í hverju skrefi.
Sé strútum ógnað geta þeir spark-
að hraustlega frá sér og hæglega
drepið ljón sem á þá ráðast með
einu sparki. Hausinn er lítill en augun
stór og þeir sjá og heyra vel. Strútar
eru tannlausir og gleypa steina sem
hjálpa til við meltingu fæðunnar. Í
maga strúta hafa fundist allt að kíló af
meltingarsteinum. Yfirleitt lifa strútar
í hópum, fimm til fimmtíu saman,
sem eitt karldýr og eitt kvendýr fara
fyrir.
Strútakjöt er rautt á litinn, fitulaust
og afskaplega ljúffengt.
Konungur dýranna
Á Schotia-verndarsvæðinu sáum
við nokkrum sinnum ljón, bæði að
nóttu sem degi. Í næturferð sáum
við karldýr sem voru að gæða sér á
ótilgreindri antilóputegund og ótrú-
legt að sjá dýrin og heyra hljóðið
þegar þau rifu af því framfótinn með
kjaftinum og alblóðugu andlitinu og
rumdu af vellíðan.
Á sama svæði var ljónynja sem
nýlega var búin að fæða tvo unga og
sagt að hún væri ljónhungruð vegna
þess. Þegar við vorum á svæðinu fót-
brotnaði kúdú-antilópa á verndar-
svæðinu og þar sem slík brot gróa
ekki var dýrið fellt og ákveðið að
gefa ljónynjunni skrokkinn. Eftir
nokkurra mínútna taugatrekkjandi
bið í nokkurra metra fjarlægð frá
skrokknum sáum við svo stóra
og sterklega ljónynjuna koma á
hægum en ákveðnum hlaupum í
átt að skrokknum. Því næst læsti
ljónynjan sterklegum tönnunum um
háls dýrsins og dró það með sér í
runnaþyrpinguna þar sem hún faldi
ungana.
Ljón eru gráðug letidýr sem eyða
stórum hluta sólarhringsins sofandi
og fara helst ekki á stjá nema í
fæðuleit. Þau eru stærstu rándýrin
sem finnast í Afríku og ólíkt flestum
öðrum kattardýrum eru þau félags-
lynd og í hópum sem inniheldur eitt
til fjögur karldýr og hátt í tuttugu
kvendýr. Eftir að karldýr hafa náð
tveggja til tveggja og hálfs árs aldri
hrekja ríkjandi karldýr þau úr hópn-
um og eiga þau ekki afturkvæmt
nema að skora ríkjandi karldýr á
hólm og sigra í þeim slag.
Gíraffar eru ævintýraverur
Af öllum þeim dýrum sem ég sá
í ferðinni voru það gíraffarnir
sem vöktu mesta athygli mína,
enda ævintýraleg dýr í útliti með
langa fætur, langan háls og lítið
höfuð. Gíraffar eru satt best að
segja ótrúlega fallegar skepnur og
hreyfingar þeirra líkjast einna helst
tígulegum dansi frekar en gangi
dýra í fæðuleit. Karldýrin geta
verið fimm metrar á herðakamb
og þá er hálsinn ótalinn og 1,4 tonn
að þyngd. Karldýrin eru yfirleitt
dekkri en kvendýrin.
Gíraffar kjósa opnar gresjur með
háum runnum og trjám í bland. Tunga
og gómur dýranna eru með þykka
húð og eiga þau auðvelt með að bíta
laufin af þyrnastórum akasíutrjám.
Gíraffar halda sig í hjörðum með
allt að tuttugu kvendýrum og einu
ríkjandi karldýri og halda hjarðirnar
sig oft í nágrenni við impala-hirti og
sebrahesta.
Strútakjöt er rautt á litinn, fitulaust og afskaplega ljúffengt.
Við fyrstu sýn virðast buffalóar ekki hættuleg dýr en þegar nær dregur sést
vel hversu stór og sterkleg dýrin eru.
Fullvaxinn karlkyns flóðhestur getur
verið tvö tonn að þyngd.
Landslagið og gróðurinn bar þess víða merki að stór svæði í Suður-Afríku
hafa mátt þola þurrka undanfarin fimm ár.
Krókódíll.
Gíraffar eru ótrúlega fallegar skepnur og hreyfingar þeirra líkjast einna helst
tígulegum dansi frekar en gangi dýra í fæðuleit.
Sebrahestar eru hjarðdýr sem halda sig í hópum með ríkjandi fola, nokkrum
merum og nokkrum ungum folum.