Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 41

Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 41 þykka húð sem stundum lítur út eins og hún passi illa og sé að minnsta kosti tveimur númerum of stór. Heitið hvítur nashyrningur byggir á þýðingarvillu. Hollendingar, sem fyrstir settust að í Suður-Afríku, gáfu hvítum nashyrningum nafn eftir lögum kjaftsins og kölluðu þá wijd eða víðkjafta. Bretar misskildu orðið wijd sem white og gáfu nas- hyrningunum heitin hvítir og svart- ir nashyrningar en í raun eru báðar tegundir gráar að lit. Allar tegundir nashyrninga sem eftir eru í heiminum í dag eru í hættu á að verða útrýmt og verði ekkert gert til að stöðva ólöglegar veiðar á þeim og ólöglega verslun með nashyrningahorn fljótlega er talið að dýrin deyi út á næstu 30 árum. Reyndar er ástandið svo slæmt að fólk er beðið um að birta ekki mynd- ir af nashyrningum á samfélagsmiðl- um sem teknar eru á verndarsvæðun- um þar sem vitað er að veiðiþjófar notfæra sér myndirnar til að staðsetja dýrin. Flóðhestar eru stuttfættir og tunnulaga Síðar í annarri safaríferð sáust flóðhestar vel á landi. Þrátt fyrir að flóðhestar séu með stærri landdýrum virka þeir fremur litlir. Þeir eru tunnulaga á stuttum fótum en með stóran haus og gríðarstóran kjaft sem þeir geta hæglega drepið krókódíla með. Í dag finnast flóðhestar í Suður- Afríku einungis innan verndarsvæða þar sem þeir eyða stórum hluta lífs- ins í vatni og ganga helst á land til að bíta gras á nóttunni. Þeir eiga líka til að bíta á daginn sé fæða takmörkuð. Fullvaxinn karlkyns flóðhestur getur verið tvö tonn að þyngd og kvendýrið 1,7 tonn en yfirleitt eru dýrin minni og þeir verja búsvæði sitt af hörku. Flóðhestar geta hlaupið á um 30 kílómetra hraða á klukku- stund, verið á kafi í sex mínútur og lifað í um það bil 40 ár. Blettatígur á veiðum Næst í röð dýra sem fyrir augun bar var blettatígurslæða með fimm um það bil hálfs árs gamla kettlinga og hjörð af antilópum, sebrahestum og gnýjum. Blettatígurslæðan var mjóslegin og að sögn landvarðarins nánast alla daga í leit að bráð þar sem kettlingarnir eru frekir til fæðunn- ar og ekki enn farnir að taka þátt í veiðunum. Helsta fæða blettatígurs eru stökkhafrar og minni antilópur sem þeir hlaupa uppi á miklum hraða. Grasbítar eins og antilópur, gnýr og sebrahestar eiga það til að halda hópinn og er talið að dýrin geri það til að auka öryggið því betur sjá augu en auga og betur heyra eyru en eyra ef rándýr nálgast í veiðihug. Fílar á ferð Afrískir fílar eru stór dýr og getur fullvaxinn tarfur vegið vel á sjötta tonn og verið fjórir metrar á herða- kamb. Þrátt fyrir að við höfum séð fíla á öllum verndarsvæðunum sem við heimsóttum eru fílar í Afríku sagðir vera í útrýmingarhættu þrátt fyrir að fjöldi þeirra fari vaxandi. Líftími fíla getur verið um 70 ár, eða svo lengi sem jaxlar þeirra halda áfram að endurnýjast og þeir geti étið. Meðganga fíla er 22 mánuðir og við fæðingu eru kálfar um 100 kíló að þyngd og eftir að þeir komast á fætur lifa þeir aðallega á mjólk eða þar til þeir hafa náð stjórn á rananum. Fílar eru félagslyndir og móðirin og hjörðin gætir unga vel fyrstu árin. Júgur kvendýranna eru á milli fram- fótanna en ekki afturfótanna eins og hjá flestum ferfættum spendýrum. Fílar eru grasbítar sem krafsa upp rætur þegar yfirborðsgróður er af skornum skammti og þeir geta hæglega velt háum trjám um koll til að komast að laufi sem vex ofan við þá hæð sem rani þeirra nær. Fílar ganga iðulega langar leiðir milli beit- arsvæða og fara oftast sömu leiðina fram og til baka árum saman og fílagötur því algengar í gegnum þétt gróðurlendi. Ungir tarfar yfirgefa eða eru reknir úr hjörðinni og ráfa oft einir eða nokkrir saman alla ævi eða þar til þeir ná yfirráðum yfir eigin hjörð með því að skora ríkjandi karl- dýr á hólm. Fáir gera sér líklega grein fyrir því hversu stórir fílstarfar geta verið og sjálfum þótti mér nóg um þegar Land Roverinn vakti athygli tarfs við eitt vatnsbólið og hann ákvað að skoða farþegana betur. Satt besta að segja finnur maður fyrir styrk fullorðins fílstarfs sem vitað er að hefur drep- ið fullvaxinn buffalóa og stálpaðan flóðhest þegar hann kemur að þér og horfir á þig úr hálfs metra fjarlægð. Buffalóar, sebrahestar og kúdú Við fyrstu sýn virðast buffalóar ekki hættuleg dýr en þegar nær dregur sést vel hversu stór og sterkleg dýrin eru. Kvendýrin eru milli 550 til 700 kíló að þyngd en tarfarnir 650 til 700 kíló. Bæði kynin eru með stór, sterk og útstæð horn sem þau verja sig með. Yfirleitt eru tíu dýr saman í hóp þar sem eitt karldýr ræður ríkjum en einnig eiga ung karldýr það