Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 43

Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 43 hefur nýst ykkur vel er það ekki og þið eruð að byggja við höllina? „Já, Sleipnishöllin hefur nýst það vel að við höfum getað selt aðgang að henni til námskeiðahalds og kennslu á hestabraut FSU, það hefur tryggt rekstraröryggi þannig að allir félagsmenn hafa fengið afnot af höllinni innifalið í félagsgjaldi þegar hún er ekki í útleigu. Það eru mikil fríðindi fyrir félagsmenn og því ættu allir hestamenn að vera í félaginu til að styrkja starfsemi félagsins og fá mikið í staðinn,“ segir Magnús. – Barna- og ungmennastarf innan Sleipnis er mjög öflugt, hvað er helst verið að gera á þeim vettvangi? „Það er rétt, æskulýðsstarf félags- ins reis upp úr því að vera nánast ekki neitt áður en höllin komst í gagnið 2010 í að fá Æskulýðsbikar LH 2012 fyrir mjög aukið og þrótt- mikið starf í þágu barna sem hafa hestamennsku að áhugamáli. Einnig hefur verið hægt að teyma undir börnum á hátíðisdögum svo sem 1. maí, 17. júní og þegar meira er um að vera.“ – Hvað með reiðleiðir í kringum Selfoss og næsta nágrenni, hvernig eru þær og eru hestamenn ánægðir með þær? „Reiðleiðir eru kannski það sem okkur helst skortir og hefur skort með aukinni umferð og lagningu bundins slitlags. Það er stórhættu- legt að vera á ferð með vegunum og síðan er ekki gott að komast um einkalönd þar sem hætta er á að hlið séu skilin eftir opin. Reiðveganefnd félagsins hefur unnið frábært starf að nýta þá fjármuni sem hún hefur haft til að opna nýjar leiðir utan umferðar og náð samkomulagi við landeigend- ur um að fá ræmur með jarðamörk- um. Gott dæmi um slíka framkvæmd er leiðin frá Gaulverjabæjarvegi að Villingaholtsvegi en þar hefur okkur tekist að opna fyrir ríðandi umferð með landamörkum og góð- vild landeigenda. Þar hefur Einar Hermundsson farið fremstur í flokki með reiðveganefnd sinni við að ná samningum um aukið landrými hestamönnum til heilla. Einnig höfum við náð að auka við reiðleið frá hverfinu í landi Laugardæla sem Árborg eignaðist fyrir nokkrum árum.“ Hefur haft hestamennsku til hliðar á eftir fjölskyldu og vinnu – Þú sjálfur, ert þú með mikið af hestum og ríður þú mikið út og þín fjölskylda? „Já, ég hef alltaf haft hesta- mennsku svona til hliðar á eftir fjöl- skyldu og vinnu, hef því ekki haft mikinn tíma í hestaferðir né ræktun en ég er þó það heppinn að sonur okkar er með mér í þessu sporti og síðan á ég mikið af vinum og kunn- ingjum sem ég hitti og á samvistir með. Við feðgar erum með þetta á bilinu 7–9 hross á öllum stigum en flest þó reiðhross. Hestamennskan gefur manni tilgang að sinna öðru en vinnu og skapa sér skemmtun í góðra vina hópi. Tala nú ekki um þegar maður og hestur ná vel saman með góðu samspili í góðum útreiðartúr.“ – Hvernig myndir þú lýsa draumahestinum þínum, hvernig á hann að vera? Draumahesturinn er fjörmikill og rúmur alhliða gæðingur. Fallegur með góðan háls og fallega fram- göngu. Um langa tíð hefur mig lang- að í fallegan glófextan og blesóttan gæðing en það hefur ekki enn orðið, spurning hvað verður í framtíðinni,“ segir Magnús og brosir út í annað. – Hvað með fjármál Sleipnis, hvernig gengur ykkur þar, það hlýt- ur að kosta töluvert að reka svona öflugt hestamannafélag. Njótið þið skilnings og fáið þið góðan stuðning víða