Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 49 unnar 1,5 til 3 metrar og er algengt að blómstöngullinn sé átta til níu metrar á hæð. Blómin mörg saman í hnapp á blómstilknum, einn til átta millimetrar að lengd, gulgræn að lit. Aldinið oddmjór belgur sem inni- heldur hátt í tuttugu svört og D-laga fræ sem eru sex til átta millimetrar á lengd. Frjóvgun A. americana fer fram með skordýrum, fuglum og leðurblökum en fræin dreifast að mestu með vindi. Plantan gengur undir ýmsum nöfnum eins og til dæmis aldarjurt og amerískt aloa. Aldarjurtarheiti er dregið af þeirri trú að plantan lifi í að minnsta kosti eina öld en trúin er tilkomin að því hversu langan tíma tekur plöntuna að blómstra. Almennt lifa einstaka plöntur í 10 til 40 ár. Amerískt aloa er seinni tíma heiti og vísar til útlitslegra líkinda Ageve tegunda við Aloa tegundir sem finnast í Afríku. Útlitsleg lík- indi þeirra stafa af aðlögun að svip- uðum umhverfisaðstæðum í tveimur heimsálfum fremur en líffræðilegum skyldleika. A. americana var flutt til Suður- Evrópu um miðja sextándu öld og hefur aðlagast vel. Auk þess sem hún hefur gert sig heimakomna í náttúrunni víða við Miðjarðarhafið, í Afríku, á Indlandi, Kína, Taílandi og í Ástralíu þar sem hún hefur slæðst út frá ræktun. Undur náttúrunnar Árið 1843 segir bandaríski sagn- fræðingurinn William H. Prescott í bók sinn The History of the Conquest of Mexico að agave-plantan sé eitt af kraftaverkum náttúrunnar. Hann segir meðal annars í laus- legri þýðingu að pýramídalaga blóm- in teygja sig hátt upp úr kórónulaga laufkransinum sem þekja margar ekrur af flatlendi. Úr brotnum eða sárum á blöðunum vætlar þykkur vökvi sem vinna má úr pappír. Safi blaðanna er gerjaður og úr honum búinn til áfengur drykkur sem inn- fæddir eru mjög hrifnir af. Laufið er auk þess notað sem efniviður í ódýrt húsaskjól og úr þeim eru unnar trefj- ar í sterka kaðla og klæði. Nálar og títuprjónar eru búnir til úr þyrnum blaðanna. Úr rótunum, séu þær rétt eldaðar, má búa til hollan og góðan mat. Agave er sem sagt allt í senn fæða, drykkur, klæðnaður og efnivið- ur til að skrifa á. Með sanni má segja að náttúran hafi aldrei áður sett saman á einum stað eins mikið af þægindum og menningu manninum til gagns. Saga og goðsagnir Talið er að fyrstu agave-plönturnar eða forverar þeirra hafi komið fram á sjónarsviðið fyrir um 60 milljónum ára. Agave-plöntu var þó ekki lýst á prenti fyrr en árið 1577 af landvinn- ingamanninum Francisco Hernándes og minnist hann í skrifum sínum einnig á áfengan drykk sem unninn er úr plöntunni. Sagan segir að Astekar hafi fyrst bruggað vægt áfengi úr safa plöntunnar á árunum milli 1172 og 1291 eftir að þeir settust að í Mið- Ameríku. Astekar notuðu mjöðinn við trúarathafnir og áttu sína eigin drykkjugyðju sem hét Mayahuel og þótti henni sopinn góður eins og getið er í söngvum og ljóðum. Til er veggmynd sem sýnir Mayahuel gefa sauðdrukknum kanínubörnum sínum brjóst. Samkvæmt goðafræði Asteka átti gyðjan 400 kanínubörn og rann mjöðurinn Metl í æðum hennar og voru sífullu kanínubörnin sögð vera guðir vímunnar. Í einni goðsögn um Mayahuel segir að gyðjan hafi verið gift guðinum Petácatl sem var skapari og verndari alls plöntulífs á jörðinni. Þar segir að gyðjan hafi 400 brjóst, eitt fyrir hvert af kanínubörnum hennar. Mayahuel er sögð einstaklega lokkandi og að guðinn Quetzalcoatl, skapari mannsins, hafi náð að heilla hug hennar til framhjáhalds. Þegar Petácatl kemst að framhjáhaldinu verður hann svo æfur af reiði að Mayahuel og Quetzalcoatl flúðu frá guðaheimum til jarðarinnar og földu þau sig í plöntumynd. Þegar Tzinzinmilt langamma Mayahuel kemst að framhjáhaldinu og flótt- anum eyðir hún barnabarninu með eldingu og Quetzalcoatl grefur ösk- una og upp af henni vex agave-plant- an. Flest bendir til að áfengi hafi verið bruggað úr plöntunni löngu fyrir komu Asteka til Mið-Ameríku. Apache og fleiri ættflokkar indíána á suðvestursvæðum Bandaríkjanna brugguðu einnig áfengi úr agave og neyttu þess við hátíðleg tækifæri og við trúarathafnir. Í Mexíkó hefur lengi loðað við áfengi sem unnið er úr agave að það sé lostaörvandi. Sænski grasafræðingurinn Carl Linnaeus gaf ættkvíslinni heiti sitt Agave eftir eintaki af A. americana árið 1753. Heitið kemur úr grísku agauos sem þýðir aðdáunarverður og vísar til blómstilksins. Tegundarheitið americana vísar til uppruna plöntunn- ar. Í dag er tegundinni skipt í tvær undirtegundir og þrjá varianta A. americana subsp. americana var. americana, A. americana subsp. americana