Bændablaðið - 05.12.2019, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201948
Agave, eða þyrnililja eins og
plantan kallast á íslensku, á sér
aldalanga nytjasögu í Mexíkó,
suðurríkjum Norður-Ameríku
og norðurríkjum Suður-Ameríku.
Úr plöntum ættkvíslarinnar eru
unnar trefjar til vefnaðar en hér
á landi er hún líklega þekktust
fyrir að vera plantan sem tekíla
er unnið úr.
Þrátt fyrir að ekki hafi fundist
marktækar tölur um heimsfram-
leiðslu eða ræktun á Agave er ljóst
að ræktunin er mest í Mexíkó og í
ríkjum Mið-Ameríku. Auk þess sem
talsvert er ræktað af plöntunni á þurr-
um svæðum í Afríku og Ástralíu.
Ættkvíslin Agave
Ekki eru allir á sama máli um fjölda
tegunda innan ættkvíslarinnar Agave
og hleypur fjöldinn frá 160 í 300.
Allar tegundirnar eru sígrænir ein-
kím blöðungar og eru upprunaleg
heimkynni þeirra á heitum og þurrum
svæðum í suðurríkjum Norður-
Ameríku, Mið-Ameríku og norð-
urhluta Suður-Ameríku. Einstaka
tegundir finnast á hitabeltissvæðum
í Suður-Ameríku. Agave-tegundir
flokkast sem þykkblöðungar þar sem
plönturnar safna í sig vatni til að nota
á þurrkatímum.
Blöðin eru yfirleitt stór og gróf-
tennt og eru tennur þeirra beittar, þau
eru sterk, safarík og trefjarík. Blöðin
eru með stuttan og nánast ósýni-
lega stilk og mynda saman rósettu.
Plönturnar eru með grunnt liggj-
andi rótarhnýði sem fremur gegna
því hlutverki að safna sem mestu af
vatni úr dögg og regni þegar rignir en
að leita að vatni neðanjarðar.
Langflestar plöntur innan ætt-
kvíslarinnar eru einblómstrandi
eða monocarpic sem þýðir að þær
blómstra einu sinni og síðan drepst
sú rósetta sem blómstraði. Rósettur
sumra tegunda geta þrátt fyrir það
lifað lengi þar sem það tekur þær
mörg ár og jafnvel marga áratugi að
blómstra og mynda fræ.
Sumar tegundir mynda margar
rósettur og getur plantan lifað
áfram þrátt fyrir að ein eða
fleiri rósettur blómstri og drep-
ist. Einnig eru til tegundir sem
mynda rósettur á blómstönglinum
sem festa rætur eftir að hann fell-
ur. Fáeinar undantekningar eru frá
þessu og því til agave-tegundir
sem blómstra og mynda fræ oftar
en einu sinni.
Við blómgun vex langur blóm-
stöngull, eða quiote, sem þýðir
mastur í Mexíkó, upp úr miðri
rósettunni. Stöngullinn sem getur
orðið rúmlega níu metra hár ber
mörg stutt rörlaga blóm á löng-
um blómstilk sem geta verið blá,
rauð, gul og hvít.
Tegundirnar eiga flestar það
sameiginlegt að vaxa hægt og
algengustu tegundir í ræktun eru
A. americana, A. tequilana og A.
attenuata.
Helstu tegundir í ræktun
A. attenuata er upprunnin í
Mexíkó en fremur sjaldgæf í
náttúrunni. Blöðin hálfur til
einn og hálfur metri að lengd
og ólík flestum agave-tegundum
þyrnalaus. Ljósgræn og stundum
gulleit. Blómstilkurinn 2,5 til
3 metra að hæð og sveigður
og plantan stundum kölluð
svanaháls-, ljóns- eða refahala-
agave. Blómin gulgræn.
A. tequilana eða blátt Agave
er aðallega notað til að framleiða
tekíla. Plantan er upprunnin í
Mexíkó og dafnar best í sendinni
jörð í yfir fimmtán hundruð metra
hæð. Blöðin gráblá og um tveir
metrar að lengd. Blómin gul á
allt að fimm metra háu mastri.
Leðurblökur sjá um frjóvgun
þeirra.
A. americana er algengasta
tegundin innan ættkvíslarinnar
og finnst hún villt víða í Mexíkó
og suðurríkjum Norður-Ameríku.
Kjörlendi hennar er sandlendi í
500 til 1300 metra hæð og í fullri
sól og vaxa plönturnar iðulega
margar saman á litlu svæði sem
þær taka yfir.
Blöðin blá- eða grágræn og stund-
um fölgul á jöðrunum, einn til einn
og hálfur metri að lengd og með
hvössum þyrnum. Ummál rósett-
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Agave er drottning eyðimerkurinnar
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Agave americana er algengasta tegund þyrnililja og finnst villt víða í Mexíkó og suðurríkjum Norður Ameríku.
Agave americana í blóma.
Blátt Agave tequilana á akri í Mexíkó.