að, eða? „Fjármál Sleipnis hafa tekið miklum framförum með auknu starfi og auknum tekjumöguleikum, með tilliti til betra vallarsvæðis og Sleipnishallarinnar þá getum við sótt um styrki og selt auglýsingar. Nú er svo komið að félagið og Sleipnishöllin ehf. eru skuldlaus og við eigum fyrir starti á nýrri viðbyggingu við höllina en það er, eins og áður hefur komið fram, öflugum sjálfboðaliðum félags- ins við móta- og námskeiðahald að þakka. Við fáum einnig árlega styrk frá Sveitarfélaginu Árborg og Flóahrepp fyrir æskulýðsstarfi félagsins.“ – Hvernig skýrir þú þennan mikla áhuga á hestamennsku í landinu, hvort sem það eru atvinnumenn eða áhugafólk, af hverju þessi gríðarlegi áhugi á íslenska hestinum? „Hestamennskan er skemmtilegt sport þar sem kraftmikið fólk kemur saman og leiðir saman hesta sína. Einnig skiptir máli að hestamennsku fylgir mikil útivera og að njóta íslenskrar náttúru. Hestamennskan er okkur flestum í blóð borin og viljum við halda í hefðir og sögu hestsins.“ – Hvernig hefur Sleipnir fagnað 90 ára afmælinu, hvað hafið þið helst verið að gera og á eftir að gera eitt- hvað meira? „Sleipnir hélt afmælisárshátíð í Hvíta húsinu á Selfossi 19. október þar sem félagar og keppnisknap- ar voru verðlaunaðir. Á hátíðinni kynnti ég að við værum að hefja við- byggingu á Sleipnishöllinni. Einnig kynnti ég að Sveitarfélagið Árborg væri að stækka svæði hestamanna á Selfossi með kaupum á landi næst hverfinu til suðurs sem nemur 6 hekt- urum, sem er lífsnauðsynlegt starfinu til að ramma betur inn starfsemina og gefur okkur andrými til að ná fram betra skipulagi og nýtingar til framtíðar.“ – Hvernig sérðu félagið þró- ast næstu árin og hver eru fram- tíðarplönin hjá ykkur í stjórninni? „Ég sé ekki fram á annað en að félagið haldi áfram að dafna og vaxa eins og það hefur gert undan- farin ár, það er síðan næstu stjórn- ar að ákveða næstu skref, en stóra verkefnið hlýtur að vera að koma viðbyggingunni upp og líta síðan til að byggja upp nýtt félagsheim- ili Sleipnis á Brávöllum,“ segir Magnús. – Er eitthvað að lokum sem þú vilt koma á framfæri? „Já, þar sem ég mun láta af störf- um á næsta aðalfundi eftir 11 ára stjórnarsetu, þar af 6 ár,sem formað- ur, vil ég þakka öllu samstarfsfólki mínu gott samstarf yfir þennan tíma. Ég hef séð á þessum árum að fólk gefur af sér til samfélagsins sem kemur til starfa fyrir félagsskap sem Sleipnir er. Það er gott og dugmikið fólk,“ segir Magnús Ólafsson, for- maður Sleipnis á Selfossi. /MHH Uppsetning og viðhald á kælikerfum, kæliklefum og frystiklefum. Sala og uppsetning á varmadælum. Freyjunesi 10, 603 Akureyri Sími 777 1800 ktak@ktak.is Erum einnig á Facebook Sigurvegarar í A-flokki gæðinga á móti á Brávöllum hjá Sleipni. Mynd / Sigvaldi R. Hafsteinsson Hestamenn eru sammála um að einn besti skeiðvöllur landsins sé á Brávöllum á Selfossi hjá Sleipni. Hér er Hinrik Bragason á fljúgandi skeiði á vellinum. Mikil einbeiting knapa og hests. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 DRIFSKÖFT OG DRIFSKAFTAEFNI Magnús er mjög stoltur af starfinu hjá Sleipni enda má hann vera það, krafturinn í félaginu hefur sjaldan verið eins mikill og á 90 ára afmælis- árinu. Hér er Sigursteinn Sumarliða- son Selfyssingur að fagna sigri á einu móti á Brávöllum. Mynd / MHH
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.