var. expansa, A. americana subsp. americana var. oaxacensis og A. americana subsp. protamericana. Nytjar Nytjar á agave eru margs konar og plantan meðal annars notuð til skrauts, sem fóðurjurt, til lækninga og til að hefta uppblástur. Auk þess að henni er plantað sem lifandi girðingu til að halda villtum dýrum frá nytja- plöntum og búsmala. Elstu heimildir um nytjar agave til matar eru átta þúsund ára gamlar minjar um ristuð blöð plöntunnar sem fundust í hellum í Tehucán í Mexíkó. Minjar benda einnig til að plantan hafi lengi einnig verið notuð til vefnaðar og til að framkalla vímu. Efni sem unnið var úr plöntunni var einnig notað til að lama fiska á afmörkuðum svæðum í tjörnum og vötnum til að auðvelda veiðar á þeim. Allir hlutar plöntunnar eru nýttir. Langir og trénaðir blómstönglar eru hafðir sem þakuppistöður, sperrur og sem girðingastaurar og í Ástralíu er búið til úr þeim hljóðfærið digerlídú eða drunupípa. Ungir og ferskir stilkar sem eru steiktir á pönnu eru sagð- ir sætir og bragðgóðir. Fersk og ný útsprungin blómin þykja bragðgóð. Safi laufanna er sagður bakteríu- drepandi og draga úr bólgum en hann er einnig sagður geta valdið sárum sviða í húð. Úr laufi og rótum eru unnar ýmiss konar tiktúrur sem not- aðar eru við margs konar mannamein- um, eins og snákabiti, fótsveppum, kynsjúkdómum, liðagigt og niður- gangi svo dæmi séu tekin. Úr blöðum nánast allra aga- ve-tegunda eru unnar trefjar í klæði, teppi, körfur, kaðlar, reipi og þráður til sauma. Úr blöðum og rótum er einnig unnin sápa. Tegundin A. sisalana er stundum kölluð sisalhampur. Innfæddir á svæðum þar sem aga- ve-tegundir vaxa villtar hafa lengi nýtt plönturnar til matar. Úr blöðunum var meðal annars unnið eins konar blaðkjöt sem aðgreint var frá trefjun- um. Blaðkjötið var síðan annaðhvort bakað í brauð sem mátti þurrka til geymslu eða soðið í súpu og borðað ferskt. Úr blómunum er unnið aga- ve-sýróp, auk þess sem úr blómunum er unnið svokallað hunangsvatn. Áfengir drykkir eins og tekíla, meskal og pulque eru unnir úr safa agave-plantna. Upphaflega var safa til framleiðslunnar safnað með því að skera burt blómstöngulinn gerja safann sem úr sárinu rann. Í dag er tekíla unnið úr stofni plöntunnar. Eftir að blöðin hafa verið skorin burt er stofninn hæghitaður í ofni og safinn úr honum pressaður burt og látinn gerjast í tré- eða stáltunnu. Því næst er safinn eimaður einu sinni eða oftar til að auka hreinleika framleiðslunnar þrátt fyrir að sumir segi að endur- tekin eimun dragi úr bragðgæðum tekílasins. Samkvæmt samningi sem stjórn- völd í Mexíkó og Evrópusambandið gerðu með sér árið 2001 er 100% hreint tekíla einungis framleitt úr yrki A. tequilana sem kallast 'Weber's Blue'. Margaríta með saltrönd Þjóðardrykkur Mexíkó er 40% tekíla og sagt er að hanastélsdrykkurinn margaríta hafi orðið til á bar í bænum Tijunna í þeim tilgangi að fá kven- kyns Ameríkana til að drekka tekíla. Margarítakokteill samanstendur af 60 millilítrum af tekíla og 30 millilítrum af appelsínu- eða limesafa og klaka og að sjálfsögðu saltrönd á þar til gerðu margarítaglasi. Ræktun Auðvelt er að rækta A. americana af fræi en yfirleitt er plöntunni fjölgað af ungplöntum sem vaxa af stofni móð- urplöntunnar. Sé plantan ræktuð af fræi getur það tekið fræin um þrjá mánuði að spíra. Í potti þrífst plantan best í sendn- um og vel framræstum jarðvegi og beinni sól. Talsverðar vonir eru bundnar við ræktun á agave í framtíðinni þar sem plantan er einstaklega þurrkþolin og nægjusöm og gæti því reynst góð nytjaplanta, fæða, klæðnaður og lyf, á svæðum sem talið er að munu líða vatnsskort vegna hlýnunar andrúms- loftsins. Agave í Íslandi Fremur litlum sögum fer af agave eða þyrnililju sem pottaplöntu hér á landi þótt þær leynist án efa einhvers staðar. Vinsældir agave-síróps hafa verið að aukast og nota margir það í staðinn fyrir sykur til baksturs og út í te. Af eigin reynslu er drykkja á tekíla ekki almenn á Íslandi nema þá helst sem hluti af hanastéli. Mörgum og reyndar mér sjálfum þykir þó gott að slamma eitt og eitt tekílaskot annað slagið með salti og sítrónu. Agave attenuata er upprunnin í Mexíkó en fremur sjaldgæf í náttúrunni. Agave-uppskera. Plantan skorin fyrir vinnslu. Stofninn er hægsoðinn í ofni til að mýkja hann áður en safinn er press- aður úr honum. Fullkomin margaríta. Gyðjan Mayahuel er verndari Agave plantna. Í nærmynd sjást trefjar plöntunnar vel. Sandalar sem ofnir eru úr agave- þráðum þykja einstaklega hljóðlátir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.