til að halda hópinn. Sebrahestar eru algengir í Suður- Afríku og kjósa opin svæði þar sem skammt er milli vatnsbóla. Þeir eru hjarðdýr sem halda sig í hópum með ríkjandi fola, nokkrum merum og nokkrum ungum folum. Einnig eru til stóð sem innihalda eingöngu unga fola. Þeir sem þekkja til segjast geta þekkt sebrahesta í sundur á röndum þar sem engir tveir sebrahestar hafa sams konar rendur. Hægt er að temja unga sebrahesta til reiða en þeir eru sagðir hastir. Kúdú er með stærstu antilópu- tegundum og finnast þær víða í Suður-Afríku, bæði innan og utan verndarsvæða, þar sem þau hoppa auðveldlega yfir þriggja metra girðingar. Karldýrin hafa stór og voldug horn og eru talsvert stærri en kvendýrin. Kjötið af dýrunum er afskaplega bragðgott. Strútar geta drepið ljón með einu sparki Fullorðnir hanar strúta eru gráir að lit en hænur og unghanar brúnir eða grábrúnleitir. Strútar geta náð góðri tveggja metra hæð enda hálsinn á þeim langur. Þeir eru 100 til 160 kíló að þyngd og geta orðið 30 til 40 ára gamlir í náttúrulegum heimkynnum sínum. Strútar eru langfættir og fót- sterkir og með tvær klær á hvorum fæti sem líkjast klaufum. Þeir geta hlaupið á 70 kílómetra hraða á klukkustund og haldið þeim hraða í allt að 30 mínútur og taka þrjá til fimm metra í hverju skrefi. Sé strútum ógnað geta þeir spark- að hraustlega frá sér og hæglega drepið ljón sem á þá ráðast með einu sparki. Hausinn er lítill en augun stór og þeir sjá og heyra vel. Strútar eru tannlausir og gleypa steina sem hjálpa til við meltingu fæðunnar. Í maga strúta hafa fundist allt að kíló af meltingarsteinum. Yfirleitt lifa strútar í hópum, fimm til fimmtíu saman, sem eitt karldýr og eitt kvendýr fara fyrir. Strútakjöt er rautt á litinn, fitulaust og afskaplega ljúffengt. Konungur dýranna Á Schotia-verndarsvæðinu sáum við nokkrum sinnum ljón, bæði að nóttu sem degi. Í næturferð sáum við karldýr sem voru að gæða sér á ótilgreindri antilóputegund og ótrú- legt að sjá dýrin og heyra hljóðið þegar þau rifu af því framfótinn með kjaftinum og alblóðugu andlitinu og rumdu af vellíðan. Á sama svæði var ljónynja sem nýlega var búin að fæða tvo unga og sagt að hún væri ljónhungruð vegna þess. Þegar við vorum á svæðinu fót- brotnaði kúdú-antilópa á verndar- svæðinu og þar sem slík brot gróa ekki var dýrið fellt og ákveðið að gefa ljónynjunni skrokkinn. Eftir nokkurra mínútna taugatrekkjandi bið í nokkurra metra fjarlægð frá skrokknum sáum við svo stóra og sterklega ljónynjuna koma á hægum en ákveðnum hlaupum í átt að skrokknum. Því næst læsti ljónynjan sterklegum tönnunum um háls dýrsins og dró það með sér í runnaþyrpinguna þar sem hún faldi ungana. Ljón eru gráðug letidýr sem eyða stórum hluta sólarhringsins sofandi og fara helst ekki á stjá nema í fæðuleit. Þau eru stærstu rándýrin sem finnast í Afríku og ólíkt flestum öðrum kattardýrum eru þau félags- lynd og í hópum sem inniheldur eitt til fjögur karldýr og hátt í tuttugu kvendýr. Eftir að karldýr hafa náð tveggja til tveggja og hálfs árs aldri hrekja ríkjandi karldýr þau úr hópn- um og eiga þau ekki afturkvæmt nema að skora ríkjandi karldýr á hólm og sigra í þeim slag. Gíraffar eru ævintýraverur Af öllum þeim dýrum sem ég sá í ferðinni voru það gíraffarnir sem vöktu mesta athygli mína, enda ævintýraleg dýr í útliti með langa fætur, langan háls og lítið höfuð. Gíraffar eru satt best að segja ótrúlega fallegar skepnur og hreyfingar þeirra líkjast einna helst tígulegum dansi frekar en gangi dýra í fæðuleit. Karldýrin geta verið fimm metrar á herðakamb og þá er hálsinn ótalinn og 1,4 tonn að þyngd. Karldýrin eru yfirleitt dekkri en kvendýrin. Gíraffar kjósa opnar gresjur með háum runnum og trjám í bland. Tunga og gómur dýranna eru með þykka húð og eiga þau auðvelt með að bíta laufin af þyrnastórum akasíutrjám. Gíraffar halda sig í hjörðum með allt að tuttugu kvendýrum og einu ríkjandi karldýri og halda hjarðirnar sig oft í nágrenni við impala-hirti og sebrahesta. Strútakjöt er rautt á litinn, fitulaust og afskaplega ljúffengt. Við fyrstu sýn virðast buffalóar ekki hættuleg dýr en þegar nær dregur sést vel hversu stór og sterkleg dýrin eru. Fullvaxinn karlkyns flóðhestur getur verið tvö tonn að þyngd. Landslagið og gróðurinn bar þess víða merki að stór svæði í Suður-Afríku hafa mátt þola þurrka undanfarin fimm ár. Krókódíll. Gíraffar eru ótrúlega fallegar skepnur og hreyfingar þeirra líkjast einna helst tígulegum dansi frekar en gangi dýra í fæðuleit. Sebrahestar eru hjarðdýr sem halda sig í hópum með ríkjandi fola, nokkrum merum og nokkrum ungum folum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.